Tíminn - 28.01.1973, Side 31

Tíminn - 28.01.1973, Side 31
Sunnudagur 28. janúar 1973 TÍMINN 31 peninganna vegna, að Kirsten tók starfið. Það sama gildir um nánast alla slíka sjálfboðaliða, þar sem þeir eru oftast menntað fólk og með starfreynslu, sem fá miklu hærra launuð störf i sinum heimalöndum. Kirsten fær 105 „kwacha” eða um 13.500 krónur (isl.) á mánuði i kaup, og auk þess um 4.500 krónur, sem settar eru i banka i Zambiu. Alls er mánaðarkaup hennar þvi um 18 þúsund krónur. Samingstimi hennar voru tvö ár, en henni likar starfið svo vel, að hún hyggst lengja samninginn um eitt ár. Er hún kemur heim til Danmerkur haustið 1974, verður hún þvi búin að spara saman um 140 þúsund krónur. Þess ber að geta, aö auk kaupsins hefur Kirsten ýmis hlunnindi í Zambiu. Má þar nefna fritt húsnæði, sima o.þ.h., ókeypis lækna- og tannlæknaþjónustu o.fl. Hún segist hafa það gott, og að ekki sé hægt að kvarta yfir fjár- hag eða félagslegum skilyrðum. Starfið er strangt og mikið. Hvern mánudag flýgur Kirsten ásamt lækni út í eitt sjúkraskýlið og er þar fram á föstudagskvöld. Stundum verða þau að vera tvær vikur samfleytt á sama stað. Frá sjúkraskýlunum aka þau út til fólks sem ekki kemst sjálft til þeirra. Fara þau ýmist á bil eða vélhjólum. Stundum skapast vandræði, sérstaklega á regn- timanum, þegar þau eiga á hættu að sitja föst i leðju. En þau þurfa að fara um, einnig til hinna af- skekktustu staða. Það er nefni- lega þannig, ,,að þegar Múhameð kemur ekki til fjallsins, veröur fjallið að fara til Múhameðs. Komi börnin ekki til bólu- setningar, verða læknarnir og hjúkrunarkonurnar að fara sjálf til barnanna. Mikilvægasta hlutverkið er að vinna að heilbrigði barnanna. Er það m.a. gert með þvi að bólu- setja þau Þau eru sprautuð og þeim gefnar töflur gegn stif- krampa, kighósta, mislingum, bólusótt, lömunarveiki, barna- veiki o.fl. En þegar barnið hefur veriö sprautað i fyrsta skipti og móðirin fer með það heim, veikist barnið, fær hita og kastar upp. Þá segir húsbóndinn gjarna: — Þarna sérðu. Barnið okkar verður sjúkt, þegar þú ferð með þaö til hvitu konunnar. Þú mátt ekki fara til hennar framar! Og Kirsten segir: — Þess vegna verðum við að fara út i litlu þorpin og reyna aö koma bólu- setningum okkar við þar. Annars verður allt tilgangslaust. Og iskyggilega mörg börn eru illa nærð eöa vannærð. Ungbarna- dauðinn er hroðalega hár. Tveir sjúkdómar eru i raun lifshættu- legir. Það eru maramus og kwashiokor. Þau börn, sem haía fyrrnefnda sjúkdóminn, eru al- gjörlega vannærð. Þau skortir allt: næringarefni, steinefni og vitamin. Þau eru óhuggulega horuð og deyfðarleg. Lita út eins og niræðir öldungar. »Það er hörmulegt að sjá þau. Kwashiokor-börnin fá ranga næringu. Þau hafa uppþembdan maga, hendur og fætur, granna arma og læri. Og blóðrásin er svo slæm, að jafnvel allraminnstu sárin eiga erfitt með að gróa. Þessir sjúkdómar koma einkum til vegna vanþekkingar. Ef við bendúm á kwashiokar- barn og segjum við móðurina: — Þú verður að gefa barni þinu betri mat, mat, sem gerir það kvikt og heilbrigt. En móðir brosir bara og bendir á magamikið barnið: — Já en systir sjáðu hvað það hefur sór- an og fallegan maga. Það hlýtur að vera heilbrigt þegarmaginn er svona stór. Eini maturinn, sem búinn er til, — en það skeður aðeins einu sinni á dag, — er svonefndur nschima. Þetta er grautur, sem búinn er til úr möluðum mais og inniheldur aðeins kolvetni, þ.e. stifelsi. Engum eggjahvituefnum er fyrir að fara. Þennan mat fá börnin i Zambiu yfirleitt,og ekkert annað Eyrsta áriö eftir fæðingu fær barnið að visu móðurmjólk, ef einhver ,,nyt” er i móðurinni á annað borð. En barnafjöldinn er mikill, og þegar næsta barn fæöist, fær eldra barniö ekki lengur brjóst, heldur veröur að éta sinn maisgraut. Atvinnulífið skapar festu fremur en skólarnir „Hér sér maður ein- hvern ávöxt þrátt fyrir allt Kirsten Röen hefur þannig orðið fyrir mörgu miður skemmtilegu, meðan hún hefur dvalið i Zambiu.Enhinar jákvæðu hliðar eru einnig til staðar. — Annars hefði ég ekki haldið þetta út dag eftir dag, segir hún — Þetta er dásamlegt starf. Ég fæ að sjá stóran hluta landsins, sem er afar fallegt. Ég á einnig fjölda vina, bæði gegnum starfið og per- sónulega. Ég hef ástæðu til að vera þakklát fyrir það að fá þetta tækifæri. Það er ánægulegt til þess að vita, að maður skuli geta hjálpað svo mörgum, linað sárs- auka, læknað sjúkdóma og gert börnin heilbrigð. Þetta get ég einnig gert heima i Danmörk. En hér er raunveru- lega þörf fyrir mann. Hér sér maður einhvern verulegan árangur af starfi sinu þrátt fyrir allt. -Stp. Þetta ástand skapast ekki einvöröungu 'vegna van- þekkingar, heldur að jafn miklu leyti vegna hinnar miklu, land- lægu fátæktar. Kýr eru fáar i Zambiu og þar meö litiö um mjólk. Möguleiki er á þurrmjólk, en hún er i flestum tilfellum of dýr. Um fisk er vart hægt að tala nema á þeim fáu stöðum, þar sem frumstæðar fiskveiðar eru stundaöar. Kjöt er dýrt og geymist illa vegna hins mikla hita og lélegs umbúnaðar. Mislingar og malaria leiða afar oft til dauða barna Fólk óttast mislinga mjög i Zambiu. Fjöldi mislingatilfella hjá börnum, er leiða til dauða, er geysilegur. Börnin hafa ekkert mótstöðuafl vegna einhæfrar og lélegrar fæðu. Þau verða jafn- hliða öðrum sjúkdómum að bráð, mörg fá lungnabólgu — og svo deyja þau. Sömu sögu er að segja um malariu. Af og til ganga gifurlegir faraldar yfir, sem verða börnum að bana i hrönnum. Hjúkrunarfólkiö gefur þeim töflur, sem draga nokkuö úr djöfulgangi sjúkdómsins, en koma ekki I veg fyrir hann. Þá skapa lyfin einnig mótstöðuafl i likama barnanna, sem þau njóta lengi, — ef þau lifa á annað borð af sjúkdóminn. — Stundum liggur manni við að örvænta, segir Kirsten. Þegar Kirsten er við hjúkrunarstörf, hefur hún með sér túlk, sem er einnig eins konar læknislegur aðstoðarmaður, sem gerir oft fyrst grófa frumrann- sókn á börnunum. Enskan hans er fremur slök, svo misskilningur getur auðveldlega átt sér stað milli þeirra. En mestu skiptir þó að hugsunarháttur Afrikumanna er allt annar en Evrópumanna. Enda þótt Kirsten eigi mest samskipti við konurnar, mæður hinna sjúku barna, ráða þær engu um börnin. Það er allt á valdi eiginmannsins, húsbóndans. Hann ákveður hvort ástæða sé að fara með barnið til læknis. Ef honum þykir svo, þá segir hann konunni venjulega að fara til töfralæknanna. Kirsten: — Ef þessir bansettir töfralæknar væru ekki til staðar, gætum við bjargað miklu fleiri börnum, og rödd hennar skelfur af innibyrgðri reiði. Það er ekki til skaða að hjúkrunarfólkið er hvitt. Fólk kemur oft mikið til vegna forvitni. Það sem gerir húkrunarfólkinu hins vegar erfitt fyrir er, að ibúarnir eru hræddir og tortryggnir við allt, sem hefur meö læknsihjálp að gera. Og þaö er ef til vill ekki svo undarlegt — þeir hafa aldrei þekkt til slikrar hjálpar fyrr. Kirsten að störfum i sjúkramiðstöðinni I Ndola. Maður að nafni Amanuensis Edvard Befring hefur gert könnun á félagslegri samsetningu þeirra unglinga, sem menn mæta daglega á götum Oslóborgar, hvaða þeir koma úr þjóðfélaginu, viðhorfum þeirra og hvað þeir hafa fyrir stafni. Það kom i ljós að þeir, sem voru i föstu starfi, virtust kunna lifinu bezt og vera ánægöastir. Hinir at- vinnulausu virtust eiga erfiðast og vera haldnir mestri óánægju, en skólafólk var einhvers staðar mitt á milli hinna tveggja fyrr- nefndu hópa. 40% af unglingunum sem spurðir voru höfðu einhver tengsl viö iþrótta- eða aðra tómstunda- klúbba. Þessi tengsl urðu lausari eftir þvi sem aldurinn hækkaði. Það litur út fyrir að fólk sem er tengt litlum félagslegum böndum taki helzt þátt i mótmælaað- gerðum o.þ.u.l. og þeir sem tengdir eru atvinnulifinu taka einna sizt þátt i sliku. Þannig virðist þátttaka i atvinnulifinu skapa meiri festu hjá unglingum en skólarnir. Verið að bera sjúkling i eina af hinum fimm Briton Normand Islander — flugvéla Fluglæknaþjónustu Zambiu. Það sýndi sig að hópurinn var nokkurs konar þverskurður af Oslóarunglingum, einna helzt skorti á fulltrúa menntaskóla- nema. Meðalaldur unglinganna á götunni var 17,3 ár hjá drengjum, en litiö eitt lægri hjá stúlkum. Kirsten hefur snotra leigufria Ibúö I Ndola, — Starfið er dásamlegt. Eg eignast fjöida vina gegnum þaö, auk þess að kynnast vel landi og þjóð . Hér leggur maður raunverulega eitthvað af mörkum. Rannsóknin beindist nokkuð aö kannabisnotkun og sýndist sem kannabisneyzla væri oft samhliða öðru ólöglegu atferli viðkomandi unglings.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.