Fréttablaðið - 19.07.2004, Side 6
6 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Ósáttur bóndi í Skriðdal:
Auðlindir á afsláttarverði
FRAMKVÆMDIR „Mér líst auðvitað
ekkert á þessar framkvæmdir.
Þetta eru ferleg vinnubrögð og
Landsvirkjun hefur yfirleitt kom-
ist upp með svona lagað í gegnum
tíðina,“ segir Guðmundur Ár-
mannsson, bóndi á Vaði í Skriðdal.
Landsvirkjun hefur ekki náð
samningum við fimm landeigend-
ur á Héraði vegna línustæðis
fyrir háspennulínur úr Fljótsdal
yfir í Reyðarfjörð. Eiga þessar há-
spennulínur að flytja straum úr
Kárahnjúkavirkjun. Landsvirkjun
mun þá væntanlega fara fram á að
þessar jarðir verði teknir eignar-
námi. Guðmundur býr á einni af
þessum fimm jörðum.
„Það er nú yfirleitt þannig að
einstaklingar standa höllum fæti
á móti lögfræðingaveldi eins og
því sem Landsvirkjun hefur á
sínu bandi. Þannig er mál með
vexti hjá mér að sjálf háspennu-
línan liggur ekki yfir landið mitt
heldur er það aðkomulínan að há-
spennulínunni. Í vetur leituðu
fulltrúar Landsvirkjunar eftir
samningum við mig en ég neitaði
því. Þá féll þetta mál niður en
komst síðan aftur á skrið fyrir
um mánuði síðan,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur lætur þó ekki
deigan síga og er afskaplega
bjartsýnn með framhaldið, enda
dugir ekki annað. „Ég er alltaf
bjartsýnn en þetta er angi af
stærra máli um framkvæmdir
hér á svæðinu og hef ég verið í
baráttu við þær framkvæmdir.
Hér er verið að afhenda auðlind-
ir þjóðarinnar á afsláttarverði,“
segir Guðmundur að lokum. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir forsætisráðherra Palest-ínu?
2Hvað heita íslensku tvíburasysturnarsem eiga tvö lög í bandarísku mynd-
inni The Door in the Floor?
3Hvaða enska fótboltalið hefurMuammar Gaddafi, einræðisherra í
Líbíu, áhuga á að kaupa?
Svörin eru á bls. 34
Missti stjórn á bifreið:
Hlaut lítils-
háttar áverka
UMFERÐARÓHAPP Umferðaróhapp
varð við Fornahvamm í gær-
morgun. Ökumaður bifreiðar
missti stjórn á honum með þeim
afleiðingum að hann fór út af
vegi og lenti í Norðurá.
Notaðar voru klippur til að
koma manninum út úr bifreið
sinni og var hann síðan fluttur
með sjúkraþyrlu til Reykja-
víkur, töluvert slasaður, að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi. Mað-
urinn var lagður inn á slysadeild
Landspítala-háskólasjúkrahúss
og reyndist hann ekki alvarlega
slasaður að sögn vakthafandi
læknis á slysadeild.
Hlúð var að lítilsháttar
áverkum sem maðurinn hafði
fengið í óhappinu og hann saum-
aður í andliti. Því næst var
honum hleypt heim. Bifreiðin er
aftur á móti er mikið skemmd
og gæti verið ónothæf að sögn
lögreglu. ■
BIFREIÐ ÚT AF VEGI Bifreið fór
út af vegi vestur í Ísafjarðar-
djúpi aðfaranótt sunnudags.
Ökumaður missti stjórn á bif-
reið sinni í lausamöl og fór útaf
vegi og eina veltu. Þrennt var í
bílnum en engin slys urðu á
fólki. Ökumaður og farþegar
voru ekki fluttir á sjúkrahús að
sögn lögreglunnar á Ísafirði.
HÁTÍÐAHÖLD Bryggjuhátíð var
haldin á Drangsnesi um helgina
og fór vel fram. Einhver ölvun
var á hátíðinni en engin stór-
vandræði að sökum hennar. Ein
líkamsáras var kærð til lögregl-
unnar á Hólmavík en hún var
ekki alvarleg. Einnig var einn
sem gisti fangageymslur lög-
reglunnar vegna ölvunar. Um-
ferð var til fyrirmyndar á
svæðinu.
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN
Líklegt er að Landsvirkjun taki fimm jarðir eignarnámi vegna línustæðis fyrir háspennu-
línur sem eiga að flytja straum úr Kárahnjúkavirkjun.
Stjórnvöld gagnrýnd
fyrir aðgerðaleysi
Þingmaður Samfylkingar gagnrýnir stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi í byggðamálum. Iðnaðarráð-
herra segir eilífa baráttu að verjast því að ungt fólk flytji búferlum af landsbyggðinni. Bæði eru
þó sammála um að baráttan sé hvergi nærri töpuð.
FÓLKSFJÖLDAÞRÓUN „Það er eilíf
barátta að verjast þessari
þróun,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra. Eins og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær hefur ungu
fólki verið að fækka mikið á
landsbyggðinni síðustu árin og
veldur þróunin forsvarsmönn-
um sveitarfélaganna áhyggjum.
„Til þess að unga fólkið
setjist að á landsbyggðinni
þurfa búsetuhættir að gera það
áhugavert,“ segir Valgerður.
„Ég fullyrði að ungt fólk vill búa
úti á landi en þar þurfa að vera
sambærileg atvinnutækifæri
við það sem gerist á höfuðborg-
arsvæðinu.“
Valgerður segir eflingu bú-
setuskilyrða aðalmarkmið
byggðaáætlunar sem er í gildi
og nefnir álver á Austurlandi
sem dæmi. „Það hefur gert að
verkum að nú þegar er margt
ungt fólk, sem ólst upp fyrir
austan en var sest að á höfuð-
borgarsvæðinu, að flytja aftur
austur.“
Valgerður segir að áfram
verði unnið að slíkum aðgerð-
um. „Þetta er vissulega mismun-
andi milli byggðarlaga en það
eru ákveðin svæði illa sett hvað
varðar ungt fólk,“ segir
Valgerður. Hún segir einnig
aðrar leiðir í undirbúningi til
þess að sporna við þróuninni og
nefnir sem dæmi að taka á flutn-
ingskostnaði til byggðarlaga úti
á landi og eflingu nokkurra
byggðarkjarna á landsbyggð-
inni.
Valgerður fullyrðir að þegar
sjáist árangur. „Við erum farin
að sjá mikinn árangur frá því
sem var þegar búseturöskunin
var sem mest,“ segir Valgerður.
„Þegar maður sér árangur eflir
það okkur í að halda áfram á
sömu braut.“
Kristján Möller, þingmaður
Samfylkingar, gagnrýnir hins
vegar stjórnvöld fyrir aðgerðal-
eysi í byggðamálum. „Við
viljum sjá byggðaáætlun sem
bragð er af, ekki aðeins orð á
blaði eins og verið hefur,“ segir
Kristján. „Það er hægt að búa til
ótal skýrslur og annað slíkt en
fólkið á landsbyggðinni lifir
ekki á skýrslum einum saman.“
Kristján telur að grípa hefði
átt til aðgerða fyrir löngu
síðan. „Menn hafa séð þessa
þróun árum saman og ekkert
gert í því,“ segir Kristján. „Ég
dreg því þá ályktun að ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hafi engan
áhuga á því að grípa til mót-
vægisaðgerða til að sporna við
þróuninni.“ ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Iðnaðarráðherra segir árangur af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
byggðamálum þegar að koma í ljós og nefnir framkvæmdir á
Austurlandi sem dæmi þar sem ungt fólk sé þegar farið að flytja til
baka á æskuslóðirnar.
KRISTJÁN MÖLLER
Þingmaður Samfylkingar gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir stefnuleysi í
byggðamálum. Hann segir reynslu nágrannalanda okkar sýna að
mögulegt er að grípa til aðgerða sem koma í veg fyrir
fólksflutninga af landsbyggðinni.
06-07 18.7.2004 21:08 Page 2