Tíminn - 17.03.1973, Síða 7
Laugardagur 17. marz 1973
TÍMINN
7
SAMVINNA
Á HEIMILINU
Tekin til íhugunar á sýningu og
umræðufundi i Norræna húsinu
SJ-Reykjavík.
A laugardag hefst sýning i kjallara Norræna
hússins, sem heitir „Fjölskyldan á rökstólum.”
Sýningin er á vegum Kvenfélagasambands íslands
og Norræna hússins, en tilgangur hennar er að
vekja athygli á heimilisstörfum og mikilvægi
þeirra, og benda á það, að fjöldskyldan verður að
vinna að þeim sameiginlega þegar húsmóðirin
vinnur úti. En eins og kunnugt er, fer þátttaka
giftra kvenna i atvinnulifinu vaxandi. Á sýningunni
er ennfremur bent á, hvernig fjölskyldan getur
hagrætt heimilisstörfum.
Meöal sýningaratriða eru
nauðsynlegustu tæki til eldhús-
starfa, uppdrættir, sem sýna
hvernig hlutum er haganlega
komið fyrir i eldhúsi, matseðill
fyrir eina viku með næringarrikri
rétt samsettri fæðu, á hóflegu
verði, og fleira mætti telja.
Nemendur, sem koma að sjá
sýninguna fá spurningalista til að
ihuga eða nota til grundvallar I
skólastarfi eða umræðum sin á
milli. 1 þeim er m.a. reynt að
hvetja nemendur til að hugsa um
hvernig koma megi á hagræðingu
við heimilisstörf og fá þá til að
gera sér grein fyrir hugmyndum
sinum um karlastörf og kvenna-
störf.
í tilefni af sýningunni verður
umræðufundur um fjölskylduna
og framtiðina þriðjudaginn 20.
marz kl. 21.00. Framsöguerindi
flytja Hólmfriður Gunnarsdóttir,
kennari, Pétur Þorsteinsson,
menntaskólanemi, Rósa Björk
Þorbjarnardóttir, kennari og dr.
Björn Björnsson, prófessor, en
Sigriður Thorlacius, formaður
Kvenfélagasambands Islands,
stjórnar umræðum. Eru allir vel-
komnir á fundinn, sem haldinn
verður I samkomusal Norræna
hússins.
Um helgar verður höfð sýni-
kennsla. Laugardaginn 17. marz
sýnir Hrönn Hilmarsdóttir, hús-
mæðrakennari, hvernig búa má
tilýmis hrásalöt, sunnudaginn 18.
marz fjallar Hrönn um morgun-
verðinn og laugardaginn 24. marz
sýnir Hrönn matreiðslu á fljótleg-
um fiskréttum, alla dagana kl.
14, kl. 16 og kl. 17 I sýningar-
salnum. Þessir réttir verða á
boðstólum i kaffistofu Norræna
hússins öðru hverju á meðan
sýningin stendur.
Sýningin er fengin aö láni hjá
Konsumentinstitutet i Sviþjóð, en
i nágrannalöndum okkar er mikið
lagt upp úr þvi að veita al-
menningi fræðslu um heimilis-
hald, svo að heimildin geti gegnt
hlutverki sinu á sem beztan hátt.
En sýningin fjallar um mál, sem
varðar fjölskylduna alla.
Sýningin verður opin dagana
17.-28. marz alla virka daga kl. 14
- 19, en um helgar kl. 14-22.
í april mánuði stendur héraðs-
samböndum K.I. til boða að fá
sýninguna að láni.
msm
totmibrí-,
Unnió að uppsetningu sýningarinnar „Fjölskyldan á rökstólum”.
Timamynd Róbert.
PÍPULAGNIR
Stilli bitakerfi —
Lagfæri gömul hita-
kerfi
Set upp hreinlætis-
tæki — Hitaveitu-
tengingar
Skipti liita — Set á
kerfið I)anfoss-ofn-
ventla
SÍMI 36498
SKRUFU-
dagurinn
Kynningar-
DAGUR
Vélskóla
íslands
er í dag
laugardaginn
17. marz 1973
°g
hefst kl. 13,30
Allir velkomnir
Hagstæð bókakaup
A undanförnum árum hefur Sögusafn Heimiianna gefið út gamlar
skemmtisögur, sem notið hafa mikilla vinsælda hjá almenningi.
Bókum þessum hefur verið mjög vel tekið og eru margar þeirra að
verða uppseldar. Nú hefur útgáfan ákveðiö aö gera þeim tiiboð, sem
vildu dignast allar bækurnar ellefu að tölu. Tilboðið hljóðar upp á
kr. 5.000.00 og eru þeir, sem vildu sinna þessu beðnir að senda nafn
og heimilisfang ásamt kr. 5.000.00 til Söfusafns Heimilanna, Póst-
hólf 1214, Reykjavik.og fá þeir þá sendar bækurnar um hæl. I kaup-
bæti fá þeir aö velja sér aðra þeirra tveggja bóka, sem koma út i
bókaflokknum i haust.
Eftirtaldar bækur eru komnar út i bókaflokknum
Sigildar skemmtisögur:
1. Kapitóla eftir E.D.E.N. Southworth.
2. Systir Angela eftir Georgie Sheldon.
3. Ástin sigrar eftir Marie Sophie Schwartz.
4. Heiðarprinsessan eftir E. Marlitt.
5. Aðalheiður eftir C. Davies.
6. Vinnan göfgar manninn eftir Marie Sophie Schwartz.
7. Af öllu hjarta eftir Charles Garvice.
8. Gull-Elsa eftir E. Mariitt.
9. Golde Fells leyndarmálið eftir Charlotte M. Braeme.
10. örlög ráða eftir H. St. J. Cooper.
11. Kroppinbakur eftir Paul Féval.
Og væntanlegar eru á þessu ári:
12. Kynleg gifting eftir Agnes M. Fleming.
13. Arabahöfðinginn eftir E.M Hull.
Þetta hagstæða tilboð stendur aðeins skamman tima, þvi að margar
af bókunum eru senn á þrotum. Útfyliið eftirfarandi pöntunarseöil
og sendið útgáfunni:
Nafn ------------------------------------------
Heimilisfang_ _________________________________
óskar eftir að fá sendan bókaflokkinn Sigildar skemmtisögur, ellefu
bækur frá Sögusafni Heimilanna og fylgir hér með kr. 5.000.00 I
ábyrgðarbréfi. I kaupbæti óska ég eftir að mér verði send strax og
út kemurDKynleg giftingD Arabahöfðinginn. (Setjið X i reitinn fyrir
framan þá bók, sem þér óskið eftir).
Sögusafn heimilanna
Pósthólf 1214 — Reykjavík
w/iim
BILALEIGA
IIVEltFlSGÖTU 103
YJfl/Sendiíerðabifreið-VW 5 manna-VWsveínvagn
VW9manna-Landrover 7manna
Auglýs
l. endur
Auglýsingar, sem eiga aðkoma Ibiaðinu á sunnudögum þurfa aö
berast fyrir kl. 4 á föstudögum.
Augl.stofa Timans er i Bankastræti 7. Simar: 19523 - 18300.
Hjólbarða-
viðgerðir
Hjólbarða-
sólun
Snjómunstur
fyrir
1000X20
1100X20
Verkstæðið opið
alla daga kl. 7,30-22,00
nema sunnudaga
Sala
r
a
sóluðum
hjólbörðum
BARÐINNf
Reykjavík * Sími 30501
rmúla