Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 17
Fyrirgefið mér en ég
botna hvorki upp
eða niður í því hvernig
annars sæmilega skynsamt
fólk getur staðið blygðunar-
laust að því að leggja fram
þetta frumvarp að lögum
sem nú liggur fyrir Alþingi
Fjölmiðlafrumvarpið og tilgangur laga
„Gerðar eru lágmarkskröfur til
laga, að þau séu réttlát, aðgengi-
leg, þau séu birt, séu stöðug, fram-
kvæmanleg, tryggi frið, gefi
skjóta og örugga úrlausn og síðast
en ekki síst að þau tryggi réttar-
öryggi. Að lög séu aðgengileg og
skýr er átt við að þau séu þannig úr
garði gerð að þau séu skiljanleg
sem flestum. Þessi krafa er sérsta-
klega mikilvæg þegar lög eru
íþyngjandi eða skerða frelsi þjóð-
félagsþegnanna, t.d. þegar lög
kveða á um skerðingu á atvinnu-
frelsi“ Þessi skilgreining er komin
frá Sigurði Líndal prófessor. Þetta
eru þau grunnatriði sem lögð eru
til grundvallar kennslu allra byrj-
enda í lögfræði.
Hvert þessara atriða uppfyllir
frumvarpið sem til stendur að
gera að lögum á Alþingi? Hvaða
„réttlæti“ er í því að banna fyrir-
tækjum „með markaðsráðandi
stöðu“ að eiga meira en 10% í fjöl-
miðlafyrirtækjum? Hversu að-
gengilegt og skýrt er þetta ákvæði
„markaðsráðandi staða“? Hversu
„stöðugt“ er það umhverfi þar sem
afturkalla má útvarpsleyfi fyrir-
tækis þremur árum eftir gildis-
töku laganna? Hversu framkvæm-
anleg eru lög þar sem kveðið er á
um skerðingu á atvinnufrelsi með
þessu orðalagi „markaðsráðandi
staða“? Með hvaða hætti tryggja
þessi lög „frið“? Síðast en ekki síst
er líklegt að verði þetta frumvarp
að lögum að þau lög muni gefa
skjóta og örugga úrlausn og
tryggja réttaröryggi? Sýnist okkur
það á umræðunni nú?
Fyrirgefið mér en ég botna
hvorki upp eða niður í því hvernig
annars sæmilega skynsamt fólk
getur staðið blygðunarlaust að því
að leggja fram þetta frumvarp að
lögum sem nú liggur fyrir Alþingi.
Frá því frumvarpið var lagt fram
hafið þið talsmenn ríkisstjórnar
boðið okkur upp á þann málflutn-
ing að hætta steðjaði að og því
þyrfti að setja lög á fjölmiðla án
tafar. Á sama tíma hafið þið ekki
talið sérstaka ástæðu til að skýra
út fyrir okkur sem lifum í þessu
þjóðfélagi líka og erum neytendur
að fjölmiðlum á hverjum degi – í
hverju þessi stórkostlega hætta
felst! Hver er rökstuðningurinn að
baki málinu? Er til of mikils mælst
að þið bendið okkur á hann? Við
Íslendingar höfum lengi búið við
ótrúlega einsleita fjölmiðlaum-
ræðu, þar sem gamaldags flokka-
drættir, mun skyldari trúar-
brögðum en almennri skynsemi,
hafa verið ráðandi. Ég get ekki séð
að stórkostleg breyting hafi orðið
á þessu atriði, nema ef vera skyldi
að þetta hafi skánað aðeins.
Morgunblaðið er ekki lengur sann-
leikurinn með stórum – það er smá
mótvægi þó ekki sé það stórt. Þessi
algjörlega staðnaði markaður –
fjömiðlamarkaðurinn hefur þróast
meira undanfarið ár en hann gerði
í áratugi þar á undan. Af hverju
má ekki leyfa honum að þróast
áfram í friði? ■
17MÁNUDAGUR 19. júlí 2004
Óskiljanlegt
Það er greinarhöfundi óskiljanlegt af
hverju borgaryfirvöld taka þann pól í
hæðina að flytja Hringbrautina, eyði-
leggja mikilvægt og dýrmætt byggingar-
land í Vatnsmýrinni og stefna grósku-
miklu fuglalífi á svæðinu í hættu til að
koma upp byggingum fyrir Landspítalann
þegar allt bendir til að uppbygging í Foss-
vogi sé mun betri kostur, sérstaklega í
ljósi stækkunar höfuðborgarinnar til
austurs. Athuganir skandinavísku fyrir-
tækjanna sem sérhæfa sig í úttektum
sem þessum eru hafðar að engu og má
ætla að skammtímalausnir eigi að víkja
fyrir langtímalausnum í þessu tilfelli. Ef
byggt yrði í Fossvogi er engin spurning að
þar yrði tekið spor í rétta átt hvað varðar
samhæfingu innan spítalans og til lengri
tíma litið blómstrandi háskólastarfsemi
og öflugra rannsókna í þágu lækninga.
Svo ekki sé talað um að halda Vatnsmýr-
inni og að hið fallega hús Landspítalans
við Hringbraut fengi að njóta sín.
Ragnhildur H. Ragnarsdóttir á uf.xf.is
Endurtekin brot
Stöðugleikasáttmála Evrópusambandis
er ætlað að halda fjárlagahalla aðildar-
ríkjanna innan við 3% af vergri lands-
framleiðslu og gerir ráð fyrir að ríkin séu
sektuð fari fjárlagahallinn ítrekað yfir
þau mörk. 3% – reglunni og refsiað-
gerðunum er ætlað að koma í veg fyrir
að léleg fjármálastjórn í einu ríki hafi
áhrif á allt evrusvæðið. Frakkland og
Þýskaland eru nú á góðri leið með að
brjóta þau mörk þriðja árið í röð.
Katrín Helga Hallgrímsdóttir á
deiglan.com
Fljúgandi furðuhlutir
Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um fljúg-
andi furðuhluti, viðtal við Magnús
Skarphéðinsson geimveruáhugamann
ásamt „Geimveru- og geimskipasögum
úr íslenskum raunveruleika“. Einnig er
sagt frá brotlendingu geimskips við
Roswell í Nýju Mexíkó eins og um stað-
reyndir sé að ræða þó í raun sé þetta
einfaldlega samsæriskenning sem
byggir ekki neinum sönnunum. Það er
svo margt sem er rangt í Roswell-grein-
inni að það er ekki skrýtið að blaðamað-
urinn hafi sleppt því að láta nafn sitt við
hana. Það sem gerðist í raun var að
bóndi nokkur fann eitthvað rusl á land-
areign sinni og lét engan vita af því fyrr
en 11 dögum síðar þegar hann heyrði
að fljúgandi furðuhlutir hefðu sést yfir
Washington.
Óli Gneisti á vantru.net
Höfum við misskilið lýðræðið?
Múrverjinn Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður VG, grípur [ummæli] á lofti og
segir: „Svo við byrjum á að ræða
þennan titil þá er hann auðvitað hrein
snilld og vekur óteljandi spurningar.
Hvernig getur niðurstaða atkvæða-
greiðslu orðið röng? Höfum við mis-
skilið lýðræðið allan tímann?“
Og svo einhver svari nú spurningu Katr-
ínar varaformanns: Jú, reyndar ég vil
meina að sósíalistar hafi í gegnum
tíðina einmitt gert það, það er misskilið
lýðræðið svolítið. Að minnsta kosti er
eftirfarandi tilvitnun í Hjörleif Guttorms-
son alltaf jafn grátbrosleg, og löngu
orðin klassísk: „Okkar álit í stuttu máli:
Við álítum, að rétt sé og sjálfsagt að
leyfa ekki umræður né gefa fólki kost á
að velja um neitt nema á grundvelli sós-
íalismans, og þá síst Þjóðverjum. Okkur
er það jafnframt ljóst að „frjálsar kosn-
ingar“ eins og það tíðkast á Vesturlönd-
um, gefa alranga mynd af vilja fólksins“.
Hafsteinn Þór Hauksson á frelsi.is
SIGNÝ SIGURÐARDÓTTIR,
ÁHUGAMAÐUR UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
UMRÆÐAN
FJÖLMIÐLA-
FRUMVARPIÐ
,,
AF NETINU
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ
16-17 Leiðari 18.7.2004 17:00 Page 3