Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 51

Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 51
MÁNUDAGUR 19. júlí 2004 23 RÉÐU EKKERT VIÐ MARGRÉTI LÁRU Margrét Lára Viðarsdóttir leikur hér á varnar- mann FH í 7–1 sigri ÍBV í gær. Margrét Lára skoraði fimm af mörkum Eyjaliðsins. 0–1 Margrét Lára Viðarsdóttir 13. 1–1 Lind Hrafnsdóttir 28. 1–2 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti 39. 1–3 Margrét Lára Viðarsdóttir, víti 62. 1–4 Margrét Lára Viðarsdóttir 72. 1–5 Rachel Kruze 78. 1–6 Olga Færseth 79. 1–7 Margrét Lára Viðarsdóttir 88. BEST Á VELLINUM Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 2–39 (1–25) Horn 0–9 Aukaspyrnur fengnar 15–5 Rangstöður 1–5 MJÖG GÓÐAR Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV GÓÐAR Valdís Rögnvaldsdóttir FH Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir FH Rachel Kruze ÍBV Elín Anna Steinarsdóttir ÍBV Olga Færseth ÍBV Elena Einisdóttir ÍBV Michelle Barr ÍBV Mihairi Gilmour ÍBV 1-7 FH ÍBV Valur 9 8 1 0 32–4 25 ÍBV 9 6 2 1 47–7 20 KR 9 6 2 1 37–10 20 Breiðablik 8 3 0 5 11–23 9 Stjarnan 8 1 4 3 11–27 7 Þór/KA/KS 7 1 3 3 8–21 6 FH 8 1 1 6 6–43 4 Fjölnir 8 0 1 7 3–20 1 MARKAHÆSTAR Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 18 Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 12 Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 10 Olga Færseth, ÍBV 10 Guðlaug Jónsdóttir, KR 8 Elín Anna Steinarsdóttir, ÍBV 7 NÆSTU LEIKIR Stjarnan – Fjölnir mán. 19. júlí 20.00 Þór/KA/KS–Breiðablik mán. 19. júlí 20.00 FH – Þór/KA/KS mán. 26. júlí 20.00 ÍBV-liðið hefur endurheimt 2. sætið í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu: Við erum ekki búnar að missa af meistaratitlinum FÓTBOLTI „Ég hef aldrei skorað fimm mörk áður í deildinni þannig að þetta var áfangi fyrir mig. Þetta lá bara fyrir mér í dag,“ sagði hæversk Margrét Lára Viðarsdóttir eftir að hún hafði skorað fimm af sjö mörkum Eyjaliðsins í 1-7 sigri á FH í gær. Með sigrinum komst ÍBV -liðið upp fyrir KR í annað sætið og með mörkunum fimm er Margrét Lára komin með 18 mörk og sex marka forskot í baráttunni um marka- kóngstitilinn. „Auðvitað er svo sem hægt að setja sér það markmið að verða markahæst fyrst ég er komin svona langt en þetta er ekkert sem er að búa til neina pressu á mig. Það er bara bónus fyrir mig að eignast gullskóinn,“ sagði hin stórskemmtilega Margrét Lára sem er ekkert búin að gefa Íslands- meistaratitilinn upp á bátinn. „Ég myndi ekki segja að við værum búnar að missa af titlin- um. Við vitum það að Valur þarf bara að misstíga sig einu sinni og þá erum við aftur komnar inn í þetta. Við ætlum bara að klára okkar leiki og sjá síðan til hvað það fleytir okkur langt. Það voru mikil vonbrigði fyrir okkur að tapa fyrir Val en svona er bara fótboltinn og við verðum bara að halda áfram,“ sagði Margrét Lára en ÍBV er nú fimm stigum á eftir toppliði Vals þegar liðin eiga fimm leiki eftir. Tvö af mörkum Margrétar Láru voru úr vítum og lengi vel gekk Eyjaliðinu illa að opna FH- vörnina. Þegar Margrét Lára inn- siglaði þrennu sína missti FH-lið- ið móðinn og eftirleikurinn var auðveldur. Þessi leikur var skylduverk fyrir ÍBV-liðið og hafði það nokkur áhrif á leikgleði og spila- mennskuna sem var andlaus langt fram eftir leik. Endakaflinn var hinsvegar góður og sá til þess að munurinn endaði í sjö mörkum. ■ [ STAÐAN ] FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R 50-51 (22-23) sport 18.7.2004 20:23 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.