Tíminn - 04.02.1973, Qupperneq 40

Tíminn - 04.02.1973, Qupperneq 40
Tíminn er 40 síður alla laugardaga og sunnudaga.— Áskriftarsíminn er 1-23-23 Beinavinnsla hafin í Vest- mannaeyjum Talsvert öskufall hefur verið i Vestmannaeyjum annað veifið, og i gær var enn allmikið öskugos, en vindur stóð þá ekki á bæinn, svo að það kom ekki að sök. Vinnsla er nú hafin i Fiski- mjölsverksmiðjunni, er farið að mala þar bein, sem fyrir höfðu safnazt áður en gosið hófst. Að þessu vinna starfsmenn verk- smiðjunnar, sem dvalizt hafa i Vestmannaeyjum að undanförnu. Sýnir þetta kjark og áræði þeirra manna, sem hafa einsett sér að koma atvinnurekstri af stað i Eyj- um jafnskjótt og þess er nokkur kostur. Viðræður við fulltrúa Noregs og Svíþjóðar I fyrradag hófust viðræður is- lenzk-a stjórnvalda og fulltrúa frá Noregi og Sviþjóð um það, hversu haga skuli hjálp þeirri, sem rikis- stjórnir þessara landa buðu; ís- lendingum vegna náttúruhamfar- anna i Vestmannaeyjum, og þess tjóns, sem þjóðin verður fyrir vegna þeirra. Meðal annars var rætt um hin verksmiðjusmiðuðu hús, sem til boða standa og reisa má fyrir- varalitið, sem og aðra aðstoð, sem til greina kemur, að rikisátjórnir þessara landa geti látið i té. Þessum viðræðum verður hald- iðáfram, segir i fréttatilkynningu frá utanrikisráðuneytinu. Öskufall í Rángárþingi: KOLSVORT OG FINGERÐ er allt í Þau eiga heima austur á Hvols- velli, og það er Hörður Helgson, forstjóri blikksmiðjunnar Sörla, sem á þessi fallegu dýr, sem harla oft skemmta sér við að kankast á. Tikin heitir Mollý, en kisa var i snatri skirð Mjallhvit, þegar ljósmyndari krafði hana um nafnskirteini. Nafnnúmer þó enn óskráð, enda aldur ekki svo hár, að það verði af henni heimt- að. Hér þreyta þau venjulegan leik sinn. Kisa hefur ieitað vigis á út- saumaðri stólsetunni, en Mollý er niðri á gófi, enda er hún svo mik- ils vaxtar, aö ekki hæfir annað en aðstöðumunur sé nokkur, þegar þau eignast við. Allt er þetta þó i góðu eins og sjá má, og stundum veltir kisan sér á hrygginn og lof- ar tikinni að gantast við sig með löppinni. Þau rifast sem sé ekki eins og hundur og köttur. Timamynd: GE. Þetta SEAA KJ—Reykjavik Nokkuð öskufall hefur veriö i Rangárvallasýslu, frá þvi gosið i Heimaey hófst, og er askan kol- svört og mjög fingerð. A fimmtu- daginn fengu oddvitar i sýslunni skeytifrá dýralækninum á Hellu, og voru oddvitar beðnir að koma þvi á framfæri við bændur, að þeir hýstu allan fénað yröi frekara öskufall. Barn festist undir mið- stöðvarofni Stp—Reykjavik Lögreglan var tilkvödd vegna óvenjulegs atviks uppi i Arbæjar- hverfi á föstudagskvöld s.l., alla- vega sagðist lögregluþjónninn, sem kvaddur var til, ekki hafa lent i sliku á 30 ára starfsferli sin- um. Málið var annars þannig vaxið, 2 ára gamalt barn, sem verið hafði að leika sér á gólfinu, l'estir höfuðið undir miðstöðvar- ofni, þ.e. milli neöri brúnar ofns- ins og gólfs (með þykku gólfteppi). Móðirin var aldeilis ráðalaus með að losa barnið og hringdi i ofboði á lögregluna. En vandinn var ekki annar en sá, að ýta aðeiris á höfuð barns- ins niður i þykkt gólfteppiö, og þar með var barnið laust. En móðirin mun einhverra hluta vegna ekki hafa áttað sig á þess- ari augljósu og einföldu lausn. Bariö sakaöi ekki hiö minnsta. HVEITI — A fimmtudaginn fékk ég skeýti frá dýralækninum hérnar um að segja bændum i hreppnum að hýsa allan fénað, ef öskufallið héldi áfram, sagði Sigurður Tómasson oddviti á Barkar- stöðum i Fljótshlið, i viðtali við Timann i gær. — Ég lét alla bændur vita um þetta, en frá þvi skeytið kom, hefur ekkert öskufall verið hér svo ég viti, sagði hann enn- fremur. Sýnishorn af öskunni, sem hér féll, var sent að Keldum til rannsóknar laugardaginn 27. janúar, en ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um niður- stöður rannsóknarinnar. Mesta öskufallið varð i Fljóts- hliðinni á miðvikudaginn, eftir að gosiðhófst. Þá var snjór yfir öllu, og varð allt grátt. Þegar snjórinn þiðnaði, voru öskublettir viða á jörðinni. Fer hér liggur við opiö, og þótt það sé ekki á beit, hnusar það i jörðina, og getur öskufallið þvi verið þvi hættulegt, og vissara að hýsa féð, verði meira öskufall. Askan, sem hér féll, er kolsvört og fin, sem hveiti, sagði Sigurður á Barkarstöðum að lokum. — Hér hefur verið öskufall öðru hverju frá þvi gosið i Heimaey byrjaði, sagöi Jón Hjálmarsson skólastjóri i Skógum undir Eyja- fjöllum, er Timinn ræddi við hann i gær. öskufallið hefur greinilega sézt á bilum, og innandyra i gluggakistum, sagði Jón enn- fremur. Aftur á móti sagði hann að askan hefði horfið i gras- rótina, enda er askan, sem berst til lands mjög fingerð. Bændur undir Eyjafjöllum beita sauðfé ekki, en aftur á móti ganga hross úti eins og venjulega. BRUÐHJON MÁNAÐARINS Maja var valin til þess. Hún seildist niður í kassa með lokuð augu, þreifaði dálítið fyrir sér í seðlahrúg- unni, og kom svo upp með einnaf miðunum. Þar með höfðu ,,brúðhjón mánaðar- ins" verið valin. Hér sjáum við Maju með tölusettann miðann. Hún hefur breitt brúðhjóna- myndirnar úr Tímanum út fyrir framan sig og leitar réttu brúðhjónanna. Þau reyndust búsett í Reykja- vík. Við heyrum fra' þeim seinna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.