Fréttablaðið - 19.07.2004, Side 51
MÁNUDAGUR 19. júlí 2004 23
RÉÐU EKKERT VIÐ MARGRÉTI LÁRU Margrét Lára Viðarsdóttir leikur hér á varnar-
mann FH í 7–1 sigri ÍBV í gær. Margrét Lára skoraði fimm af mörkum Eyjaliðsins.
0–1 Margrét Lára Viðarsdóttir 13.
1–1 Lind Hrafnsdóttir 28.
1–2 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti 39.
1–3 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti 62.
1–4 Margrét Lára Viðarsdóttir 72.
1–5 Rachel Kruze 78.
1–6 Olga Færseth 79.
1–7 Margrét Lára Viðarsdóttir 88.
BEST Á VELLINUM
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 2–39 (1–25)
Horn 0–9
Aukaspyrnur fengnar 15–5
Rangstöður 1–5
MJÖG GÓÐAR
Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV
GÓÐAR
Valdís Rögnvaldsdóttir FH
Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir FH
Rachel Kruze ÍBV
Elín Anna Steinarsdóttir ÍBV
Olga Færseth ÍBV
Elena Einisdóttir ÍBV
Michelle Barr ÍBV
Mihairi Gilmour ÍBV
1-7
FH ÍBV
Valur 9 8 1 0 32–4 25
ÍBV 9 6 2 1 47–7 20
KR 9 6 2 1 37–10 20
Breiðablik 8 3 0 5 11–23 9
Stjarnan 8 1 4 3 11–27 7
Þór/KA/KS 7 1 3 3 8–21 6
FH 8 1 1 6 6–43 4
Fjölnir 8 0 1 7 3–20 1
MARKAHÆSTAR
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 18
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 12
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 10
Olga Færseth, ÍBV 10
Guðlaug Jónsdóttir, KR 8
Elín Anna Steinarsdóttir, ÍBV 7
NÆSTU LEIKIR
Stjarnan – Fjölnir mán. 19. júlí 20.00
Þór/KA/KS–Breiðablik mán. 19. júlí 20.00
FH – Þór/KA/KS mán. 26. júlí 20.00
ÍBV-liðið hefur endurheimt 2. sætið í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu:
Við erum ekki búnar að
missa af meistaratitlinum
FÓTBOLTI „Ég hef aldrei skorað
fimm mörk áður í deildinni
þannig að þetta var áfangi fyrir
mig. Þetta lá bara fyrir mér í
dag,“ sagði hæversk Margrét
Lára Viðarsdóttir eftir að hún
hafði skorað fimm af sjö mörkum
Eyjaliðsins í 1-7 sigri á FH í gær.
Með sigrinum komst ÍBV -liðið
upp fyrir KR í annað sætið og með
mörkunum fimm er Margrét Lára
komin með 18 mörk og sex marka
forskot í baráttunni um marka-
kóngstitilinn.
„Auðvitað er svo sem hægt að
setja sér það markmið að verða
markahæst fyrst ég er komin
svona langt en þetta er ekkert
sem er að búa til neina pressu á
mig. Það er bara bónus fyrir mig
að eignast gullskóinn,“ sagði hin
stórskemmtilega Margrét Lára
sem er ekkert búin að gefa Íslands-
meistaratitilinn upp á bátinn.
„Ég myndi ekki segja að við
værum búnar að missa af titlin-
um. Við vitum það að Valur þarf
bara að misstíga sig einu sinni og
þá erum við aftur komnar inn í
þetta. Við ætlum bara að klára
okkar leiki og sjá síðan til hvað
það fleytir okkur langt. Það voru
mikil vonbrigði fyrir okkur að
tapa fyrir Val en svona er bara
fótboltinn og við verðum bara að
halda áfram,“ sagði Margrét Lára
en ÍBV er nú fimm stigum á eftir
toppliði Vals þegar liðin eiga
fimm leiki eftir.
Tvö af mörkum Margrétar
Láru voru úr vítum og lengi vel
gekk Eyjaliðinu illa að opna FH-
vörnina. Þegar Margrét Lára inn-
siglaði þrennu sína missti FH-lið-
ið móðinn og eftirleikurinn var
auðveldur.
Þessi leikur var skylduverk
fyrir ÍBV-liðið og hafði það
nokkur áhrif á leikgleði og spila-
mennskuna sem var andlaus langt
fram eftir leik. Endakaflinn var
hinsvegar góður og sá til þess að
munurinn endaði í sjö mörkum. ■
[ STAÐAN ]
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
50-51 (22-23) sport 18.7.2004 20:23 Page 3