Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 11
11MÁNUDAGUR 19. júlí 2004
Bandaríkin og Pakistan:
Tugmilljarða
skuldir afskrifaðar
PAKISTAN, AP Bandaríkjastjórn
hefur afskrifað um 35 milljarða
króna skuld pakistanska ríkis-
ins. Afskriftin er liður í aðstoð
Bandaríkjanna við landið.
Síðan Pakistanar urðu banda-
menn Bandaríkjamanna í stríð-
inu gegn hryðjuverkum hafa
þeir notið sívaxandi aðstoðar. Í
fyrra afskrifaði Bandaríkja-
stjórn ríflega 70 milljarða króna
skuld Pakistana. Þrátt fyrir
afskriftir undanfarinna missera
skuldar pakistanska ríkið
Bandaríkjunum enn um 70 millj-
arða.
Pakistanska ríkisstjórnin á
ennfremur í viðræðum við ráða-
menn í Washington um ríflega 200
milljarða króna efnahagssaðstoð
á næstu fimm árum. Nota á þá
fjármuni meðal annars til þess að
efla atvinnulífið sem og heilbrigð-
is- og menntamál. Búist er við að
samningar takist og ef Bandarík-
jaþing samþykkir aðstoðina fá
Pakistanar fyrstu greiðsluna í
október. ■
LEITA FLEIRI TILRÆÐISMANNA Al-
Kaída reyna líklega að fá til liðs
við sig fólk sem er ekki af ara-
bískum uppruna. Þessu heldur
bandaríska alríkislögreglan, FBI,
fram í viðvörun til bandarískra
löggæslustofnana. Talið er að
slíkt fólk ætti auðveldara með að
gera árásir þar sem síður væri
fylgst með því en aröbum.
RÁÐHERRA NJÓSNARANNA
Nefndin sem hefur rannsakað
aðdraganda árásanna 11. sept-
ember 2001 er sögð ætla að
leggja til að allar bandarískar
leyniþjónustustofnanir verði
settar undir eina stjórn. Þetta
kemur fram í dagblaðinu New
York Times sem segir FBI og
varnarmálaráðuneytið líklega
andvíg tillögunni.
hverju væri gengið þegar vetrar.
Á fundi Landsvirkjunar með
fjölmiðlafólki og verktökum sl.
fimmtudag kom fram að hlutfall
innlendra starfsmanna við heild-
arframkvæmdir vegna virkjunar-
innar sé ívið lægra en upphaf-
legar áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá
er ekki einungis horft til aðalstífl-
unnar við mynni Dimmugljúfra
heldur einnig smíði stöðvarhúss
og tengdra jarðganga, auk tvegg-
ja minni stíflna sem Suðurverk
sér um og nefnast Sauðárdals-
stífla og Desjarstífla. Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkj-
unar sagði að hlutfallið væri ná-
lægt því að vera 30 Íslendingar á
móti hverjum 70 útlendingum, í
stað 40 á móti 60 eins og Lands-
virkjun hafði áætlað í upphafi.
„Menn geta gert áætlanir, en end-
anlegt hlutfall ræðst bara af stöð-
unni á vinnumarkaði,“ sagði
Sigurður Arnalds, verkfræðingur
og kynningarfulltrúi Landsvirkj-
unar vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Gianni Porta sagði að kaup og kjör
væru í samræmi við kjarasamn-
inga hér á landi, þegar hann var
spurður að því hvort launakjör
væru þannig að þau gætu laðað að
Íslendinga til starfa hjá Impreg-
ilo. ■
■ BANDARÍKIN
GEORGE W. BUSH BANDARÍKJAFORSETI
Pakistanska ríkisstjórnin á í viðræðum við ráðamenn í Washington um ríflega
200 millarða króna efnahagssaðstoð á næstu fimm árum.
GIANNI PORTA
Yfirmaður framkvæmda hjá Impregilo
segist feginn vilja ráða Íslendinga til starfa,
en þeir sæki hins vegar ekki mikið í að
vinna við stíflugerðina við Kárahnjúka.
FRIÐRIK SOPHUSSON
Forstjóri Landsvirkjunar var í síðustu viku
að koma í fyrsta sinn á vettvang í að-
flutningsgöngum Kárahnjúkavirkjunar í
Fljótsdal. Hann er á heildina litið ánægður
með gang framkvæmda og segist vongóð-
ur um að verk haldist á áætlun, þó vissu-
lega geti komið upp eitthvað óvænt sem
haft getur áhrif.
10-11 18.7.2004 18:55 Page 3