Fréttablaðið - 27.07.2004, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. júlí 2004
CHROM
dregur úr
sykurlöngun
og jafnar
blóðsykurinn
FÆST Í APÓTEKUM,
FJARÐARKAUP
OG HAGKAUP.
„Ég er með líkamsrækt á heil-
anum, hvorki meira né minna.
Það finnst að minnsta kosti
sumum í kring um mig,“ segir
Guðrún Helga Sigurðardóttir
blaðamaður þegar hún er beðin
að lýsa aðeins sínum lífsstíl.
„Ég fer að jafnaði þrisvar í viku
í ræktina, hef gert það síðustu
fimm árin. Svo stefni ég á að
taka þátt í Reykjavíkurmara-
þoninu í ágúst eins og ég hef
gert síðustu þrjú árin,“ heldur
hún áfram. Hún kveðst hafa
hlaupið mikið frá því hún var
krakki og það henti henni vel.
Stundum hlaupi hún eftir gang-
inum í vinnunni hjá sér, bara af
þörf. Annars sé hún fyrst og
fremst í spinning. „Þessir
hjólatímar finnst mér skemmti-
legastir af öllu skemmtilegu.
Bæði vegna hreyfingarinnar
sjálfrar og meðan ég hamast
þar tekst mér að einbeita mér
svo vel, vinna hugmyndavinnu
og fá útrás fyrir umframorku
og annað sem þarf útrás. Lík-
amlega og andlega líðanin helst
í hendur og maður er í bana-
stuði þegar maður er búinn í
svona tíma.“
En hvað um mataræðið.
Skyldi Guðrún bara borða holl-
an mat? „Já, ég reyni það nú en
reyndar er upp og ofan hvernig
það gengur. Stundum missi ég
mig í eitthvað gott, keypti til
dæmis sælgæti á hverju kvöldi
þegar ég var í útilegu um dag-
inn austur í Skaftafelli og fæ
mér tertur í afmælis- og ferm-
ingarveislum. En þegar ég geri
innkaup fyrir heimilið kaupi ég
yfirleitt bara léttan og hollan
mat.“ Þegar hún er spurð nánar
út í Skaftafellsdvölina kemur í
ljós að hún gerði sér lítið fyrir
og gekk á Hvannadalshnjúk
einn daginn. „Já, ég hef svolítið
verið í fjallgöngum í sumar og
„fíla“ það rosalega vel,“ segir
hún og það verða lokaorðin.
gun@frettabladid.is
Guðrún Helga Sigurðardóttir:
Er með líkamsrækt á heilanum
Guðrún Helga stefnir á hálfmaraþon í ágúst.Nýkomin af hæsta tindi landsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Ný sturtusápa frá NIVEA
Í NIVEA-línuna hefur nú bæst við ný rakagefandi
sturtusápa með nýstárlegum nuddhaus sem
gerir kleift að nudda húðina í sturtunni og auka
þannig blóðstreymi til húðarinnar. Brúsinn er
einfaldur í notkun, en með því að kreista
hann opnast gat í miðjum nuddhausnum sem
skammtar rétt magn af sápunni. Með því að
snúa nuddhausnum er hægt að velja um mis-
munandi þrýsting, allt eftir þörfum. Í sápunni er
Ginkgo Biloba-þykkni sem eykur blóðflæðið í
húðinni og veitir vellíðunartilfinningu. Hægt að
kaupa áfyllingar.
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI OG
RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM NAUÐGANIR
UM VERSLUNARMANNAHELGI
Ekki standa hjá og horfa á!
gbergmann@gbergmann.is.
Í fyrra fyrir verslunarmanna-
helgina skrifaði ég grein sem
bar titilinn: Allt nema já þýðir
nei! Þar hvatti ég karlmenn á
öllum aldri til að virða óskir
kvenna og bað þá um að gera
ekki neitt nema að þeir fengju
skýrt já. Ég bað þá einnig að átta
sig á því að nauðgun er óaftur-
kallanlegur glæpur sem leggst á
sálina hjá konum og körlum sem
fyrir henni verða. Nauðgun
getur fylgt sjálfsfyrirlitning af
verstu gerð sem hefur áhrif á
allt samfélagið þegar til lengri
tíma er litið. Lengi hefur verið
barist gegn nauðgunum undir
slagorðinu: Nei þýðir nei. Ég
vona að sú barátta hafi skilað
árangri en betur má ef duga
skal. Um verslunarmannahelgar
hefur þjóðin sætt sig við ákveð-
inn fjölda nauðgana. Slík sátt
gengur ekki! Því hvet ég alla
sem ætla á útihátíðir um helgina
til að hafa augun hjá sér. Þegar
ég hugsa til unglingsáranna
hefði ég örugglega getað stöðv-
að tvær eða fleiri nauðganir þar
sem ég horfði á unga drengi
ganga inn í herbergi hjá áfengis-
dauðum stúlkum án þess að
hugsa meira um það. Ekki
standa hjá og horfa á! Ef þú sérð
eitthvað grunsamlegt á seyði
skaltu láta þá vita sem geta gert
eitthvað í málinu. Nauðganir
ættu aldrei að vera eitthvað sem
við sættum okkur við. Aldrei! ■
Nýja sturtusápan frá NIVEA er með sérstökum
nuddhaus sem örvar blóðflæði til húðarinnar.
Viltu léttast? Eða þyngjast? Þú getur það með
Herbalife! Hafðu samband. Ólöf. S. 861 5356,
olsiar@hotmail.com
Notalegt nudd. Uppl. í síma 849 1274.
Herbalife, frábær lífsstíll. Þyngdarstjórnun, aukin
orka og betri heilsa. jurtalif.is Bjarni sími 820
7100. workworldwidefromhome.com
www.arangur.is NÝTT Líkami í mótun. Sérsniðið
fyrir ÞIG. S. 595 2002, arangur.is
Frábær líðan... Alveg síðan... HERBALIFE, eco.is
Erla Bjartmarz erla@eco.is 899 4183.
Elasto-Gel hita- og kælivafningar. Frábær lausn
í sumarfríið til að vinna á vöðvabólgu og lið-
vekjum. Fæst í Össur (Orkuhúsinu), Lyfju,
Heilsuhúsinu og apótekum um allt land.
elastogel.is
Heilsuvörur
Nudd
Fæðubótarefni
HEILSA