Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 47

Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 47
19MÁNUDAGUR 19. júlí 2004 Það er ungt og leikur sérBRÉF TIL BLAÐSINS www.toyota.is Leigð´ann fyrir 28.700 kr. Corolla Sedan. Á sérstöku sumartilboði! Nú getur þú fengið Corolla Sedan á sérstöku sumartilboði hjá Toyota. Þú getur leigt Corolla Sedan 1,4 á aðeins 28.700 kr. á mánuði í 3 ár. Aðeins er um takmarkað magn bíla að ræða. Hringdu í síma 570 5070, komdu á Nýbýlaveginn, eða hafðu samband við umboðsmenn okkar um land allt strax í dag. ÍS LE N SK A A U G L‡ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 25 30 7 0 7/ 20 04 Ábending frá Neytendasam- tökunum Ólöf Embla Einarsdóttir hdl. skrifar fyrir hönd Neytendasamtakanna: Miðvikudaginn 14. júlí birtist í Fréttablaðinu viðtal við Hafberg Þórisson, stofnanda og eiganda Gróðrarstöðvarinnar Lambhaga við Vesturlandsveg. Í viðtalinu segir Hafberg að vegna erfiðleika við markaðssetningu og verðlagningu á vörunni í upphafi hafi hann sest niður með verslunareigendum og fundið með þeim í sameiningu hvað hvor um sig þyrfti að hafa fyr- ir sinn snúð. Ráðleggingar Hafbergs til þeirra sem leggi út í eitthvað svipað séu því þær að hafa gott samstarf milli þess sem kaupir, þess sem selur og þess sem fram- leiðir. Fyrir 25 árum, er Gróðrarstöðin Lambhagi tók til starfa, voru reglur á sviði samkeppnisréttar mun minna þróaðar en þær eru í dag og ljóst að þeir sem ætla að stofna fyrirtæki núna þurfa að gæta að fleiri atriðum en þá þurfti, m.a. þess að starfa innan ramma sam- keppnislaga. Tíunda grein sam- keppnislaga bannar alla samninga og samþykktir milli fyrirtækja, hvort sem þær eru bindandi eða leiðbeinandi, ef þær hafa að mark- miði eða af þeim leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni, hún sé takmörkuð eða henni raskað. Tekur bannið m.a. til samninga sem hafa áhrif á verð, afslætti, álagningu eða önnur viðskiptakjör með beinum eða óbeinum hætti. Með vísan til framanritaðs telja Neytendasamtökin að stofnendur fyrirtækja ættu að forðast í lengstu lög fundi með öðrum fyrirtækjum um hvað hver þurfi að fá fyrir sinn snúð, enda hætta á að slíkir fundir teldust varða við samkeppnislög. Á sjónvarpsskjánum sjáum við ung- lingspilt sitja við tölvu. Við sjáum aðeins hnakkann á honum og er myndavélin gægist yfir öxlina á honum sjáum við útlimi og höfuð fljúga um á tölvuskjánum. Blóð slettist upp um alla veggi þar sem hann veður um alvopnaður í þessum óhugnanlega heimi og skýtur á allt sem hrærist. Þessi fréttamynd er orðin eins kunnugleg og sú af riðu- veiku kúnni sem veltist um í drullu- svaði einhvers staðar í Bretlandi og andlitsmyndin af klónuðu kindinni Dolly. Fréttaumfjöllun um tölvuleiki snýst að mestu um ofbeldi sem í þeim er að finna og er því er ekki nema von að fólki bregði í brún þegar „könnun á tölvuleikjafíkn unglinga“ leiðir í ljós að „fjórði hver 15 ára strákur á Íslandi er fjóra klukkutíma eða lengur í tölvu- leikjum á dag“ (Hrafn Jökulsson, Bakþankar í Fréttablaðinu 21. júní sl.). Réttast þykir Hrafni að draga þá ályktun að íslenska þjóðin sé að „ala upp heila kynslóð sem er þraut- þjálfuð í manndrápum“. Það er ekkert sem kemur á óvart í umræðu Hrafns Jökulssonar um hættur tölvuleikjanna, röksemda- færsla hans er mjög dæmigerð fyrir þá kynslóð sem ekki ólst upp við tölvuleiki og þekkir þá af slæmu einu saman. Tvennt stendur upp úr í þessari umræðu: annars vegar er sú tilhneiging að setja alla tölvu- leiki undir sama hatt og hins vegar sú sannfæring að leikmenn sem spila svo kallaða fyrstupersónu skotleiki (FPS) séu einangraðir fyrir framan tölvuskjá – þrautþjálf- aðar drápsvélar framtíðarinnar. Sannleikurinn er sá að tölvuleik- ir eru jafn margbreytilegir og fólkið sem spilar þá. Það er einfald- lega ekki hægt að halda því fram að af því að einn af hverjum fjórum fimmtán ára piltum spilar tölvuleiki að herdeildir framtíðarinnar séu í sköpun. Í þessum dramatíska mál- flutningi kemur til dæmis hvergi fram hvaða leiki þessir drengir eru eru að spila! Eru þeir að þrífa bað- herbergið í The Sims, fletta spilum í Solitaire, kaupa og selja fótbolta- menn í Championship Manager eða að reyna að verða Jedi riddari i Star Wars Galaxies? Allt ólíkar leiðir til skemmtunar en eiga sameiginlegt að falla undir flokkinn tölvuleikir og þess vegna fordæmdar af for- eldrum og þeim sem eldri eru. Ef svo skyldi vilja til að blessuð börnin væru að bjarga gíslum úr klóm hryðjuverkamanna í Counter Strike (CS) eins og mörg hver legg- ja stund á virðist leiðin til glötunar vera hrein og bein ef marka má ríkjandi umræðu í þjóðfélaginu. CS er nefnilega einn af hinum ógurlegu fyrstupersónu skotleikjum (FPS) sem hafa orðið gífurlega vinsælir sérstaklega eftir að hægt var að spila þá á netinu. Þar skipta leik- menn sér upp í lið og spila leikinn til að ná ákveðnu markmiði sem gæti til dæmis verið að bjarga gíslum eða að aftengja sprengju. Þá kemur í hlut hins liðsins að verja bæði gísl- ana og sprengjuna þangað til tíminn er uppurinn. Yfirleitt falla margir í valinn í þessum leikjum, alveg eins og í skák þar sem peðum, riddurum og hrókum er miskunnarlaust sópað út af borðinu í sókn að kónginum sjálfum. Eins og í skák þarf gífurlega æf- ingu til að verða góður í CS, leikur- inn snýst ekki einungis um að hlaupa um og skjóta á allt sem hreyfist. Liðið þarf að skipuleggja sig vel, leikmenn þurfa að hafa gott vald á samhæfingu augna og handa og vera fljótir til. Leikir eins og CS krefjast mikilla pælinga og leik- menn þurfa að þjálfa upp með sér kænsku, útsjónarsemi og rökhugs- un ef vel á að ganga. Þessir leikir eru mjög félagsleg- ir í eðli sínu, leikmenn geta spjallað sín á milli inni í leiknum, sem og á spjallborðum og á Internetinu. Leik- jakeppnir eru haldnar hérlendis og erlendis og gefst keppendum þá kostur á að hitta aðra leikmenn og ræða tækni og fleira sem brennur á þeim í hvert skipti. Ég tel að foreldrar geti verið alveg rólegir yfir því að börn þeirra spili tölvuleiki svo lengi sem regl- um um aldurstakmörk er fylgt. Ég vil líka eindregið mæla með því að foreldrar sýndu leikjum áhuga og tækju jafnvel þátt, því margir eru hin besta skemmtun. Á þann hátt geta þau nálgast krakkana á þeirra plani, fylgst með og lagt eitthvað til málanna. Ég tel að best sé að for- eldrar meti sjálfir, og byggi þá helst á eigin reynslu, hvað börnunum er fyrir bestu en láti hræðsluáróður sem vind um eyru þjóta. Það síðasta sem ég vil leggja til er að fólk taki sér andartak til að hugsa um hvort að ofbeldi og stríðs- brölt hafi í raun og veru byrjað með tilkomu tölvuleikja. Hvar lærðu menn hér áður fyrr herkænsku og manndráp? Var það kannski í hinum aldagamla stríðsleik skákinni, þeim leik sem hefur alltaf þótt endur- spegla gáfur og mikilfengleik and- ans? Eða er málið kannski ekki svo einfalt? ■ Ég tel að foreldrar geti verið alveg róleg- ir yfir því að börn þeirra spili tölvuleiki svo lengi sem reglum um aldurstakmörk er fylgt. Ég vil líka eindregið mæla með því að foreldrar sýndu leikjum áhuga og tækju jafnvel þátt, því margir eru hin besta skemmtun ÞÓRDÍS SVEINSDÓTTIR, DOKTORSNEMI Í FÉLAGSFRÆÐI. UMRÆÐAN TÖLVULEIKIR ,, TÖLVULEIKUR Þótt margir tölvuleikir snúist um ofbeldi eru þeir í reynd jafn margbreytilegir og fólkið sem spilar þá segir greinarhöfundur 18-47 (18-19) Umræðan 18.7.2004 16:10 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.