Tíminn - 04.02.1973, Síða 6

Tíminn - 04.02.1973, Síða 6
Umsvifamikil starfsemi á sviði lyfjagerðar og innflutnings á lyfjum og Ijósmyndavörum Fyrirtækið Stefán Thorarensen h.f. var stofnað 8. april 1944 til að taka að sér lyfjainnflutning þann og lyfjasölu, sem rekinn hafði verið i Laugavegs Apó- teki af Stefáni Thorarensen apótekara þar, einkum vegna þarfa sjúkrahúsa, héraðslækna og annarra apóteka. Starfssvið félagsins og tilgangur var og er sá að útvega lyf frá ýmsum löndum, og hafa jafnan fyrirliggjandi allar helztu nauðsynjar apóteka og héraðslækna, svo sem erlend sérlyf og ýmsar er- lendar efnisvörur ásamt hjúkrunarvörum, og sjá um heildsölu og dreifingu á þeim lyfjum, sem fram- leidd eru hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur um margra ára skeið verið einn aðal-innflytjandi og heildsali lyfja hér á landi, og er raunar brautryðjandi á þvi sviði. Það hefur ekki larið varhluta af ýmsum byrjunarörðugleikum, og skipulagsleysi þessara máia hér á landi lengst af hefur staðið þvi fyrir þrifum. Árið 1963 voru hins vegar sett ný lög, þar sem þessum málum eru gerð góð skil. Stefán Thorarensen h.f. hefur umboð fyrir marg- ar þekklustu lyfjaverksmiðjur heimsins en auk þess hefur fyrirtækið umboð fyrir ljósmyndafyrirtækið Agfa-Gevaert A.G., svo og nokkur önnur fyrirtæki á sviði ljósmyndatækni. Fréttamaður Timans fór á stúf- ana nú fyrir skömmu til að kynn- ast starfsemi þessa fyrirtækis, og hittiaðmáli þá Sigurð Jörgensson framkvæmdastjóra fyrirtækisins og HilmarHelgason, sölustjóra i ljósmyndavörudeild, en þeir leiða okkur i allan sannleika um viða- mikla starfsemi þessa innflutn- ings- og heildsölufyrirtækis, sem hefur ásamt dótturfyrirtækjum' á sinum snærum 35starfsmenn að jafnaði. Umsvilamikil lyfjagerð Fyrst ræðum við við Sigurð Jörgensson um starisemi lyfja- deildar: — A striðsárunum lokuðust allar samgönguleiðir við megin- land Evrópu og þar með þau við- skiptasambönd er við höfðum þar, segir hann. Þá urðu menn að lang mestu leyti að treysta á inn- flutning frá Bandarikjunum og fékk Stefán Thorarensen h.f. ýmis sambönd þar, sem haldizt hafa siöan. Um sama leyti kom fyrirtækið á fót lyfjagerð, þar sem m.a. voru framleidd stungu- lyf ýmis konar, töflur og mörg önnur lyfjaform, sem hinum smærri apótekurum og héraðs- læknum reyndist um megn að framleiða. Sérlyfin ryðja sér æ meir til rúms — Umsvif fyrirtækisins hafa aukizt mjög á undanförnum ár- um, enda hafa framfarir i lyfja- gerð verið afar miklar siðustu áratugina. Þáttur sérlyfjanna, það er þeirra lyfja, sem hafa mjög sérhæfa verkun og fram- Fyrirtækið Stefón Thorarensen h.f. heimsótt leidd eru af hinum stóru erlendu lyfjaverksmiðjum, hefur aukizt mjög, en að sama skapi hefur þáttur innlendrar framleiðslu hlutfallselga dregizt saman Þetta er skiljanlegt, þegar haíðar eru i huga þær geysilegu kröfur, sem nútima heilbrigðisþjónusta gerir til lyfja. Aður en leyfi er veitt til sölu lyfs hér á landi, verður það að vera þaulprófað og allar skýrslur um það eru lagðar fyrir lyfjaskrárnefnd, sem ákveð ur hvort heimild til sölu lyfsins er veitt eður ei. Rannsóknir sumra lyf ja geta tekið yfir 10 ára tímabil og kosta offjár. Er augljóst. að slikt er ekki á færi innlendra fyrirtækja. Skipulag lyfjaverzlunar fer stöðugt batnandi A fyrstu árum fyrirtækisins voru lagaákvæði um innflutning og verzlun með lyf mjög i molum, en árið 1963 voru sett ný lög, sem bættu þar úr, og þegar þau.ásamt þeim reglugerðarákvæðum, sem þar er gert ráð fyrir, komast öll til framkvæmda.má ætla.að þessi mál komist á svipað stig og hjá nágrannaþjóðum okkar. Lyfjaverzlun sérstök um margt Enda þótt lyfjaverzlun sé á margan hátt rekin á svipaðan hátt og önnur verzlun er þó margt á annan veg. Lyfjaverzlunin er undir mjög ströngu eftirliti hins opinbera og til að stunda lyfjaverzlun verður að uppfylla fjölmörg skilyrði, sem öðrum heildsölum eru ekki lagðar á herðar. Skyldur okkar hvað snertir birgðahald eru ótviræðar. Þar eru gerðar kröfur til okkar bæði af hálfu hins opinbera og svo um- boðsfyrirtækjum okkar. Til þess að vera nokkurn veginn vissir um að eiga ávallt til öil þau lyf, sem við verzlum með, verð- um við aðhafa lager, sem við venjulegar aðstæður ætti að end- ast okkur i 3 mánuði, og eiga j)á einnig á leiðinni jafnmiklar birgðir. Astæðan til þessa er, að sveiflurnar i okkar litla þjóðfélagi eru oft svo miklar, að salan á ákveðnu lyfi getur orðið 2svar til 3svar sinnum meiri en að jafnaði gerist. Okkar álit er, að ekki sé viðunandi annað en að hafa öll lyf ávallt fáanleg og að sjaldan eða aldrei þurfi að segja „Ekki til”. Við gerum okkur grein fyrir þvi, að fyrir viðkomandi einstakling er það lyf, sem hann þarf á að halda,nauðsynlegast og þvi ekki á okkar færi eða annarra að flokka lyf i „nauðsynleg”, og þá væntan- lega „ónauðsynleg” lyf. Heilsufar landsmanna ákveður birgðirnar Þegar haft er i huga að birgðir okkar að magni til ákveðast af notkuninni á hverjum tima og heilsufari þjóðarinnar, er aug- ljóst mál, að skyndileg lækkun á birgðahaldi getur haft slæmar af- leiðingar. Gengisfellingar undan- farin ár hafa farið mjög illa með okkur. Við getum ekki á sama hátt og margar aðrar heildverzl- anir einfaldlega dregið saman seglin. Við getum ekki hætt að panta einhver lyf, sem t.d. seljast ekki mjög mikið. Við getum heldur ekki dregið svo mjög úr magni birgða, þvi það mundi auka likurnar fyrir þvirað við þurfum að segja „Ekki til”. Einhverjar ráðstafanir hefur þó verið óhjákvæmilegt að gera og Stefán Thorarensen, apótekari, kaupmaður og iðnrekandi, stofnandi fyrirtækisins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.