Tíminn - 15.12.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 15. deseniber 1972
TÍMINN
7
Klárir i bátana
TORFI A ÞORSTEINI Rg TUTTUGU OG EINUM
KCMUR TIL OYRANNA EINS
OG HANN ER KLÆODUR OQ SEGIR FRA
SILDARÆVINT YRINU 1915—1945, SKELEGGUM
SJOMONNUM OG SKRÝTNUM FUGLUM
A SJÚ OG LANDI.
TORFI H. HALLDÓRSSON Á ÞORSTEINI
RE. 21 KEMUR TIL DYRANNA EINS
OG HANN ER KLÆDDUR
Klárir i bátana hrópuöu síldarskip-
stjórarnir, þegar síldin óð og snurpunót-
in og nótabátarnir voru enn við líði. I
bók sinni segir Torfi sögu síldveiðanna
fyrir Norðurlandi á árunum 1915-1945 og
minnist fjölda skipstjóra og aflakónga
frá þessum árum. Auk skipstjórnar-
manna koma við sögu ýmsir aðrir frægir
menn, t.d. Óskar Halldórsson og Guð-
mundur Helgastaða. Torfi segir einnig
frá spilakunnáttu sinni og bregður upp
mynd af ýmsum spilafélögum.
ÞESSI BÓK ER EKKI UM ANDATRÚ,
EN ER RÍKJANDI SÖGUSKOÐUN
BYGGÐ Á RÖNGUM FORSENDUM?
Margir munu hafa heyrf erindi Lofts
Guðmundssonar um þetta efni, en þau
voru byggð á þessari bók.
Víða um lönd getur að líta furðulegar
rústir, ævaforn mannvirki og undar-
legar minjar, sem ekki er unnt að
skýra samkvæmt viðurkenndum
kenningum. Höfundur þessarar bókar
leitast við að skýra þau frá þeim
sjónarmiðum, sem geimkönnunin hef-
ur opnað síðasta áratuginn, og hann
byltir víða rikjandi kenningum.
II voru GUÐ/RNIR
!| geimfarar?
MAGNÞRUNGIN MANNLÍFSSAGA, SEM
GERIST í SVEIT OG BORG,
í ROMANTÍZKU UPPHAFI
JEPPAALDAR Á ÍSLANDI
Eftir Einar Guðmundsson frá Hergilsey
Höfundur þessarar bókar er fæddur og
uppalinn i Hergilsey á Breiðafirði til 12
ára aldurs, en þá fluttist hann að Brjáns-
læk. Nú býrhann á Seftjörn
MEÐAN JÖRÐIN GRÆR er þjóðlifs-
saga að vestan og sunnan, bók um
ásælni, ástir og árekstra, en einnig um
tryggð, festu og drenglyndi, en fyrst
og fremst magnþrungin mannlífssaga.
OLYMPÍULEIKARNIR 1972
í MÁLI OG MYNDUM
Aldrei fyrr svo margar iþróttamyndir i
islenzkri bók.
Bókin er sem lifandi fréttablað frá
leikunum í Sapporo og Munchen. Það
er gömul staðreynd.að sjón er sögu rík-
ari, en hér haldast myndirnar og text-
inn í hendur. Á hverri blaðsíðu er sagt
frá afvikum í máli og myndum, sem
aldrei munugleymast i íþróttasögunni.
Bókin geymir einnig allar úrslitaskrár
og töflur leikanna.
BARIZT í BRÖTTUM HLÍÐUM ER EFTIR
HÖFUND METSÖLUBOKARINNAR,
STÖÐUGT í SKOTMÁLI
sem kom út fyrir jólin 1971 og seldist
strax upp
Það fengu færri en vildu STÖDUGT í
SKOTMÁLI, og það eru allar líkur til
þess að svo fari einnig með BARIZT í
BRÖTTUM HLÍÐUM, því hún gefur
hinni fyrri ekkert eftir.
SÖGUÞRÁÐUR: Grískt farþegaskip
leggur úr höf n. Óvæntir atburðir gerast í
hafi. Óveður skellur á — átök eiga sér
stað — mönnum er kastað útbyrðis —
skipi er sökkt — það er BARIZT í
BRÖTTUM HLÍÐUM
o
s.
D
n
o
3-
(D
Barizt Colin Forbes
í bröttum
hlíðum
B SteinarJ.Lúðviksson
Olympíu
bókín
Miinchen og Sapporo
1972
ÞESSI BÓK ER BYGGÐ Á
SKYRINGUM EDGAR CAYCE
Edgar Cayce ræddi margt um drauma
og eðli þeirra í dálestrum sínum, einnig
vitranir manna og skyggni.
Segðu mér drauma þína — og ég skal
segja þér, hver þú ert, hvað með þér
leynist, hvað fyrir þig hefur borið og —
ef til vill — hvað á eftir að koma fyrir
þig. Þetta eru þær niðurstöður, sem
höfundur kemst að, og þær niðurstöður,
sem lesandinn ætti að geta tileinkað sér,
varðandi sína eigin drauma — og ann-
arra.
FRÁSAGNIR OG VIÐTÖL UM
UNDURSAMLEGA HÆFILEIKA
Jónas Jónasson, útvarpsmaður, ritar
bók um Einar Jónsson, lækningamiðil-
inn á Einarsstöðum i Reykjadal.
Einar Jónsson á Einarsstöðum í Reykja-
dal hefur í kyrrþey unnið merkilegt likn-
ar- og lækningastarf. Nafn hans hefur
víða heyrzt, þótt þeir séu færri, sem
kynnst hafa Einari náið. Nú hefur Jónas
Jónasson fært til bókar kynni sín af hin-
um merka lækningamiðli og nokkurra
annarra karla og kvenna, sem telja Ein-
ar hafa komið sér til hjálpar, þegar á
reyndi.
RICHARD
I| FALKIRK
|| Vegíöúr
í- launsútri
UTLENDUR HÖFUNDUR
VELUR ÍSLAND AÐ SÖGUSVIÐI
Bókin um grimmileg átök erlendra
njósnara á íslandi og íslenzku flug-
freyjuna, sem flæktist í málið, auk
f jölda annarra islendinga, er komin út.
Grinvnileg átök erlendra
njósnara á ISLANOI
Aðalsögupersónurnar eru brezkur maður
og flugfreyja hjá Flugfélagi islands.
Auk þess koma við sögu rússneska sendi-
ráðið, varnarliðið, íslenzka lögreglan,
þjóðskráin, reykvískir skemmtistaðir og
kaffihús, ýmsir staðir utan Reykja-
víkur.
FJÓRÐA BINDI BJÖRGUNAR- OG
SJÓSLYSASÖGU ÍSLANDS
ÁRIN 1948-1952
Hulunni svipt af því.sem gerðist um borð
i brezka togaranum Sargon, þegar hann
strandaði viö Hafnarmúla 1948.
Meðal stærri kafla bókarinnar má nefna
frásögn af strandi Sargon tæpu ári eftir
að Dhoon fórst undir Látrabjargi. Nokk-
ur hula hefurætíð þótt ríkja yf ir því,sem
gerðist um borð í Sargon. Páll Heiðar
Jónsson fór til Bretlands og tók frásögn
skipbrotsmannanna upp á segulbönd og
er hún ofin inn í atburðarásina af höf-
undi. Fjöldi mynda og teikninga er í,
bókinni.
KYNNIST NÝJUM HÖFUNDI, SEM
HEFUR KJARK TIL AÐ SKRIFA FYRIR
„VENJULEGT FÓLK”
Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk
hefur ritað samtímasögu úr Reykjavík,
og það er ekki á hverjum degi, sem ung
skáldkona kveður sér hljóðs. Margir
munu án efa forvitnir, bæði um höfund-
inn og framlag hennar til íslenzkra bók-
mennta. Snjólaug lét þess getið nýlega í
blaðaviðtali, að saga hennar væri fyrir
venjulegt fólk, skrifuð á venjulegu máli.
J SMJÓLAUG BRAGADÓTTIR
|J FRÁ SKÁLDALÆK
'í Nœtur-
|í staóur
5 =. brol ítr lij'i
bnriiarharoa
Þrautgódir
\á raunastund
'-(STEINARJLÚÐVlKSSON
i
BJÓHGUNAn- OQ SJÓSLY8ASAGA tSLANDS 1945—1952
MEOAL ANHARS EFNIS. HULUNNI SVIFT AF ÞVl. SCM
GEHOIST UM BOHD I BREZKA TOGARANUM SARQON,
FEOAR HANN STRANDAOI VIÐ HAFNARMULA ARID 194*.
Gleðileg jól með góðum bókum
Örn og Örlygur - Reynimel 60 ‘ Sfmar 1-86-60 og 1-90-90