Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 4
4 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Stjórnarmyndunarviðræður hafnar í Ísrael:
Misklíð við upphaf
viðræðna
ÍSRAEL Tveir stærstu stjórnmála-
flokkar Ísraels hafa sett sér
tveggja vikna tímamörk fyrir því
að ná samkomulagi um aðkomu
Verkamannaflokksins að ríkis-
stjórn. Frammámenn í báðum
flokkum ítrekuðu þó í gær að
mörg ljón væru í veginum fyrir
samkomulagi.
„Okkur finnst þetta vond ríkis-
stjórn og tökum aðeins þátt ef við
höfum áhrif á efnahagsstefnuna
og ef brotthvarfinu frá Gaza verð-
ur hrint í framkvæmd,“ sagði
þingkonan Dalia Itzik sem á sæti í
samninganefnd Verkamanna-
flokksins. Ariel Sharon forsætis-
ráðherra sagði það ekki auðvelt
verk að mynda þjóðstjórn.
Takist stjórnarmyndunin nýtur
nýja stjórnin meirihlutastuðnings
á þingi. Óvíst er þó hversu mikill
sá stuðningur verður því að innan
raða hvort tveggja Verkamanna-
flokksins og Likud er mikil and-
staða við þjóðstjórn. Flokkarnir
tveir og Shinui eiga 77 þingsæti á
120 manna þingi.
Samninganefndir flokkanna
komu saman í fyrsta sinn í gær-
kvöldi og funda þrisvar til viðbót-
ar fyrir vikulokin. Það setti strik í
reikninginn að Sharon hefur boðið
tveimur flokkum strangtrúaðra
gyðinga til viðræðna. Hvorki
Verkamannaflokkurinn né Shinui
eru spenntir fyrir samstarfi við
þá. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Stundar þú golf?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu áhyggjur af byggðaþróun á
landsbyggðinni?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
87%
13%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Hjónum mismunað:
Mega ekki
búa saman
ÍSRAEL, AP Ríkisstjórn Ísraels sam-
þykkti sex mánaða framlengingu
á lögum sem banna Palestínu-
mönnum sem giftir eru ísraelsk-
um aröbum að búa í Ísrael. Frá
1993 til 2003 hafa 100.000 Palest-
ínumenn fengið rétt til að búa í
Ísrael vegna hjónabands við Ísra-
elsbúa. Ísraelsstjórn telur ástæðu
til að stöðva þessa þróun.
Lögin voru sett á síðasta ári og
þá til bráðabirgða. Þau urðu afar
umdeild og kölluðu á mótmæli
Sameinuðu þjóðanna. Framleng-
ing þeirra hefur þegar kallað á
hörð mótmæli. Ísraelskur-ara-
bískur lögfræðingur, Azmi Bish-
ara, segir ákvörðun ríkisstjórnar-
innar lýsa kynþáttahatri og með
henni sé verið að brjóta á rétt-
indum fólks. ■
ÖLVUNARAKSTUR Fimm voru
teknir fyrir ölvunarakstur í höf-
uðborginni aðfaranótt sunnu-
dags. Einhver slagsmál voru í
borginni og þurfti lögregla að
hafa einhver afskipti af þeim.
Einn var síðan tekinn fyrir ölv-
unarakstur rétt eftir sjö í gær-
morgun.
HÁTÍÐAHÖLD Kátir dagar voru
haldnir á Þórshöfn um helgina.
Hátíðin fór almennt vel fram og
lítið var um ryskingar manna á
milli. Dálítið var um ölvun og
þurfti lögreglan á Húsavík að
hafa nokkur afskipti af ölvuðum
einstaklingum.
SKEMMDARVERK Á BIFREIÐUM
Tvö skemmdarverk voru unnin á
bifreiðum aðfaranótt sunnudags.
Sparkað var í afturhurð ann-
arrar bifreiðarinnar og aftur-
gluggi brotnaði. Engu var stolið.
Átt var við bensínlokið á hinni
bifreiðinni. Bæði málin teljast
óupplýst að sögn lögreglunnar á
Akureyri.
Brettingur fékk aftur tun-
durdufl í trollið:
Sprengi-
hleðsla
eyðilögð
TUNDURDUFL Togarinn Brettingur
fékk á laugardaginn tundurdufl í
veiðarfærin. Þetta er í annað skiptið
á stuttum tíma sem skipið fær tun-
durdufl í trollið.
Síðla dags á laugardaginn tilkyn-
nti skipstjórinn á Brettingi
Landhelgisgæslunni um hlut sem
hafði komið upp með veiðarfærun-
um og gæti hugsanlega verið tund-
urdufl. Skipið var að veiðum í
svokölluðum Rósagarði út af Suð-
austurlandi.
Vakthafandi sprengjusérfræð-
ingur sprengjudeildar Landhelgis-
gæslunnar staðfesti að um sprengi-
hleðslu úr bresku tundurdufli væri
að ræða. Togarinn sigldi þá til hafn-
ar við Fáskrúðsfjörð og var kominn
þangað korter fyrir miðnætti. Þá
fóru tveir sprengjusérfræðingar
um borð í togarann og strax kom í
ljós að sprengihleðslan var 135 kíló-
grömm og úr bresku tundurdufli.
Forsprengjan var ekki til staðar en
enn var hluti af sprengiefni í hleðsl-
unni og hún því tekin í land í sam-
vinnu við lögregluna á Fáskrúðs-
firði. Sprengihleðslan var síðan
brennd og eyðilögð.
Rósagarðurinn hlaut nafn sitt
vegna hins mikla fjölda tundurdufla
sem þar var lagt. Umfangsmiklar
tundurduflalagnir Breta fóru þar
fram á árunum 1940 til 1943. Þá
voru yfir níutíu þúsund tundurdufl-
um af ýmsum gerðum lagt í sjó á
svæðinu. ■
RÆTT VIÐ SAMHERJA
Ariel Sharon stýrði fundi ríkisstjórnar sinnar í gær og gerði grein fyrir stöðu stjórnarmynd-
unarviðræðna.
SPRENGIHLEÐSLA ÚR BRESKU TUNDURDUFLI
Sprengjusérfræðingar sprengideildar Landhelgisgæslu Íslands brenndu og eyðilögðu
sprengihleðslu á Fáskrúðsfirði aðfaranótt sunnudags.
Mesta framþróun í áratug
Tillaga um að halda áfram vinnu í átt að samkomulagi um hvalveiðar í atvinnuskyni verður lögð
fyrir Alþjóðahvalveiðiráðið á þriðjudag. Formaður sendinefndar Íslands segir meiri framþróun í
málinu síðustu tíu mánuði en tíu ár þar á undan.
HVALVEIÐAR „Síðustu tíu mánuði
hefur verið meiri framþróun í
þessu máli en tíu ár þar á undan,“
segir Stefán Ásmundsson, for-
maður sendinefndar Íslands á
ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
sem hefst í Sorrento á Ítalíu í dag.
Stefán gerir sér vonir um að
tillaga formanns ráðsins, Danans
Henrik Fischer, um að unnið verði
áfram í átt að samkomulagi um
hvalveiðar í atvinnuskyni, verði
samþykkt í ráðinu. Tillaga Fisch-
er var unnin upp úr vinnu hóps
ríkja sem vilja ná fram málamiðl-
un um veiðarnar og átti Stefán
sæti í hópnum fyrir Íslands hönd.
„Þetta var tiltölulega þröngur
hópur sem vann að þessum mál-
um,“ segir Stefán. „Núna stendur
hins vegar til að leggja þetta í al-
menna umræðu í ráðinu í heild
sinni.“
Samþykki ráðið áframhaldandi
vinnu að málamiðlun er hugsan-
legt að á næsta ári verði lögð fram
tillaga að því að banni við hval-
veiðum í atvinnuskyni verði
aflétt. „Í millitíðinni bíður þó
mikil vinna, meðal annars við að
afla stuðnings við slíkt samkomu-
lag,“ segir Stefán en aukinn meiri-
hluta þarf í ráðinu til þess að
banninu verði hnekkt.
„Þetta eru skref í átt að því
sem við viljum,“ segir Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
„Við þurfum þó að gera málamiðl-
anir og sætta okkur við strangara
eftirlit auk þess að hægar verði
farið í sakirnar en við hefðum
kosið. Ef þetta endar þó með því
að veiðibanninu verði lyft má
segja að það sé þess virði fyrir
okkur að gefa eitthvað eftir. Þess
vegna erum við tilbúin að sam-
þykkja þessa tillögu sem lögð
verður fram á þriðjudaginn.“
Árni er nokkuð bjartsýnn á að
tillagan verði samþykkt. „Ég vona
að það sé nógu mikill vilji til þess
að leysa málið,“ segir Árni. „Þá
gefst líka tími til þess að vinna að
því að ná auknum meirihluta sem
þyrfti kæmi þetta endanlega til
atkvæðagreiðslu á næsta ári.“ ■
HVALSKURÐUR Í HVALFIRÐI Á NÍUNDA ÁRATUGNUM
Formaður sendinefndar Íslands á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins gerir sér vonir um að tillaga um áframhaldandi vinnu að samkomulagi um hvalveiðar í atvinnuskyni verði samþykkt á fundinum.
04-05 18.7.2004 21:18 Page 2