Tíminn - 04.02.1973, Síða 26

Tíminn - 04.02.1973, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 4. febrúar 1973. —Lífið hefur oft verið mér sannkallað helvíti síðustu 20 árin/ segir smá- bóndinn Bjarni Borgan í Vikna i Noregi, og starir hugsandi gegnum glugg- ann út á hafið. Kona hans, Leikny, segir ekkert, en situr aðeins í sófanum og litur af og til ástúðlega á hinn tuttugu ára son sinn, Inga. Ingi er blæðari, hemofil. Það er tvíbura- bróðir hans (eineggja), John, einnig, en hann liggur nú i einangrun á sjúkrahúsi i Namdalen með gulu. Erfitt er að gera sér i hugarlund, hvílikan sár- sauka og vonbrigði þessir drengir hafa reynt á sínum tuttugu æviárum. Og við getum rétt rennt grun í raunir foreldranna. Um 300manns i Noregi eru með blæði, — þennan óhugnanlega blóðsjúkdóm, sem lækna- visindunum hefur enn ekki tekizt aö ráða niðurlögum á. John og Ingi Borgan i Engesvik i Vikna i Noregi eru i hópi þessa ógæfu- samafólks. Þeir hafa náð tvitugs aldri, sem teljast má heppni, þar sem lif þeirra hefur margsinnis veriö hætt komið. Vandamál þau, sem sjúkdómurinn hefur i för með sér eru geysileg, og langt er John Borgan með foreldrum slnum. Þrátt fyrir sjúkdóm sinn, er hann mjög glaðlyndur drengur. kjark drengjanna. Þeir komust á skólaskyldualdur, og nú hafa þeir báðir lokið barnaskóla- og gagn- fræðastigi og hafa auk þess verið eitt ár i menntaskóla. En félags- leg og læknisfræðileg vandamál komu upp, þannig að ekkert hefur verið um skólagöngu um skeið. Barnaskólaárin voru tviburunum litlu erfið. Langa leið var að fara. Smákafla leiðarinnar fengu þeir far með mjólkurbilnum, en urðu samt að ganga um hálfan kiló- metra. Og jafnvel svo skammur spölur sem þessi, reyndi mjög á þrek þeirra, En elzti bróðirinn, Leifur kunni ráð við þessu. A hverjum morgni lyfti hann reið- hjólinu sinu upp á mjólkurbilinn og fylgdi sjálfur með. Siðan reiddi hann drengina þann spöl i skólann, sem þeir annars höfðu verið vanir að ggnga. A veturna var þeim ekið á síeða i skólann. Kjark og bjarsýni hefur fjöl- skylduna aldrei skort. Vanda- málin varðandi skólagönguna voru mikil, og Bjarni Borgan barðist langri og harðri baráttu til að bæta framtiðarmöguleika sona sinna. óhöpp á óhöpp ofan Allur skólinn vissi um sjúkdóm tviburanna. Og þe'im var stritt! Stundum gengu þeir við hækjur, og einmitt þær urðu einu varnar- meðulin þeirra. Ekki gátu þeir hlaupið né heldur flogizt á eins og aðrir drengir. Ekki þorðu þeir að berja á árásarmönnunum, þvi að það bitnaði aðeins á þeim sjálf- um. En hækjurnar.... já, margur drengurinn gekk með aumt bak, til næsta læknis eða sjúkrahúss. En þrátt fyrir fötlun sina hafa drengirnir ætið verið mjög fjörugir, ef til vill einum of fjörugir i sumum tilfellum. Aðeins karlmenn verða sjúkdóminum að bráð Blæði, hemofili, getur gengið að erfðum. Eru það aöeins konur, sem fela i sér erfðaeiginleikana. Hins vegar fá aðeins karlmenn sjúkdóminn. Aðaleinkenni sjúk- dómsins eru blæðingar, sem fara af stað við minnsta áverka. Þekktar ,,blæðarafjölskyldur” voru m.a. rússneska keisarafjöl- skyldan og hin spænska grein Habsborgaraættarinnar. Tviburarnir John og Ingi eiga tvö eldri systkin, bróður og systur, en þau hafa sloppið við sjúkdóminn. Bjarni og Leikny Borgan uppgötvuðu fyrst, að eitt- hvað var að tviburunum, er þeir voru 2ja ára. Annar þeirra datt og meiddi sig, og foreldrarnir tóku eftir þvi, að miklar innri blæð- ingar fóru af stað, en þau gátu ekki skilið, hvað orsakað gat svo miklarblæðingarvið svo litilfjör- legt slys. Nokkur timi leið, áður en drengurinn gat farið aö ganga á ný. Seinna kom upp bólga á fæti hans, og menn óttuðust, að úm igerð væri að ræða. Læknir, sem kvaddur var til, sprautaði pensilini i fótinn, en þá kom ein- kennilegur, blár flekkur kringum þann stað, þar sem nálinni hafði verið stungið. Enn áttuðu menn sig ekki á þvi, hvað um væri að ræða. Fimmtán ára gamlir fengu tvi- burarnir kighósta, og samhliða honum gifurlegar blóðnasir. Eftir mikinn blóðmissi var farið með þá á Rikisspitalann i Osló, þar sem i ljós kom, að blóðmagn þeirra var orðið 35% af þvi, sem eðlilegt er. Þarna kom einnig i ljós, hvaða sjúkdómur hrjáði drengina. Þar með hófst afar erfitt lif bæði fyrir þá og foreldra þeirra. Létt högg á likama tvi- buranna komu af stað innri blæð- ingum og ollu jafnframt miklum sársauka. Foreldrarnir þjáðust ekki minna en synirnir, vitandi um kvalir þeirra, likamlegar og sálarlegar. — En samt sem áður, segir faðirinn, — fengu drengirnir að leika sér eftir vild. Við lögðum engin sérstök höft á þá, en létum þá læra að gæta sin sjálfir og gera sér grein fyrir fötlun sinni. Eins óstýrilátir og tviburarnir voru var engin lifsins leið að hafa augun með þeim allan sólar- hringinn. Þjáningar Oft enduðu leikir drengjanna með byltum og þar með meiðslum. Langar rúmlegur urðu fastur þáttur i lifi þeirra. Lyf þeim til gagns voru ekki til, á þessum tima, og sársaukinn varð oft næstum óbærilegur. Smáand- vörp frá sjúkrabeðunum brenndu sig inn i sálir foreldranna. En hvað var til bragðs að taka? Eitt ráð hafði þeim verið gefið, sem var að leggja kalda bakstra yfir þá staði, þar sem innri blæðingar voru og kom það að nokkru gagni. A næturna voru látnar standa fötur með isiblöndnu vatni við rúm drengjanna, og þegar þjáningarnar urðu sem mestar, var iitlum barnsfótunum stungið ofan i þær. Oft voru þeir hálfsofandi i þessum tilfellum, og smádottuðu siöan með fæturnar i fötunni, unz sársaukinn rénaði. Oftast komu upp einhver meiðsl i liðum, og þegar blæð- ingar upphófust, urðu tviburar- nir bognir i hnjánum eins og öld- ungar. Eitt sinn varð að skera John upp. Var i fyrstu álitið, að um botnlangabólgu væri að ræða, en siðar kom i ljós, að blæðingar höfðu farið af stað i likamsholinu. Sex blóðgjafa þurfti til, meðan á uppskurðinum stóð. Þegar John var nær orðin friskur á ný datt hann á gólfið i sjúkrahús- ganginum, sem hafði i för með sér innri blæðingar i hnénu. Það kostaði niu mánaða dvöl á sjúkra- húsi. Eitt sinn þurfti að draga úr honum tönn, og kostaði það tiu blóðgjafir. Kjarkur En sjúkdómurinn lamaði ekki eftir að hafa orðið fyrir barðinu á þeim. Smáóhöpp og slys ollu þvi, að drengir voru oft langtimum saman fjarverandi úr skóla. I smiðatima rak t.d. Ingi eitt sinn sporjárnið i fingur sér og fór að blæða ákaflega. Sjálfur bar hann sig vel, en kennarinn fékk næst- um taugaáfall. I annað skipti var John að fitla við klipitöng fyrir framan andlitið á sér. Þá missti hann allt i einu takið á henni, þannig að hún skrapp i tunguna á honum og reif úr henni smá- stykki. Og hvilikar blæðingar! Ekið var með hann i skyndi i næsta sjúkrahús, þar sem læknir- inn varð að brenna sárið á tung- unni til þess að stöðva blæðing- una. — „Guð minn góður, það lyktaði af brenndu kjöti það kvöld,” — segir faðirinn, Bjarni. En John hlær aðeins við tilhugs- unina um allt það, sem þeir bræð- urnir urðu að reyna gegnum uppvaxtarárin. — Margir hafa orðið til að spyrja okkur, hvernig við höfum getað lifaðöll þessi ár með þenn-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.