Tíminn - 31.03.1973, Page 5

Tíminn - 31.03.1973, Page 5
Laugardagur 31. marz 1973. TÍMINN 5 Viti sprautað í fólk Senn liöur að þvi, að hægt sé aö flytja þekkingu eða minni milli manna með þvi einu aö dæla i þá heilavökva, eöa það segir pró- fessor Georges Ungar, sem starfar við læknadeild Baylor háskólans i Texas. Hann hefur nú þegar gert tilraun með að dæla heilavökva úr mjög gáfuð- um og velþjálfuðum rottum i ó- þjálfaðar og fremur heimskar kynsystur þeirra. Hann fullyrð- ir, að með þessum tilraunum hafi honum tekizt að gera einn hóp af rottum hræddan viö myrkur, og annan lofthræddan. „Endin ástæða er til þess að ef- ast um, að okkur geti tekizt aö gera það sama við menn, segir prófessor Ungar. — Það ætti alla vega að veröa hægt eftir nokkur ár, þegar enn frekari rannsóknir og tilraunir hafa veriögerðar á dýrum. — Hugsið ykkur hvernig það væri fyrir nemanda, sem ætti að fara i stæröfræðipróf, ef hann gæti að- eins fengiö nokkrar innspraut- ingar meö heilavökva vel- menntaðs stærðfræðings. Hvor- ugur myndi hafa illt af þessu, né líða neitt fyirir það, en þekking- in yrði varanleg hjá náms- manninum. Margt má éta i framtíðinni Allt bendir til þess, að geimfar- ar framtiðarinnar muni geta ét- ið — ekki aöeins matinn, sem þeir taka með sér, heldur lika veggi og innréttingar allar i geimfarinu, ef þeir verða uppi- skroppa með matarbirgðir. Það er Dr. Tim de Dombal i sjúkra- húsinu i Leeds i Englandi, sem hefur komið fram með þá hug- mynd, að innréttingar geimfara megi vel gera úr mat til dæmis gætu skilrúmin verið úr sér- staklega meðhöndluðu nauta- kjöti og stjórntæki alls konar úr gulrótum. Hann útskýrir þetta þannig, að geimför þurfi mjög mikinn styrk til þess að hefja sig á loft, en hins vegar þufri þau það ekki, þegar út i geiminn er komið. Þess vegna megi til dæmis nota samþjappaða steik, sem væri sérstaklega varin, svo hún þyldi að vera notuð i veggi eða annað. Hugmyndin er i at- hugun hjá þeim, sem hafa með geimferðamál að gera, og telja þeir, að vel kunni að vera, að þessi hugmynd Dombals verði notuð áður en langt liður Sumarlíf i Póllandi 1 fréttabréfi frá Póllandi segir, að útilif sé þar mikið stundað. Þar segir ennfremur, að um fimm milljónir barna og ung- linga hafi tekið þátt i ýmiss kon- ar tómstunda- og sumarleyfis- starfsemi siðast liðið ár, og var það um einni milljón fleiri börn, en árið á undan. Eitt af þvi, sem unga fólkiö gerir, er að taka þátt i sjálfboðaliðsvinnusveitum. Þá eyða unglingarnir sumrinu i að hjálpa til við uppskeru og land- búnaðarstörf, og ennfremur er unnið við að hreinsa borgir og bæi eftir þvi sem þörf er talin á, svo nokkuö sé nefnt. Stúlkurnar hér á myndinni eru úr ljós- mæðraskóla, og hafa þær eytt sumarfriinu i skógunum i nánd við Zedniu. Þar hafa þær meðal annars skemmt sér við að búa til þessi mjög svo sérstæðu dýr, sem eflaust eiga eftir að verða einhverju barni til skemmtun- ar. Dætur <1 Judy Garland fá mikið lof Fræg kona á duglegar dætur. Þessi kona er reyndar látin, en hún var leikkonan Judy Gar- land. Lorna Luft og Liza Minelli eru dæturnar, sem báðar hafa fengið mikið lof fyrir söng sinn og leik. Nú hefir meira að segja Liza fengið Oscarsverðlaun fyr- ir leik sinn i myndinni Cabaret. Bjargið sauðfénu frá útrýmingu Það er ekki aðeins villt dýr og fágætar jurtategundir, sem þurfa að óttast útrýmingu nú á dögum. Sömu sögu er að segja un nokkrar tegundir búpenings. Konunglega landbúnaöarstofn- unin i Bretlandi hefur skýrt frá þvi, að Portlandsfé, sé á hraðri leið meö að deyja út. Forfeður þessa sjárstofns komu syndandi frá skipum Flotans ósigrandi (Spænsku Armödunnar). Þarna komu syndandi nautgripir með löng horn og kindur, sem komu frá Manx og St. Hilda. Þetta sauðfé er útdautt á báöum þess- um eyjum, og afkomendunum fækkar með degi hverjum. Til dæmis er aöeins einn Norfolk- -hrútur til i heiminum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.