Tíminn - 04.02.1973, Síða 33

Tíminn - 04.02.1973, Síða 33
Sunnudagur 4. febrúar 1973. TÍMINN 33 Eins og flestum er kunnugt hafa verið samin tvö meiri háttar poppverk um Jesú, serp bæði hafa komið út á hljómplötu og verið færð i leikbúning, og hvort um sig hlotið skín- andi viðtökur. Hér er að sjálfsögðu átt við söngleik- ina „Jesus Christ Super- star" og „Godspell". Þá kynni margur að spyrja, hvað væri þá nærtækara en að gera kvikmynd um Jesú, þarsem tónlistin væri af „country"-taginu (það vefst fyrirað finna íslenzkt orð yfir þessa tegund tón- listar, en ef til vill nær „þjóðlagatónlist" því einna helzt). Það var einmitt þetta, sem „country"- söngvarinn Johnny Cash hafði í huga, er hann fór ásamt fjölskyldu sinni og kvikmyndatöku liði til Israel í fyrra, í því skyni að festa sinar eigin hug- myndir um líf Jesú á filmu. Árangurinn af þessari hug- mynd hans er myndin „Gospel Road" ( („Á vegi guðspjallanna"), óvenju- leg samblanda af persónulegri trú og fag- mennsku. Hefjast sýningar á myndinni í Banda- ríkjunum í næsta mánuði (á vegum Twentieth Century Fox). Og hvað hefur þá aðalfrum- kvöðullinn og framleiðandinn Johnny Cash að segja um myndina? — Það er nóg gert af kvik- myndum i dag, sem helgaðar eru djöflinum. Mér fannst ég beinlinis neyddur til að gera eina um Jesú. Aðalmarkmið okkar var að sýna Jesú sem mannlega veru, sem hægt væri að nálgast og snerta. „Gospel Road” fylgir heimild- um Bibliunnar ekki ýkja mikið. Að undanteknum postulunum 12 HUN ER STOLT LÍFS MÍNS SEAA LISTAMANNS og nokkrum smáhlutverkum eru öll hlutverkin i höndum f jölskyldu Cash. Kona hans, söngkonan June Carter, leikur Mariu Magdalenu. Systir Cash, Reba Hancock, leikur Mariu mey, og tónlistar- ráðgjafi Cash, Larry Lee, leikur Jóhannes skirara. Erfiðara reyndist að skipa i hlutverk Jesú. Cash hafði hugsaö sér að sýna aðeins hendur og fætur Jesú, og haföi þá i huga limi leikstjóra myndarinnar, Roberts Elfstrom, en June Carter kveður hann hafa „fallegustu fætur i öllum Banda- rikjunum”. En nóttina áður en myndataka átti að hefjast, ákváðu Cash og aðstoðarmenn hans, aö hafa Jesú i fullu gervi, og fyrrnefndur Elfstrom fékk hlut- verkið. Sjálfur segir Cash: „Ég hugsaði sem svo, að okkar hug- myndir um það, hvernig Jesú ætti að lita út, væru eins góðar og hverjar aðrar”. Þess skal getið að ég stóð sjálfur að öllum kostnaði við gerö myndarinnar, en hann var upp á einar 50 milljónir króna (isl.): Nær engar samræður eru i myndinni, og jafnhliða gangi handritsins um ævi Krists gerir Cash ýmis „trick” og bregður upp hinum óliklegustu „senum”. Leikstjóranum Elfstrom tekst að sögn oft að ná fram stórkost- legum áhrifum, og leikarinn Elfstróm sýnir okkur hávaxinn, ljóshærðan og tötralegan Jesú. Hrifandi atriði koma fram, eins og þegar Jesú röltir með strönd fram með hóp af ærsla fullum unglingum og einnig, er Hann situr að Hinni siðustu kvöldmáltið ásamt postulum sinum. A stöku staðeru atriöin ögn þunglamaleg, eins og þegar fallegt og hákristi- legt atriði við ána Jórdan er rofið af kurrandi dúfu, sem á að tákna Heilagan anda og kemur og sezt á öxl Jesú. En Krossfestingin er sýnd á afar áhrifamikinn og raunsæan hátt. Jesú hangir á krossinum og i baksýn gnæfa ógn- þrungir skýjakljúfar New York, Las Vegas og Los Angeles. Heiðarleiki Hinn eiginlegi kraftur myndar- innar liggur i þvi, hvernig myndavélinni er jafnhliða beint að hinu hrikalega landslagi ísrael, i frumlegri tónlist og i hinum augljósa, trúarlega heiöarleika Cash sjálfs. Eins og flestir þjóðlagasöngvarar er Cash mjög tortrygginn gagnvart borgarlifinu, sem er ein ástæðan til þess, að hann kaus að taka myndina utan við Jerúsalem. „Okkur langaði að ganga, þar sem hann gekk, reyna að skynja tilfinningar hans gagn vart fjöllunum og vöntunum”, segir Cash til útskýringar. Myndin sýnir Jesú sem meiri einstaklingshyggjumann en Biblian vill vera láta. En Hann er alveg i samræmi við einmana- leika þjóðlagatónlistarinnar. I titillaginu „Gospel Road” hefur Cash sett saman nokkur guð- spjallalög eða sálma, sem hljóta að eiga eftir aö verða sigildir. I öðrum lögum myndarinnar, eins og Byrði Frelsisins (Burden of. Freedom) eftir þjóölagasöngvar- ann fræga Kris Kristofferson, og i Siðasta kvöldmáltiðinni (Last Supper — Have a little bread Simon/Give a little wine to James) sýnir Cash mjög greini- lega heimþrá og heimakærleika hinna dæmigerðun mótmælenda i suðurrikjum Bandarikjanna, sem alltaf hafa litiö á Jesú sem eins konar guðlegan stóra bróður. Cash geröi fjölda af sjónvarps- þáttum til að standa undir kostnaði við myndina. En persónutöfrar hans og augljós ■ . ■ : Johmiy Cash i ísrael. „Með GOSPEL ROAl) öðlast lif mitt á þessari jörð tilgang”. einlægni ættu að gera myndina afar vinsæla, ekki sizt meðal „Jesú-fólksins”. Þótt Cash sé sannur og ákafur trúmaður hinnar evangelisku kristni, mun hann fremur lita á myndina sem sina túlkun á persónulegri skoðun sinni, fremur en vatn á myllu trú- Tilboð óskast í Rambler American, árgerö 1967i núverandi ástandi eftir árekstur. Bifreiðin verður til sýnis hjá Vöku h.f., Stórhöfða 3, Reykjavik á mánudag og þriðjudag n.k. frá kl. 9-17. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Tjónadeild, fyrir kl. 17 á þriðjudag 6. febrúar 1973. Vetrarmaður óskast strax á býli i Norðurárdal i Borgarfirði. Upplýsingar i sima 19958 Reykjavik- boðsins. Sjálfur segir hann: — „Jesú hefur verið mér og fjölskyldu minni mikilvægastur af öllu siðastliðin 6 ár. Og þessi mynd er stolt lifs mins sem lista- manns. Með henni öðlast lif mitt á þessari jörð tilgang”. —Stp Akureyringar gefa á sunnudaginn A morgun munu æskulýðsfélag- ar á Akureyri standa vaktir i öll- um guðsþjónustustöðum bæjarins frá klukkan eitt til sjö s.d. og taka á móti gjöfum i Vestmannaeyja- söfnunina. Það verða þvi staðn ar vaktir i Akureyrarkirkju, Minjasafnskirkjunni og gamla barnaskólahúsinu i Glerárhverfi. Geta Akureyringar þvi komið með gjafir sinar, hver til þess guðshúss, sem næst þeim er, eftir þvi sem hverjum og einum hentar bezt. SINNUM LENGRI LÝSING 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartima) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásala Einar Farestveit & Co Hf Bergstaðastr. 10A Slmi 16995 Leikstjóri „Gospel Road”, Robert Elfstrom, að störfum i ísrael. Hann fer einnig með hlutverk Jesú.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.