Fréttablaðið - 13.07.2004, Side 13
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 123 stk.
Keypt & selt 24 stk.
Þjónusta 36 stk.
Heilsa 4 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 9 stk.
Húsnæði 18 stk.
Atvinna 21 stk.
Tilkynningar 2 stk.
Varasamt að hjóla án hjálms
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 13. júlí,
195. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.35 13.33 23.29
Akureyri 2.48 13.18 23.45
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Það er nú bara það klassíska sem gildir hjá
mér - að passa mataræðið og hreyfa sig,“
segir Þórey Ploder Vigfúsdóttir, nemi í List-
dansskólanum.
„Ég á ekki bíl og ég geng allt sem ég þarf
að fara. Í haust gekk ég alltaf í skólann til
dæmis. Mér finnst fínt þegar ég er ekki of
þreytt og búin að dansa kannski í þrjá til
fimm tíma að taka sér smá göngutúr,“ seg-
ir Þórey.
Aðspurð um hvort það sé ekki tímafrekt
að ganga á alla staði þá segir Þórey það
vera. „Þetta tekur meiri tíma en að keyra
en ég vakna þá bara fyrr. Það er svo gott að
byrja daginn snemma. Ég þarf náttúrlega
að vakna miklu fyrr til að klæða mig í öll
fötin sem ég þarf að dúða mig í til að ganga
í skólann á veturna. En það er ekkert mál að
ganga þegar góðar göngugræjur eru til
staðar. Síðan er svo miklu betra að vera í
skólanum þegar dagurinn er tekinn snem-
ma því þá er ég miklu betur vakandi og
hressari,“ segir Þórey.
Eins og hjá flestum á Íslandi þá reynir
Þórey að borða rétt. „Ég reyni að passa
mataræðið en peningarnir eru vandræði. Ég
gæti til dæmis ekki farið á Atkins kúrinn því
þar má ekki borða pasta eða neitt svoleiðis
sem er allt frekar ódýrt. Ég fer líka mikið í
gufu í sundlaugunum og drekk te til að halda
röddinni. Síðan passa ég mig á að vera ekki
mikið úti illa klædd þegar kalt er í veðri því
þá verð ég strax hás,“ segir Þórey sem er um
þessar mundir að taka þátt í sýningunni Hár-
ið sem sýnd er í gamla Austurbæjarbíói.
lilja@frettabladid.is
Reynir að passa mataræðið:
Hefur ekki efni á Atkins
Nýlegar rannsóknir vísinda-
manna í Bandaríkjunum benda
til að vírus geti verið valdur að
brjóstakrabbameini kvenna. Vís-
indamenn-
irnir hafa
uppgötvað
vírus sem
þeir kalla
MMTV í sýn-
um kvenna
sem þjást af
sjúkdómn-
um. Vitað er
að MMTV-vírusinn veldur
brjóstakrabbameini í músum,
en rannsóknir á vírusnum hjá
konum eru enn á byrjunarstigi.
Reykingabann á Írlandi var
nýlega leitt í lög eins og kunn-
ugt er. Þrátt fyrir að allir séu
sammála um að reykingar séu
heilsuspillandi eru reykinga-
menn ósáttir og pöbbaeigendur
uggandi um afkomu sína.
Ástæðan er sú að reykinga-
menn láta ekki lengur sjá sig á
barnum og pöbbaeigandi einn
á Írlandi hefur nú í trássi við
lögin leyft reykingar á ný. Hann
segist bjóða stjórnvöldum byrg-
inn því salan á pöbbnum hafi
minnkað um 60% frá því reyk-
ingabannið var sett í mars. „Ég
er á að fara á hausinn hvort
sem er ,“ segir hann og margir
kollegar hans taka í sama
streng. Til umræðu hefur verið
að setja reykingabann á bjór-
krám á Íslandi innan tíðar.
„Hryðjuverkamenn eru
gjarnan sagðir geðveilir og
haldnir ofsóknarbrjálæði, en
hvorugt er
rétt,“ segir
Dr. Andrew
Silke, pró-
fessor í sál-
arfræði við
háskólann í
Leicester.
Rannsóknir
sem gerðar
voru á 180
meðlimum
Al-Qaeda
og öðrum meðlimum hryðju-
verkahópa leiða í ljós að hryðju-
verkamenn eru ekki á nokkurn
hátt geðveikir. Þeir stjórnast
hins vegar af hefndarþorsta.
„Það eru pólitískar ástæður fyrir
því en ekki læknisfræðilegar,“
segir Silke, „og á ekkert skylt við
geðveiki.“
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í HEILSUNNI
NO PUSHING NO PEDALING JUST
ROCK ‘N’ ROLL! Lestu allt um trikke á
kassi.is/trikke Tilboð í dag kr. 18.900
(lægsta verð í Evrópu) Pantaðu núna í
síma 660-7707, takmarkað upplag á
þessu verði.
Viltu hjálpa fátæku barni til mennta?
ABC barnahjálp sími 561 6117
www.abc.is
BMW K 1100 RS til sölu árg. ‘94, ekið
19 þús. m. 40 lítra töskur fylgja. Verð
620.000. Uppl. í s. 699 8523, Þorri.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
þú færð líka allt sem
þig vantar á
Þórey gengur út um allt en passar sig að vera í góðum hlífðarfötum til að vernda röddina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
heilsa@frettabladid.is
Þeir sem sjá illa geta núna
séð fullkomlega vel í sundi
því nú er komin á markað ný
tegund sundgleraugna með
styrkleika. Gleraugun eru til
bæði fyrir nærsýna og fjær-
sýna og er hægt að velja á
milli styrkleika allt frá mín-
us níu upp í plús fjóra.
„Sundgleraugu með styrk-
leika hafa verið til síðan árið
2001 en í mjög litlu úrvali.
Þetta er ný hönnun og eru
gleraugun í alla staði mun
nettari og þægilegri en þau
gömlu. Sílíkonhringurinn á
nýju gleraugunum er auk
þess mun þéttari og leka þau
því ekki,“ segir Pétur Christ-
iansen, eigandi Gleraugna-
verslunarinnar í Mjódd og
Gleraugnaverslunar Suður-
lands þar sem hægt er að fá
sundgleraugun.
Auk þess sem gleraugun
eru að öllu leyti þægilegri
og vatnsheldari en þau
gömlu eru þau ódýrari og
kosta aðeins um 3100 krón-
ur.
Sundgleraugun fást ein-
göngu fyrir fullorðna eins
og er en fljótlega verður
einnig hægt að fá sundgler-
augun í barnastærðum í
báðum verslunum. ■
Sundgleraugu með styrkleika:
Þægileg og ódýr
Í Gleraugnaversluninni í Mjódd og Gleraugnaverslun Suðurlands fást
nú sundgleraugu með styrkleika allt frá mínus níu upp í plús fjóra.