Fréttablaðið - 27.07.2004, Síða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 27. júlí 2004
JERÚSALEM, AP Ný lega fyrir örygg-
ismúr Ísraelsmanna sem er í
byggingu á Vesturbakkanum
hefur verið hönnuð í kjölfar þess
að Hæstiréttur Ísraels komst að
þeirri niðurstöðu að múrinn
bryti gegn réttindum Palestínu-
manna.
Ný lega múrsins liggur mun
nær „grænu línunni“, það er
landamærum Ísraels og Vestur-
bakkans fram til stríðsins í Mið-
austurlöndum árið 1967 að sögn
starfsmanns öryggismálaráðu-
neytis Ísraelsmanna.
Miklum alþjóðlegum þrýst-
ingi hefur verið beitt til að reyna
að fá Ísraelsmenn til þess að
breyta legu múrsins sem áætlað
er að verði tæpir 700 kílómetrar
fullbúinn. ■
Bókaútgáfan Edda:
Gengið frá
fjármögnun
VIÐSKIPTI Viðskipti Hluthafafund-
ur Eddu hefur samþykkt tillögu
Björgólfs Guðmundssonar um
hlutafjáraukningu og niðurskrán-
ingu hlutafjár. Að sögn Páls Braga
Kristjónssonar er búið að ganga
frá þessum ákvörðunum.
Hann segir að stærstu hluthaf-
ar verði með í hlutafjáraukning-
unni en verið sé að ganga frá því
núna hvernig endanlega verði
staðið að hlutafjáraukningunni.
Hann segir að þótt endanleg út-
færsla liggi ekki fyrir sé búið að
ganga frá fjárhagsmálum félags-
ins og það hafi fengið nóg fé til
rekstrarins. ■
MÚRINN
Harðar deilur hafa spunnist um byggingu tæplega 700 kílómetra langs múrs
á Vesturbakkanum.
Öryggismúr Ísraelsmanna:
Reistur nær landamærum
M
YN
D
/A
P
FÆRRI Í GÖNGIN Samkeppni við
lággjaldaflugfélög hefur orðið til
þess að sífellt færri nýta sér
Ermarsundsgöngin milli Bret-
landseyja og Frakklands. Fyrir-
tækið sem rekur göngin þurfti að
sætta sig við að um tíu af hundraði
færri nýttu sér göngin fyrstu sex
mánuði ársins í ár en á sama tíma
í fyrra með tilheyrandi sam-
drætti í tekjum.
HITTAST Í NOREGI Norðmenn munu
taka á móti fulltrúum stærstu
stjórnmálaflokka Haítí í næsta
mánuði til undirbúnings kosninga
á næsta ári. Einblínt verður á hlut-
verk stjórnmálaflokkanna í aðdrag-
anda kosninganna, þróun þeirra
og samvinnu milli flokka, auk
þess sem rætt verður hvernig eigi
að fá fleiri konur til að kjósa.
■ EVRÓPA
Vesturbakkinn:
Átök í kjölfar
mótmæla
JERÚSALEM, AP Sex Palestínumenn
voru drepnir í átökum við ísra-
elskar hersveitir á Vesturbakkan-
um í gær. Þá sendu ísraelskar
þyrlur flugskeyti á byggingar í
Gazaborg í kjölfar árásar víga-
manna á félagsmiðstöð landtöku-
manna þar sem sex börn særðust.
Nokkrum klukkustundum síðar
hófu ísraelskar hersveitir skot-
hríð á ný. Kostaði hún eina konu
lífið sem lá sofandi í rúmi sínu
þegar átökin brutust út. Óeirðirn-
ar brutust út eftir að um hundrað
þúsund Ísraelar mynduðu mót-
mælakeðju á sunnudag vegna
áætlana Ariel Sharon forsætisráð-
herra um að leggja niður land-
tökubyggðir gyðinga á Vestur-
bakkanum. ■
MÓTMÆLAKEÐJA
Alda óeirða braust út á Vesturbakkanum
eftir að um hundrað þúsund Ísraelar mynd-
uðu keðju til að mótmæla áætlunum stjórn-
valda um að leggja niður landtökubyggðir.
M
YN
D
/A
P
sem er áfangi í að auðvelda
vetrarleiðina á sunnanverðum
Vestfjörðum. Í Ísafjarðardjúpi
er verið að vinna við um 30 kíló-
metra langan vegarkafla í
Skötufirði og Hestfirði. Um er
að ræða endurbyggingu á gamla
veginum.
Þá er fyrirhugað að bjóða út í
haust kafla á hringveginum í
Norðurárdal í Skagafirði. Um er
að ræða um sjö kílómetra veg-
arkafla áður en farið er upp á
Öxnadalsheiði, yfir Norðurá í
Skagafirði, sem verður brúuð
neðar en nú er. Í seinni áfanga
þessara framkvæmda verða
meðal annars lagðar af tvær
einbreiðar brýr í Skagafirði.
Á Tjörnesi er nú verið að
ljúka framkvæmdum við vegar-
kafla sem nær austur í Axar-
fjörð.
Á hringveginum á Möðru-
dalsöræfum er verið að leggja
slitlag á malarkafla frá Bisk-
upshálsi að nýja veginum, sem
lagður var fram hjá Möðrudal.
Enn er þá eftir malarkafli, þar
sem komið er niður í Jökuldal,
svo og víðar á Austurlandi.
Tvenn jarðgöng
Unnið er af fullum krafti í
jarðgöngunum milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar, sem
verða 5,7 kílómetra löng. Því
verki á að ljúka næsta haust. Er
reiknað með að gatið verði
komið í gegn í lok september.
Þá er eftir frágangur á göngun-
um. Einnig er verið að vinna við
göng undir Almannaskarð sem
verða 1150 metra löng. Gerð
þeirra á að ljúka í júní á næsta
ári. Þar eru einnig fram-
kvæmdir við fjögurra kíló-
metra veg við göngin.
Rögnvaldur sagði að stærsta
verkefnið af þeim sem upp
hefðu verið talin hér að framan
væru Fáskrúðsfjarðargöngin
sem áætlað væri að kostuðu um
3,8–3,9 milljarða. Endurbæt-
urnar á hringveginum í Borgar-
firði og Skagafirði væru líklega
til mestra umferðarbóta fyrir
hinn almenna landsmann. ■
REYKJAVÍKURBORG Minni líkur eru
nú en áður að leyfi verði gefið
fyrir niðurrifi Austurbæjarbíós
að sögn Steinunnar Valdísar Ósk-
arsdóttur, formanni skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur.
„Verið er að vinna skipulag að
öllum reitnum þar sem taka þarf
tillit til margra annarra bygginga
en Austurbæjarbíós. Tillaga um
skipulag svæðisins verður lögð
fram á fundi nefndarinnar 11.
ágúst og mun ekki skýrast að fullu
fyrr en þá hver örlög Austur-
bæjarbíós verða,“ segir Steinunn.
Aðspurð um ástæðuna fyrir við-
horfsbreytingar meirihluta borg-
arráðs í málinu sagði Steinunn að
neikvæð viðbrögð við grenndar-
kynningu réðu þar miklu um.
„Það var ekki búið að taka
neina ákvörðun um það hvort
leyfa ætti niðurrif eða ekki þegar
málið fór í grenndarkynningu,“
segir Steinunn. „Ástæðan fyrir
grenndarkynningu er einmitt að
leita eftir viðbrögðum og að
sjálfsögðu hafa þau áhrif á niður-
stöðu málsins, annað væri ólýð-
ræðislegt,“ segir hún. Árni Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
Á.H.Á. bygginga, eigenda Aust-
urbæjarbíós, sagði í samtali við
Fréttablaðið að hann væri að
sjálfsögðu ósáttur við þá niður-
stöðu, ef svo yrði, að niðurrif
hússins yrði ekki heimilað.
Spurður um hvort hann væri að
íhuga málaferli vegna hugsanlegs
fjárhagslegs tjóns sem rekja má
til þess að Reykjavíkurborg hafn-
aði umsókn fyrirtækisins um nið-
urrif hússins og byggingu nýrra
íbúða og verslunarhúsnæðis sagði
hann ekkert afráðið með það.
„Ég er að hugsa næsta leik í
stöðunni og er í viðræðum við
borgina,“ sagði Árni, en vildi ekki
fara nánar út í um hvað við-
ræðurnar snerust. Hann vinnur að
því að útbúa skýrslu um málið þar
sem varpað verður ljósi á öll atriði
þess. Skýrslan verður tilbúin
strax eftir helgi. ■
AUSTURBÆJARBÍÓ
Formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur segir minni líkur nú en áður að niðurrif Austurbæjarbíós verði heimilað.
Eigandi Austurbæjar ósáttur
Formaður skipulags- og byggingarnefndar segir minni líkur nú en
áður á að niðurrif Austurbæjar verði heimilað. Viðbrögð við grenndar-
kynningu ráði þar einna mestu. Eigandi hússins segist ósáttur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA