Fréttablaðið - 27.07.2004, Qupperneq 2
2 27. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Veðrið um verslunarmannahelgina:
Tölvur spá vætu suð-vestanlands
VEÐUR Samkvæmt tölvuspám, eink-
um frá Danmörku og Bretlandi, er
gert ráð fyrir vætusömu veðri sunn-
an- og vestanlands um verslunar-
mannahelgina. Norðlendingar og
Austfirðingar fái hins vegar blíðuna.
Samkvæmt fjöldægraspá sem
nær sex daga fram í tímann og sem
veðurstofan styðst við fram á mið-
vikudaginn er gert ráð fyrir suðlæg-
um áttum um helgina. Með henni
berst rigning með köflum eða skúrir
inn á Suður- og Vesturland, svo og
Vestfirði. Skýjað verður með köfl-
um og úrkomulítið Norðaustan-
lands. Hiti verður 10–18 stig, hlýjast
á Norðurlandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni er misjafnt hversu
tölvunum sem senda inn spárnar,
ber saman um veður komandi daga.
Að þessu sinni eru þær býsna sam-
hljóða, sem þykir gefa vísbendingar
um að þessi spá gangi nokkurn veg-
inn eftir um þessa miklu ferðahelgi.
Veðurstofan mun gefa út sér-
staka spá fyrir verslunarmanna-
helgina frá og með morgundeginum,
sem verður væntanlega nákvæmari
og landshlutatengdari.■
Sumarsala á bók-
um eykst stöðugt
Ekki er langt síðan bókasala á Íslandi var næstum einskorðuð við jólin.
Nú kaupa fleiri bækur á sumrin og hefur kiljuformið notið sívaxandi
vinsælda hjá útgefendum og lesendum.
VIÐSKIPTI Mikil aukning hefur orð-
ið á bókaútgáfu að sumri til á síð-
ustu árum. Útgefendur segja
helstu breytinguna felast í því að
meiri áhersla er lögð á að gefa út
kiljur og að neytendur kaupi í
auknum mæli bækur í því formi
til að lesa yfir sumartímann.
Um tíu þúsund eintök hafa
selst af íslenskri þýðingu á met-
sölubókinni „Da Vinci lykillinn“ í
sumar en bókin kom út á kilju-
formi í vor. Bók Þráins Bertels-
sonar „Einhvers konar ég“ hefur
einnig selst mjög vel í kiljuformi í
sumar þrátt fyrir að ekki sé nema
hálft ár síðan hún kom fyrst út og
seldist í um tíu þúsund eintökum.
Bókaútgefendur telja að lands-
lagið á bókamarkaði sé að breyt-
ast hratt. Bókaútgáfan Bjartur
gaf út tvær nýjar skáldsögur í
sumar. „Við höfum verið að gera
tilraunir með þessa vorútgáfu og
erum bara mjög ánægðir með
það,“ segir Jón Karl Helgason hjá
Bjarti.
Hjá JPV útgáfu segir Egill Jó-
hannsson að sumarvertíðin sé að
verða veigameiri þáttur hjá bóka-
útgáfum. Hann segir að JPV hafi
byrjað á sérstöku kiljuátaki fyrir
fjórum árum og upp frá því hafi
landslagið breyst. Sú sumarbók
sem vakið hefur mesta athygli hjá
JPV er vafalaust nýútkomin bók
Ómars Ragnarssonar um Kára-
hnjúkavirkjun en nú er verið að
dreifa henni í bókabúðir í annað
sinn. Um eitt þúsund eintök af
bókinni hafa farið út.
Egill segir hugarfarsbreytingu
hafa átt sér stað í íslenskri bóka-
útgáfu. „Oft var það þannig að í
kilju settu útgefendur það sem
þeir treystu sér ekki til að gefa út
innbundið. Þannig að kiljurnar
voru mjög misleitar,“ segir hann.
Nú sé hins vegar gefið út mun
vandaðra efni á kiljuformi.
Rakel Pálsdóttir hjá Eddu seg-
ir kiljusölu hafa aukist mjög. Hún
segir að fólk sé farið að taka við
sér og að fólk sem kaupi kiljur á
sumrin sé gjarnan að kaupa bæk-
ur sem það vill sjálft lesa en jóla-
bókasalan einkennist af því að
fólk kaupi bækur handa öðrum.
„Við leggjum töluverða áherslu á
að gefa út góðar kiljur yfir sumar-
tímann. Þetta var daufur tími en
það hefur breyst,“ segir Rakel.
thkjart@frettabladid.is
Saddam Hussein:
Skrifar ljóð í
fangelsinu
LONDON, AP Saddam Hussein eyðir
tíma sínum í fangelsi í að skrifa
ljóð, rækta upp garð og lesa Kór-
aninn. Hann virðist þó niðurdreg-
inn og einmana enda fær hann
ekki að umgangast aðra fanga.
Mannréttindaráðherra Íraks
heimsótti Saddam í fangelsið og
sagði hann líta út fyrir að vera við
góða heilsu. Hann sýndist þó
þróttlítill og raunamæddur.
Saddam má ekki fylgjast með
fjölmiðlum en hefur þó aðgang að
fjölda bóka í fangelsinu, aðallega
ferðabókum og skáldsögum. ■
“Austurbæjarbíó er svo miklu miklu
meira en bara bíó.“
Steinunn Birna Ragnarsdóttir er formaður Holl-
vinasamtaka Austurbæjarbíós. Til stóð að rífa
Austurbæjarbíó en nú hefur verið hætt við þau
áform. Nokkur ár eru síðan hætt var að sýna kvik-
myndir í hinum sögufræga kvikmyndasal.
SPURNING DAGSINS
Steinunn Birna, er nokkuð skemmti-
legt lengur að sjá í Austurbæjarbíói?
Jón Gerald Sullenberger:
Mættur í
skýrslutöku
RANNSÓKN Jón Gerald Sullen-
berger hefur verið boðaður í
skýrslutöku fyrir héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. Skýrslutakan
er vegna lögreglurannsóknar á
forsvarsmönnum Baugs að því er
fram kom í fréttum Ríkisútvarps.
Jón Gerald kom hingað til
lands í gær og sagði í samtali við
fréttastofu útvarps að yfirheyrsl-
urnar færu fram fyrir dómi þar
sem um það væri kveðið í sam-
komulagi hans og Baugsmanna.
Alla jafna fara yfirheyrslur sem
þessi fram hjá lögreglu.
Ekki náðist í Jón Gerald í gær-
kvöldi og lögmaður hans vildi
ekki tjá sig við Fréttablaðið. ■
EKKI BARA JÓLABÓKAFLÓÐ
Bókaútgefendur segja að landslagið á bókamarkaði sé breytt. Nú kaupi fólk meira af bók-
um fyrir sig sjálft og lesi þær í sumarfríinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
HELGARVEÐUR
Svo gæti farið að fólk á Suður- og Vestur-
landi þyrfti að grípa til regnhlífanna um
verslunarmannahelgina, meðan veðrið
leikur við Norðlendinga og Austfirðinga.
Magnús Kristinsson:
Kaupir í
Straumi
VIÐSKIPTI Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður úr Vestmannaeyjum, keypti
í gær tíu milljón hluti í Straumi fjár-
festingarbanka á genginu 7,55. Magn-
ús er einn stærsti hluthafi í Straumi.
Hann og félög í hans eigu eiga nú um
sextán prósent í Straumi. Straumur
skilaði í gær þriggja mánaða upp-
gjöri.
„Þetta er gott félag sem hagnast
vel. Það er ekki dapurt að sjá hagnað
upp á 3,2 milljarða á fyrstu sex mán-
uðum ársins,“ segir Magnús og bætir
við: „Það er ekkert hægt að gera
betra við peningana sína en að koma
þeim undir hendur þessa stórkostlega
fólks.“ ■
SADDAM HUSSEIN
Fæst meðal annars við ljóðaskrif í fangels-
inu og hefur skrifað ljóð um George Bush
Bandaríkjaforseta.
Uppljóstrari:
Settur í
ferðabann
JERÚSALEM, AP Hæstiréttur Ísraels
setti í gær hömlur á ferða- og
tjáningarfrelsi Ísraelsmannsins
Mordechai Vanunu sem ljóstraði
upp um kjarnaofn Ísraelsmanna
árið 1986.
Vanunu lauk afplánun átján ára
fangelsisdóms í apríl en öryggis-
stofnun Ísraelsríkis tók ákvörðun
um að honum yrði ekki leyft að yf-
irgefa landið né ræða við erlenda
fjölmiðla. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun
væri réttlætanleg þar sem Van-
unu byggi enn yfir ríkisleyndar-
málum. ■
MORDECHAI VANUNU
Ljóstraði upp um kjarnaofn Ísraelsmanna
og má nú hvorki yfirgefa Ísrael né ræða
við erlenda fréttamenn.
BRETLAND Höfrungar og selir eru
meðal þeirra dýrategunda sem
hafa endurnýjað heimkynni sín í
Thames-ánni í London. Á Viktor-
íutímabilinu, fyrir um tvö
hundruð árum, varð Thames svo
menguð að nær öllu dýralífi í
ánni var eytt.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan og lífsskilyrði í ánni
eru loks orðin svo góð að nýju að
sífellt finnast fleiri dýrategundir
í ánni. Má þar helst þakka nú-
tíma klóakhreinsunarstöðvum og
auknum kröfum varðandi úr-
gang verksmiðja á árbökkunum.
Fyrsti silungurinn sem veidd-
ist eftir að átak hófst um hreins-
un árinnar var dreginn á land
fyrir sjötíu árum. Upp frá því
hefur sífellt bæst í hóp þeirra
dýrategunda sem lifa í ánni og
hefur aukningin orðið hvað mest
á síðustu þremur áratugum.
Einna merkilegastur þykir
fundur á einum einstaklingi af
sæhesti, en aðeins einn annar
hefur fundist frá því hann var
flæmdur burt vegna mengunar,
og fannst sá árið 1976. Alls lifa
nú um 118 tegundir af fiski, auk
nokkurra smárra hvalategunda í
ánni.
Vísindamenn munu á næst-
unni hefja rannsóknir á lífríki ár-
innar þar sem sérstaklega verð-
ur fylgst með hegðun höfrunga
og hvala. ■
ANDARNEFJA
Meðal þeirra höfrungategunda sem endur-
nýjað hafa heimkynni sín í Thames-ánni í
London í kjölfar áratugaátaks um hreinsun
árvatnsins.
Lífríki Thames:
Höfrungar og selir
JÓN GERALD
Gefur skýrslu vegna rannsóknar á forsvars-
mönnum Baugs.
Sri Rahmawati:
Leita Sri í dag
MORÐRANNSÓKN Slysavarnarfélag-
ið Landsbjörg mun leita að Sri
Rahmawati á svæðum í nágrenni
Reykjavíkur ásamt lögreglu í dag,
að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar hjá lögreglunni í Reykjavík.
Ómar Smári segir svæðin sem
leitað verði á flest vera í nágrenni
Reykjavíkur. Landsbjörg aðstoði
lögregluna við leitina á morgun og
næstu daga. En Landsbjörg hefur
verið lögreglunni innan handar
alla rannsóknina og meðal annars
komið að skipulagningu leitarinn-
ar og þeirrar leitar sem þegar hafi
farið fram. ■
deCODE:
Lækkar
áfram
VIÐSKIPTI Gengi deCODE á banda-
ríska hlutabréfamarkaðinum Nas-
daq heldur áfram að lækka. Í við-
skiptum í upphafi dags í gær fór
hluturinn niður í 6,36 Bandaríkja-
dali.
Markaðsverðmæti félagsins er
nú tæplega 25 milljarðar króna.
Til samanburðar er markaðsverð-
mæti Bakkavarar 43,5 milljarðar,
Burðaráss 48,4 milljarðar og
Straums - fjárfestingarbanka 30,9
milljarðar.
Nasdaq markaðurinn hefur
tekið mikla niðursveiflu á síðustu
vikum og hefur það áhrif á gengi
deCODE. Búist er við uppgjöri frá
deCODE í þessari viku og má
búast við því að niðurstaða upp-
gjörsins hafi töluverð áhrif á
gengi bréfa í félaginu. ■