Tíminn - 16.12.1972, Page 21
Laugardagur 16. desember 1972
TÍMINN
21
A tveimur jafnfljótum
- minningar Ólafs Jónssonar ráðunauts
Á tveimur jafnfljótum, heitir
annað bindi æviminninga Ólafs
Jónssonar, búnaðarráðunauts,
sem nú er komið út hjá Leiftri.
Æviminningar eru vinsælt les-
efni,og má segja, að þær staðfesti,
að sannfræðin sé oft furðulegri en
skáldskapurinn. Æviminningar,
ekki sizt æskuminningar, gegna
þvi mikla hlutverki að tengja
saman fortið og nútið. Án þeirra
væri unga kynslóðin, sem nú er að
taka ráðin i landinu, að mestu
slitin úr tengslum við fortið sina.
Henni er vissulega hollt að
kynnast þeim kjörum, sem
ömmur þeirra og afar og jafnvel
foreldrar áttu við að búa, og hug
leiða, hversu hún hefði snúizt við
þeim aðstæðum. Þess vegna ættu
æviminningar að vera gagnlegt
lesefni ungu fólki nú á timum vel-
megunarinnar.
Æviminningar Ólafs Jónssonar
eru skemmtilega skrifaðar, frá-
sögnin hógvær og látlaus og i
henni mikill og almennnur fróð-
leikur. Bókin er 406 blaðsiður.
Leiftur prentaði.
Jólatrésala í Laugarnesi
Nú eru aðeins niu dagar til jóla, og greinilegt er, að fólk er farið að búa sig undir hátiðirnar. Jólatréssal-
an er i fullum gangi viða i borginni, m.a. að Laugarnesvegi 70, en þessa mynd tók Ijósm. Tímans i fyrra-
dag af ungri blómarós, sein seldi jólatré þar.
Pétur og Sóley - nútímaleg barnabók
IÐUNN hefur sent á markað
bókina Pétur og Sóley, nútima-
lega barnabók eftir Kerstin Thor-
vall, einn kunnasta barnabóka-
höfund Svia um þessar mundir.
Hún sækir efni bóka sinna beint i
þann nýja þjóðfélagslega veru-
leika, sem mótar lif barna og for-
eldra þeirra nú i dag, og eru bæk-
ur hennar i senn bæði vekjandi og
skemmtilegar. Sjálf skreytir hún
bækur sjnar skemmtilegum
teikningum.
PÉTUR OG SÓLEY hlaut verð-
lauíi i samkeppni um beztu bók-
ina handa 5-9 ára börnum, sem
stærsta bókaforlag Norðurlanda,
Bonniers, efndi til.
Bókin hefur hlotið mjög góðar
viðtökur eins og eftirfarandi um-
mæji sýna:
,,Kerstin Thorvall nær eins og
alltaf þessum sanna hljóm, og ég
mæli heils hugar með bókinni,
ekki sizt til umræðu i yngstu
bekkjunum, þar sem hliðstæð
vandamál skjóta stöðugt upp
kollinum.”
Brita Enckson,
Lá'rartidningen.
,,Pétur og Sóley er bók, sem
maður getur unnt mörgum,
mörgum lesendum að njóta. Hún
fjallar um tvö sjö ára börn og
heim þeirra, sem er lýst á svo
KERSTIN THOBVAU.
Péturog Sóley
nærfærinn og sannan hátt og með
svo finni tilfinningu fyrir mörk-
um viðkvæmni og góðlátlegrar
kimni, að það er erfitt að leggja
bókina frá sér hálflesna.”
Brigitta Brodd,
Bokrevy-Bibliotekstjanst.
„Þetta er ihugunarverð bók, bæði
fyrir börn, foreldra og kennara.”
Aftonbladet.
„Einstaklega hugljúf bók, sem
vekur til umhugsunar um
margt.”
Kristianstadsbladet.
Þetta er fyrsta bókin, sem gefin
er út undir merkinu „Létt að
lesa”. Bækur með þessu merki
munu verða sniðnar með það
fyrir augum. að börn, sem eru
skammt á veg komin i iestri eiga
auðvelt með að lesa þær á eigin
spýtur. Lögð verður áherzla á að
velja einungis i þennan flokk
góðar og vandaðar bækur, sem
eiga erindi til barna i dag. Þýð-
andi fyrstu bókarinnar er Anna
Valdimarsdóttir.
JÓN SKAGAN
}ÓN SkAQAN
^xLASkiptri
ArUNQLÍNU
MÍNNÍNCJAR OQ MyNDÍK
AXLASKIPTI
Á
TUNGLINU
Ævi manna er samslunginn vefur atvika, orsaka og afleiðinga. Ráðgáta/lífsins
verður því oftast torskilin og yfir henni hvílir hula óræðis og óskiljanleika.
Oft verður manni ljóst hvernig lítil atvik verða aflgjafi
stórra atburða í lífi einstaklinga og stórra hópa manna.
Við lestur þessarar bókar séra Jóns Skagans verður manni þetta ljósara
en áður. Frásögnin er öll lifandi og skemmtileg í einfaldleik
hins frásagnarglaða sögumanns.
Þessi bók er skemmtileg myndasýning úr hinu daglega lífi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJARNARNESI - SIMAR 13510, 26155 OG 17059
rjist:- '■
Hljómplötukynning
í bókasafni Norræna hússins
i dag, laugardaginn 16. desember kl. 16.30.
GöllAN BERGENDAL frá tónlistardeild
sænska rikisútvarpsins kynnir nýjar
sænskar hljómplötur: Þjóðleg tónlist frá
Dalarna, sænsk jazztónlist, barokktónlist
trá Frakklandi og kaflar úr Jólaóratori-
unni eftir Hilding Rosenberg.
Hljómplöturnar verða siðar til útláns i
bókasafninu.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Verið velkomin.
NORRÆNA
HUSIÐ
k
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-L0RENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruðum viðskiptavinum okkar íull-
komna varahluta- og viðgerðaþjónustu.
Verzlunin
GELLIR .i
Garöastræti 11 sími 20080 I
- 5 ' ■ • ‘í* • •• 9* ••.
!■ W'l".'i!"<iL?!i''ígB11'11 IIUI|;|MIIW" mniiMiiiMniji).. 1 jXl JJ|11". .MUWa«r.