Tíminn - 31.03.1973, Blaðsíða 27
Laugardagur :!1. marz 1973.
TÍMINN
27
Viðtalstímar
alþingismanna
og borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
í Reykjavík
Alfreð Þorsteinsson verður til viðtals að skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hringbraut 30, laugardaginn 31. marz milli kl. 10 og 12.
FUF-
framsóknarvist
Félagsvist verður haldin að Hótel Sögu 1. aprfl kl. 20:30. Stjórn-
andi vistarinnar er Kristján B. Þórarinsson. Avarp flytur Jó-
hann Þ. Jónsson.
Framsóknarvist
að Hótel Sögu 5. apríl
Annað spilakvöldið í þriggja kvölda vistarkeppninni verður að
Hótel Sögu Onnntydaginp 5. april og hefst að venju kl. 20:30.
Húsið opnað kl. 20. Aðalvinningurinn verður heimilistæki og hús-
gögn fyrir 20 þúsund krónur. Auk þess verða veitt góð kvöldverð-
laun, þrenn fyrir karla og þrenn fyrir konur. Dansað til klukkan
eitt. Ræðumaður kvöldsins verður Kristján Ingólfsson.
Vistarnefnd FR.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21 Akranesi, sunnudaginn 1. april kl.
16. Ollum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
©
Til sjós
Nú hefst annar þáttur sjónar-
spilsins, og þá er handagangur i
öskjunni. Byrjað er að snurpa og
til þess notað spilið og kraft-
blökkin. Nótin dregst að siðunni
og fyrr en varir sjáum við hana
breiða úr sér eins og brúnt teppi á
bláum haffletinum. Siðan fer
mynstrið að koma i ljós — silfur-
litaöir blettir misjafnir að stærð
og lögun — allt eftir þvi hvernig
loðnan byltir sér og steypir i sjón-
um.
En hennar dagar eru taldir
þegar milljónamæringarnir á
Guðmundi renna dælunni út fyrir
borðstokkinn. Hún sýgur loðnuna
og sjóinn um borð, og i mikilli vél,
sem er á miðju þilfarinu skilja
leiðir. Loðnan rennur spriklandi
niður i lest en sjórinn rennur sina
leið aftur i sjóinn.
Ein og ein loðna nær þvi að
komast út á milli netamöskvanna
og tekur þegar á sprett fegin aö
losna úr prisundunni og þakkar
sjálfsagt sinum sæla fyrir að
lenda ekki i lestinni á Guðmundi
eins og margar frænkur sinar og
frændur eða i gogginum á fuglin-
um, sem svifur i hópum hring
eftir hring yfir skipinu likt og
hrægammar.
SKOÐA
ÞEGAR
HLÉ ER A
B i LABLÖÐ
VEIÐUNUM
Skipverjar lita okkur hornauga
þegar i ljós kemur að i nótinni eru
ekki nema 10 lestir eða svo. Við
látum sem við tökum ekki eftir
þvi og förum að spjalla við þá um
stóru köstin, sem þeir hafa fengið
á vertiðinni. Þá gleyma þeir fiski-
fælunum og fara að segja okkur
frá kasti, sem þeir höfðu fengiö
nokkrum dögum áður fyrir
austan. Það hafi verið á grunnum
sjó, annars hefðu þeir ekki haldið
þvi, en það hafi verið um 540
lestir. Fullvissuðu þeir okkur um
að þetta sé stærsta kast, sem
nokkurt islenzkt fiskiskip hafi
fengið til þessa.
Hrólfur heldur áfram að leita
þarna við Reykjanesið og það er
kastað nokkrum sinnum. En allt
kemur fyrir ekki. Það er aldrei
neitt verulegt magn i nótinni, en
þóekkert „búm” eins og sjómenn
kalla það þegar ekki branda kem-
ur i nótina.
Það léttist á okkur brúnin þegar
við heyrum á tali tveggja manna,
að það sé liklega ekki blaða-
snápunum að kenna, að ekkert
fáist. Það sé sama hjá hinum
bátunum.
Gisli kokkur hefur haft matinn
tilbúinn i nokkurn tima þegar
mannskapurinn lætur loks sjá sig
við matborðið. Og það er engu
minni hamagangur hjá þeim við
að innbyrða matinn en loðnuna.
Að lokinni góöri máltiö fara menn
að spjalla saman og skoða bila-
blöð. Það kemur udd úr kafinu að
flestir af 14 manna áhöfn skipsins
hafa pantað sér nýja bila. Það er
það fyrsta sem þeir ætla að fá sér
fyrir milljónina..reyndar sé ekki
um neina milljón að tala þegar
skatturinn hafi krafsað til sin sinn
hlut.
Spurningu okkar um hvar og
hvenær þeir ætli að aka þessum
nýju bilum sinum, þar sem þeir
séu úti á sjó mestan hluta ársins,
svara þeir með þvi að segja —
,,þeir duga okkur þá lengur en
hinna, sem alltaf eru úti að
keyra!
Annað sem milljóna-
mæringarnir okkar tala um eftir
matinn, og reyndar oftast þegar
færi gefst á að spjalla saman, er
um báta, veiðar og loðnu. Þeir
tala minnst um sjálfa sig eða þá
stóru hluti, sem þeir hafa gert á
vertiðinni, enda hafa þeir svo
sannarlega unnið fyrir hverri
krónu, sem þeir fá fyrir það.
Annars koma þeir viöa viö og
það fer ekki á milli mála, aö
meðal þeirra er góð vinátta, þó
svo að þeir striði hver öðrum
þegar færi gefst. Þegar á liður og
litið veiðist fer þó að bera á
spurningunni hvenær þessu
heL.fari að ljúka. Þeir eru sýni-
lega orðnir þreyttir og vilja fara
að komast i fri, enda búnir að
vera að i drjúgan tima. Þá bolla-
leggja þeir lokahófið, sem þeir
ætla að halda, og um allt það sem
þar á að skola niður. Þegar það
ber á góma ljóma þeir i framan
og hlægja tröllahlátri, sérstak-
lega þeir yngri af áhöfninni.
STÓRA KASTIÐ LÆTUR
EKKI SJA SIG
Um nóttina vöknum við við að
vélarnar eru settar á hálfa ferð.
Við skjótumst upp I brú til að sjá
hvaðum sé að vera. Þegar við lit-
um útsjáum við mikla ljósadýrð i
kringum okkur, og það kemur i
ljós þau tilheyra tugum loðnu-
báta, sem þarna eru að lóna og
biða birtingar.
Fjær sjáum við eldsúlurnar úr
gignum á Heimaey teygja sig til
himins og rauðglóandi hraun-
strauminn renna niður hliðarnar.
Við erum komnir á hin fengsælu
mið við Vestmannaeyjar.
Strax i birtingu er farið að
kasta. A dekkinu bölvar mann-
skapurinn, þvi askan frá Eyjum
leggst yfir skipið og smá korn
fara i augun og undan þeim
sviður. Nótinni er rennt út aftur
og aftur og siðan dregin jafn-
harðan að. En stóra kastið lætur
ekki sjá sig. Þetta eru allt
bölvaðar „pyðrur”, eins og
mannskapurinn segir.
Svona er haldið áfram allan
daginn með smá hvildum inn á
milli þegar „kippt” er á önnur
mið. En fyrir skipstjórann er
engin hvíld á meðan á þessu
stendur.
Þegar liður á daginn segir hann
að það sé eins gott að fara að
koma sér i land með þennan
slatta. Við fréttum það við mat-
borðið, að þetta sé einn versti
túrinn á þessari vertið. 1 lestinni
séu ekki nema um 200 tonn, eða
um 500 tonnum minna en skipið
ber. Það hafi þurft 12 köst til að
ná þessum 200 tonnum og þar með
hafi þeir farið yfir 150 köst á
þessari vertið og jafnframt yfir 14
þúsund tonna heildarafla. Þaö
gerir að meðaltali um 95 lestir i
kasti...Geri aðrir betur!
AFMÆLISHÓFIÐ
VERÐUR AÐ
BÍÐA EINS OG ANNAÐ
Það koma fréttir um að þróar-
rými sé að hafa i Njarðvikum.
Þangað er haldið og komiö að
bryggju um hádegi á föstudag
eftir tveggja sólarhringa útiveru.
Strax er byrjað að landa og þeir
sem eiga löndunarfri fá rétt tima
til að hlaupa upp i sjoppu til að
kaupa sér tóbak og lestrarefni.
Byggingafél. Afl s.f. selur
Reyni Friðþjófssyni hluta i Vest-
urbergi 72.
Margrét Þórðard. selur Guð-
rúnu Jónsd. hluta i Háaleitisbraut
48.
Byggingafél. Afl s.f. selur Guð-
mundi Gunnarss. hluta i Vestur-
bergi 70.
Byggingafél. Afl. s.f. selur Arn-
þóri Öskarssyni hluta i Vestur-
bergi 70.
Byggingafél. Afks.f. selur Hall-
dóri Einarss. hlutu i Vesturbergi
70.
Gunnar Þorsteinss. selur Guð-
mundi Pálssyni hluta i Kóngs-
bakka 8.
Elias Arnlaugsson o.fl. selja
Ninnu D. Leifsd. hluta i Grundar-
stig 4.
Jón Loftsson h.f. selur Stefáni
Briem.Einarsnes 22, lóðina.
Jóhann G. Filippusson o.fl.
selja Jóni B. Sveinss. hluta i
Ránargötu 11.
Herdis Gústafsson selur Eggert
Briem hluta i Asvallag. 5.
Hákon Guðmundss. selur
Gunnlaugi Kristinssyni hlula i
Mánagötu 20.
Byggingafél. Armannsfell h.f.
selur Hinrik Helga Hallgrimss.
hluta i Mariubakka 2.
Jóhann Hákonarson selur
Björgu R. Sigurðard. og Þorkatli
Helgasyni hluta i Hjarðarhaga 17.
Viglundur Þorsteinss. selur
Jónasi Sigurðssyni hluta i Meist-
aravöllum 11.
Jónas Thoroddsen selur Sigur-
geiri Sigurjónss. hluta i eignarlóð
að Grettisg. 52.
Bogi Ingimarsson selur Lúðvig
Eggertssyni hluta i eignarlóð að
Grettisg. 52.
Guðmundur Öskarsson o.fl.
selja Sölva óskarssyni hluta i
Lynghaga 26.
Jóhann Kristjánsson selur Jó-
hannesi Björnssyni hluta i Hraun-
bæ 150.
Ingibjörg Jónsdóttir o.fl. selja
Grétari Haraldss. og Guðm.
Þengilssyni hluta i Kleppsvegi
150.
Magnús Baldvinss. og Trésm.
Hákonar og Kristjáns selja
Kristjáni Jónssyni hluta i Jörfa-
bakka 24.
Sigurjón Halldórsson selur
Guðjóni Þór Guðjónssyni hluta i
Kóngsbakka 5.
Sigriður Einarsd. selur Páli
Stefánssyni hluta i Háaleitisbraut
153.
Bergþóra Júliusd. og Ingveldur
Jóhannesd. selur Guðfinni Gisla-
syni hluta i Klapparstig 13.
Steinunn Hallgrimsd. selur
Lárusi Haraldssyni hluta i
Lönguhlið 17.
Hinir hamast við að koma
aflanum i land og undirbúa brott-
förina, sem hefst eftir smá stund.
I þeim hópi er einn, sem á
þritugsafmæli þennan dag. En
honum gefst ekki tækifæri til að
gera sér dagamun frekar en öðr-
um þarna um borð fyrr en öllu
stappinu i kringum loðnuna er
lokið.
Þess er sjálfsagt ekki langt að
biða — en trúlega verður þá
Guðmundur RE kominn með á
land yfir 15 þúsund lestir af loðnu,
aflaverðmætið komið nálægt 35
milljónum króna og hlutur
hásetanna kominn vel á aðra
milljón og hinna eitthvað meira.
Þetta hefur allt gerzt á rétt 60
ævintýrarikum dögum i lifi hinna
harðduglegu skipverja á afla-
skipinu Guðmundi RE 29. —klp—
Gunnlaugur Helgason selur
Gunnari Sigurjónssyni hluta i
Reynimel 76.
Birgir Vigfússon selur Sig-
mundi Guðmundss. hluta i Reyni-
mel 82.
Byggingafél. Afl s.f. selur
Margréti Kristjánsd. hluta i
Vesturbergi 70.
Sturlaugur Grétar Filippusson
selur Hæng Þorsteinss. hluta i As-
enda 17.
Ólafur Briem selur Einari Guð-
mundss. fasteignina Bergþóru-
götu 11.
Auðunn Blöndal selur Birgi
Agústssyni húseignina Fossgil 1A
v/Breiðholtsveg.
FASTEIGN AVAL
T57T Um rt pM,« [ll» io P1 iBS ml 1 jg
Skólavörðustig 3A (11. hæð)
Simar 2-29-11 og 1-92-55
Fasteignakaupendur
Vanti yður fasteign, þá hafið
samband við skrifstofu vora.
Fasteignir af öllum stærðum
og gerðum, fullbúnar og i
smiðum.
Fasteignaseljendur
Vinsamlegast látið skrá fast-
eignir yðar hiá okkur.
Aherzla lögö á góða og
örugga þjónustu. Leitið upp-
lýsir.ga um verð og skilmála.
Makaskiptasamningar oft
mögulegir.
önnumst hvers konar samn-
ingsgerð fyrir yður.
Jón Arason hdl.
Málflutningur, fasteignasala
AFSALSBREF
innfærð 19/3 - 23/3 1973:
BERTICE READING
SKEMMTIR.
il I
LOFTLEIÐIR
BLÓMASALUR
KVÖLDVERÐUR FRA KL. 7.
BORÐAPANTANIR I SlMUM
22321 22322.
BORÐUM HALDIÐ TIL KL. 9.
VlKINGASALUR