Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 8
8 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Íranir sagðir hafa sett sig í samband við al-Kaída:
Vildu samstarf
um árásir
RANNSÓKN Íranskir embættismenn
settu sig í samband við al-Kaída
eftir árás samtakanna á banda-
ríska herskipið Cole. Vildu írönsk
stjórnvöld eiga samstarf við sam-
tökin um árásir á Bandaríkin í
framtíðinni að því er fram kemur
á vef bandaríska vikublaðsins
Time. Osama bin Laden er sagður
hafa hafnað samstarfi af ótta við
að það kynni að styggja stuðnings-
menn samtakanna í Sádí-Arabíu.
Að sögn tímaritsins er þetta
meðal þess sem kemur fram í
lokaskýrslu nefndarinnar sem
hefur rannsakað aðdraganda
árásanna. Skýrslan verður gerð
opinber á fimmtudag.
Tíu al-Kaídaliðanna sem
rændu flugvélunum sem var
flogið á World Trade Center og
bandaríska varnarmálaráðu-
neytið 11. september 2001 fóru í
gegnum Íran á leið sinni frá
Afganistan til Bandaríkjanna að
því er fram kemur í frétt Time.
Þar segir að írönsk stjórnvöld hafi
fyrirskipað landamæravörðum að
hleypa al-Kaídaliðum inn í landið
frá Afganistan án þess að stimpla
vegabréf þeirra.
Íranar segja þetta uppspuna og
neita því að hafa átt samstarf við
al-Kaída. Það kunni að vera að al-
Kaídaliðar hafi farið yfir landa-
mæri Írans og Afganistans en
ómögulegt sé að fylgast með þeim
öllum. ■
Sprengjum
varpað á Fallujah
Fjórtán létu lífið þegar Bandaríkjamenn gerðu loftárás á meint athvarf hryðju-
verkamanna í Fallujah. Heimamenn segja óbreytta borgara hafa hafst við í hús-
inu. Borgin er orðin mun friðsælli en áður eftir brotthvarf Bandaríkjahers.
FALLUJAH, AP Fjórtán manns létu líf-
ið þegar bandarískar herþotur
gerðu árás á hús í írösku borginni
Fallujah. Bandaríkjamenn segja
húsið hafa verið notað af upp-
reisnarmönnum og að 25 slíkir
hafi verið þar rétt áður en árásin
var gerð. Íbúar í nágrenni hússins
sögðu hins vegar að óbreyttir
borgarar hefðu hafst við í húsinu.
Þetta var í sjötta skipti sem
Bandaríkjamenn gera loftárás á
meint athvarf uppreisnarmanna í
borginni eftir að hersveitir þeirra
héldu frá borginni fyrir tveimur
mánuðum. Þeir segja stuðnings-
menn hryðjuverkamannsins Abu
Musab al-Zarqawi hafast þar við
og nota borgina
sem miðstöð til
árása annars stað-
ar í Írak.
Iyad Allawi,
forsætisráðherra
Íraks, sem hefur
heitið því að brjó-
ta uppreisnar-
menn og hryðju-
verkamenn á bak
aftur í samstarfi við Bandaríkja-
menn samþykkti árásina.
Stutt er síðan borgin var í
fréttunum upp á hvern einasta
dag vegna mannskæðra bardaga.
Ef undan eru skildar loftárásir
Bandaríkjamanna er borgin hins
vegar orðin friðsæl eftir brotth-
varf Bandaríkjahers fyrir tveim-
ur mánuðum. Íbúarnir ferðast um
áhyggjulausir og sofa utandyra að
næturlagi þar sem er aðeins sval-
ara en innandyra. Áður hefði eng-
um dottið í hug að gera það vegna
hættunnar sem fylgdi bardögum
daga og nætur.
Íbúarnir segja borgina ekki
hafa verið friðsamlegri í rúmt ár.
Áhyggjur af því að íslamskir víga-
menn myndu reyna að stjórna
borginni samkvæmt strangasta
trúarbókstaf Kóransins virðast
hafa reynst áhyggjulausar. Eitth-
vað bar á því fyrstu dagana eftir
brotthvarf Bandaríkjamanna en
því lauk fljótt fyrir áhrif hófsam-
ari klerka.
Friður komst á eftir að svoköll-
uð Fallujahsveit, blanda íbúa og
fyrrum foringja í Íraksher, tók að
sér að tryggja frið og reglu í borg-
inni. Meðal þeirra sem slógust í
hópinn voru margir vígamann-
anna sem áður börðust við Banda-
ríkjaher. ■
,,Íbúarnir
segja borg-
ina ekki
hafa verið
friðsamlegri
í rúmt ár.
SVONA ERUM VIÐ
HLUTFALL HÁTÆKNIFRAM-
LEIÐSLU AF HEILDARÚTFLUTN-
INGI LANDSMANNA:
1998 2001 2002
20.5 % 3.2 % 5.5 %
Heimild: Alþjóðabankinn
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
53
51
07
/2
00
4
21. - 28. ágúst
Einstök ferð með viðkomu í Madrid,
Toledo, Salamanca og Segovia, í fylgd
hins snjalla útvarpsmanns og fararstjóra,
Kristins R. Ólafssonar.
Örfá sæti laus vegna forfalla!
Nánari ferðatilhögun á www.uu.is
og í sérferðabæklingi Úrvals-Útsýnar.
Verð: 103.320 kr.
á mann í tvíbýli.
– hefur þú séð DV í dag?
Ætlaði
ekki að
drepa
hann
Stakk vin sinn í
kviðinn til að hefna sín
Filippseyjar:
Herinn fer heim í dag
MANILA, AP Stjórnvöld á Filipps-
eyjum segjast ætla að ljúka heim-
kvaðningu herliðs síns frá Írak í
dag.
Þetta er gert til að bjarga
filippseyskum gísl sem er í haldi
hryðjuverkamanna sem hafa
hótað að hálshöggva hann. Þeir
segjast alls ekki munu láta gísl sinn
lausan fyrr en síðasti filippseyski
hermaðurinn hefur yfirgefið Írak.
Ákvörðun stjórnvalda í Filipps-
eyjum hefur verið harðlega gagn-
rýnd af stjórnvöldum í Bandaríkj-
unum og Ástralíu sem segja að
verið sé að senda hryðjuverka-
mönnum röng skilaboð. ■
OSAMA BIN LADEN
Sagður hafa neitað samstarfi við Írana um árásir á Bandaríkin.
BEÐIST FYRIR
Gloria Arroyo forseti baðst fyrir við messu í gær.
STRÁKAR AÐ LEIK Í FÓTBOLTA
Fyrir tveimur mánuðum var hættulegt að vera utandyra vegna bardaga sem þar geisuðu.
Nú leika drengir sér í fótbolta og fullorðnir ganga áhyggjulausir um göturnar.
SOFIÐ UNDIR BERU LOFTI
Hitinn er svo mikill að margir kjósa að sofa utandyra. Það hefði verið óhugsandi meðan
næturbardagar geisuðu fyrr á árinu.
M
YN
D
IR
/A
P/
AB
D
EL
K
AD
ER
S
A
AD
I
08-09 18.7.2004 21:41 Page 2