Fréttablaðið - 19.07.2004, Page 50
22 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Við mælum með...
... að íslenska karlalandsliðið í fótbolta fari að finna sér and-
stæðinga við hæfi. Liðið hefur ekki unnið leik síðan 20.
ágúst á síðasta ári en þá lagði það Færeyinga að velli í
Þórshöfn. Síðan þá hefur það leikið sjö landsleiki, gert tvö jafntefli og
tapað fimm. Ekki er búist við sigri í næsta leik gegn Ítölum í ágúst. sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
16 17 18 19 20 21 22
Mánudagur
JÚLÍ
Að vera eða vera ekki
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal,
segist vera fullviss um að Patrick Vieira verði
áfram hjá Arsenal og fari ekki til Real Madrid
jafnvel þótt Vieira hafi tæmt skáp sinn á
æfingasvæði félagins og hvatt starfsmennina.
Vissir þú...
...að Björgólfur Takefusa, framherji Fylkis, sko-
raði þrjú mörk síðast þegar hann mætti FH-
vörninni í Kaplakrika. Það var með Þrótturum
í fyrra en Fylkismenn sækja FH-inga heim í
kvöld í toppslag Landsbankadeildarinnar.
■ ■ LEIKIR
19.15 Grindavík og ÍA mætast á
Grindavíkurvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
20.00 FH og Fylkir mætast í
Kaplakrika í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
20.00 Stjarnan og Fjölnir mætast
á Stjörnuvelli í Landsbankadeild
kvenna í fótbolta.
20.00 Þór/KA/KS og Breiðablik
mætast á Akureyrarvelli í
Landsbankadeild kvenna í fót-
bolta
■ ■ SJÓNVARP
10.00 Suður Ameríku-bikarinn á
Sýn. Sýnt frá leik Mexíkó og
Brasilíu í átta liða úrslitum Suður
Ameríku-bikarsins í fótbolta.
16.35 Fótboltakvöld á RÚV.
Endurtekinn þáttur frá kvöldinu
áður.
16.50 Helgarsportið á RÚV.
Endurtekinn þáttur.
15.55 Suður Ameríku-bikarinn á
Sýn.
19.25 Íslensku mörkin á Sýn.
19.45 Íslenski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik FH og Fylkis í
Landsbankadeild karla í fótbolta.
22.00 Stjörnugolf 2004 á Sýn.
CAPAROL einangrunarmúrkerfi.
Einangrun að utan, heil hús eða að hluta.
40-60 % ódýrara en önnur einangrunarklæðning.
Auðveldara í viðhaldi. Gæðavottað af RB og
Brunamálastofnun
CAPAROL í stað málningar.
Fyrir viðhald á gamalli skeljasandsklæðningu og þar
sem hús eru mikið sprungin eða illa farin.
Fyllir í smáar sprungur og gefur húsinu jafna áferð.
Yfirmúr í öllum litum NCS litakerfisins.
Smiðjuvegi 44 200 Kóp. s: 5346160
flotefni@flotefni.is www.flotefni.is
CAPAROL
FYRIR ALLAR AÐSTÆÐUR
ÓL Í AÞENU 2004 Það styttist óðum í að
Ólympíuleikarnir hefjist í Aþenu í
Grikklandi en 28. Ólympíuleikar
sögunnar verða settir þar
13.ágúst næstkomandi. Nokkuð
góð mynd er að komast á íslenska
hópinn og í dag hafa 26 íslenskir
íþróttamenn náð þeim lágmörkum
sem til þarf til að komast á leik-
ana.
Á leikana í Syndey fyrir fjór-
um árum fóru 18 íslenskir kepp-
endur, allir í einstaklingsgreinum
en ellefu einstaklingsíþróttamenn
hafa nú unnið sér sæti í íslenska
Ólympíuliðinu. Af þessum 26 sem
eru komnir inn nú eru 15 hand-
knattleiksmenn sem mega vera
skráðir til leiks en Guðmundur
Guðmundsson, landsliðsþjálfari
hefur þó enn ekki ákveðið lokahóp
sinn á leikunum. Tuttugu leik-
menn berjast þar ennþá um þessi
sæti sem eru laus í liðinu.
Sjö sundmenn hafa náð að
synda undir settum lágmörkum
og tveir frjálsíþróttamenn, þau
Þórey Edda Elísdóttir og Jón
Arnar Magnússon hafa náð lág-
mörkum í sínum greinum. Rúnar
Alexandersson keppir í fimleik-
um en hann náði að tryggja sig inn
á leikana á Heimameistaramótinu
í ágúst 2003 og Hafsteinn Ægir
Geirsson mun keppa í siglingum,
en hann fékk boð um það á
dögunum frá Alþjóða Siglinga-
sambandinu. Vonir eru bundnar
við að fjölgað gæti í hópnum því
sundmenn hafa frest til dagsins í
dag til að ná sínum lágmörkum og
frjálsíþróttamenn hafa frest til 9.
ágúst til að ná sínum lágmörkum.
Með þessum 26 íþróttamönn-
um munu fara 19 aðstoðarmenn;
fararstjórar, flokksstjórar, lækn-
ir, sjúkraþjálfarar, sálfræðingur,
þjálfarar og aðstoðarþjálfarar.
Fararstjórn ÍSÍ ásamt flokksstjór-
um og þjálfurum hefur í allan vet-
ur haldið reglulega fundi til að,
bæði miðla upplýsingum og eins
til að efla samstöðu innan hópsins
og hefur það gengið vel.
Ólympíuleikarnir í Sydney
voru mjög minnisstæðir því þar
varð Vala Flosadóttir fyrsta
konan og aðeins þriðji íslenski
íþróttamaðurinn til að vinna til
verðlauna á Ólympíuleikum þegar
hún vann brons í stangarstökki.
Vilhjálmur Einarsson vann silfur í
þrístökki í Melbourne 1956 og
Bjarni Friðriksson vann brons í
júdó í Los Angeles fyrir tuttugu
árum síðan.
ooj@frettabladid.is
ÍSLENSKIR ÍÞRÓTTAMENN Á ÓL
Í AÞENU:
Handknattleikur: Íslenska karlalandsliðið -
Keppendur 15
Fimleikar: Rúnar Alexandersson
Frjálsíþróttir: Jón Arnar Magnússon og
Þórey Edda Elísdóttir
Sund: - Keppendur 7
- Örn Arnarson (50m skriðsund, 100m
skriðsund, 100m baksund, 100m flug-
sund, 200m fjórsund)
- Jakob Jóhann Sveinsson (100m bringu-
sund, 200m bringusund)
- Íris Edda Heimisdóttir (100m bringu-
sund)
- Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir (50m skrið-
sund, 100m skriðsund, 100m flugsund)
- Lára Hrund Bjargardóttir (200m skrið-
sund, 200m fjórsund)
- Ragnheiður Ragnarsdóttir (50m skrið-
sund, 100m skriðsund)
- Hjörtur Már Reynisson (100m flugsund)
Siglingar: Hafsteinn Ægir Geirsson
FJÖLDI ÍSLENSKRA KEPPENDA
Á SÍÐUSTU TÍU LEIKJUM:
Sydney 2000 18 (Flestir í sundi - 9)
Atlanta 1996 9 (Flestir í sundi og frjálsum
- 3)
Barcelona 1992 30 (Flestir í handbolta -
16)
Seoul 1988 30 (Flestir í handbolta - 16)
Los Angeles 1984 30 (Flestir í handbolta
- 15)
Moskva 1980 9 (Flestir í frjálsum - 4)
Montreal 1976 13 (Flestir í frjálsum - 7)
Munchen 1972 26 (Flestir í handbolta -
16)
26 íþróttamenn komnir með
farseðilinn til Aþenu
Íslenski Ólympíuhópurinn er farinn að fá á sig mynd þegar aðeins 25 dagar eru þangað til að
Ólympíuleikarnir í Aþenu verða settir
BRONSSTÖKK VÖLU Vala Flosadóttir vann brons á síðustu leikum sem fóru fram í
Sidney fyrir fjórum árum.
50-51 (22-23) sport 18.7.2004 18:56 Page 2