Tíminn - 15.12.1972, Blaðsíða 21
r
Föstudagur 15. desembcr 1972
TÍMINN
Umsjón:Alfreð Þorsteinssoig
Lélegur hand-
knattleikur
allsráðandi
Ounnar Kjartansson, þjálfari Ármanns, sést hér fagna sigrinum yfir Fram, ásamt leikmönnum sinum.
Fvrstu stig Ármanns i islandsmótinu voru staðreynd. (Timamynd Róbert).
— 55 mörk voru skoruð í leik KR og
Víkings, sem Víkingur vann 32:23 —
l>aft var ekki rishár handknatt-
leikur.sem KR og Vikingur léku á
miftvikudagskvöldið; kæruleysið
var alls ráðandi.og gefa úrslit
leiksins til kynna, Itvers konar
handknattleikur var leikinn —
lokatölur lciksins urðu ;i2:2:i, eöa
55 mörk i 60 min leik. Varnarleik-
ur liðanna var mjög lélegur og
markvar/.la nær engin — eini
leikmaðurinn á vellinum, sent
sýndi eitthvað af viti. var Einar
Magnússon, hann hreinlega skaut
lélegt KR-lið i kaf. Ellefu sinnum
scndi Einar knöttinn í netið; sunt
mörk hans voru stórglæsileg. l>að
var ekki nóg með það, heldur
mataöi Einar linuspilara
Vikingsliðsins og var aðalmaður-
inn i spilinu. Einar hel'ur sjaldan
sýnt eins góðan leik og hann
sýndi gegn KR.
KR-liðið einkennist af kæru-
leysi og áhugaleysi — leikmenn
liðsins tala ekki saman i vörninni,
sem er sú allra lélegasta hjá 1.
deildarliði.og ef engar breytingar
verða þar gerðar á, er enginn vafi
á, hvaða lið fellur i 2. deild. Mað-
ur hefur það á tilfinningunni, að
sumir leikmenn i KR-liðinu séu
eingöngu að leika handknattleik
til að halda sér i æfingu yfir
vetrarmánuðina, þegar knatt-
spyrnan er ekki leikin.
Leikur liðanna var nokkuð jafn
framan af.og um miðjan fyrri
hálfleik var greinilegt að hverju
stefndi — þá var staðan 9:8 fyrir
Viking, eða eitt mark á minútu.
Vörn liðanna var mjög léleg,enda
sú slakasta i 1. deild — mark-
varzlan var engin og leikurinn
eftir þvi. Staðan i hálfleik var
15:12 fyrir Viking. Fljótlega i sið-
ari hálfleik var staðan orðin 20:15
fyrir Viking, en KR minnkaði
muninn niður i 20:17. Um miðjan
hálfleikinn var staðan 22:19 fyrir
Viking — siðustu minútur leiks-
ins, urðu að skripaleik og lauk
leiknum með sigri Vikings 32:23,
sem má segja að sé vallarmet i
Laugardalshöllinni.
Svona markatala sást oft i
Hálogalandsbragganum, en hafa
verið sjaldséðar i Laugardals-
höllinni, eða almennt i handknatt-
leik siðan 1965, þegar handknatt-
leikur breyttist á tslandi — farið
var að leika sterkan varnarleik
og ..taktiskan” handknattleik.
Það er varla hægt að hrósa leik-
mönnum liðanna fyrir leikinn;
sóknarleikur liðanna var oft góð-
ur, enda lélegar varnir fyrir.
Sömu leikmennirnir og áttu
góðan sóknarleik voru ekki
burðugir i vörn, svo að einkunnin
sem við gefum leikmönnunum er
góðir i sókn, en lélegir i vörn —
þolanlegir handknattleiksmenn.
Það var aðeins einn leikmaður á
vellinum, sem reyndi að gera
eitthvað, það var ,,risjnn” Einar
Magnússon, sem bar höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn.
Dómarar leiksins voru þeir
Einar Hjartarson og Kjartan
Seinbeck. Þeir dæmdu leikinn
nokkuð vel, enda auðdæmdur
ieikur. Einu sinni i öllum leikn-
um þurftu þeir að gefa
áminningu.
— sos.
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruðum viðskiptavmum okkar full-
komna varahluta- og viðgerðaþjónustu.
„Allt annað lið"
— sagði Gunnar Kjartansson,
þjálfari Armanns
Einar Magnússon var eini leikmaðurinn á vellinum, sem lék handknattleik af viti; hann skaut KR i kaf.
Ilér á myndinni sést hann skora eitt af ellefeu mörkum sinum. (Timamynd Róbcrt).
Gunnar Kjartansson, hinn
ungi þjálfari Ármanns, var að
sjálfsögðu mjög ánægður eftir
leik liös sins gegn Fram.
Ilann sagði, að honum hefði
fundizt Ármannsliðið allt ann-
að lið heldur en hann hafi
stjórnað i fyrri leikjum liðsins
i islandsmótinu. Ástæðuna
liösins hafi komið saman i
gufubaði, kvöldið áður, þar
sem lcikmcnn liðsins hefðu
slappað af og talað saman i
tvo tima. Þar höfðu menn sagt
það, sem þeim lá á hjarta, við-
kvæm mál, sem bctur eru
sögð, þegar allir leikmenn
heyra, heldur en að fara á bak,
Mörk KR
og Víkings
Eftirtaldir leikmenn skoruðu
mörkin i leik KR og Vikings á
in iðv ikudagsk völdið:
KR : Björn Pétursson 6, Steinar
Friðgeirsson 4, Haukur Ottesen
og Björn Blöndal þrjú hvor,
Bjarni Kristinsson, Karl
Jóhannsson og Geir Friðgeirsson
tvö hver og Bogi Karlsson, eitt.
VÍKINGUR: Einar Magnússon
11(2 viti), Guðjón Magnússon og
Stefán Halldórsson fimm hvor,
Ölafur Friðriksson 4, Páll Björg-
vinsson 3, ViggóSigurðsson 2, Jón
Sigurðsson og Sigfús Guömunds-
Verzlunin
Garðastræti 11 sími 20080
*