Fréttablaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 15.08.2004, Blaðsíða 28
20 15. ágúst 2004 SUNNUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 12 13 14 15 16 17 18 Sunnudagur JÚLÍ ■ ■ LEIKIR  17.00 ÍBV og FH mætast á Hásteinsvelli í Landsbankadeild karla.  18.00 Fylkir og Fram mætast á Fylkisvelli í Landsbankadeild karla.  18.00 ÍA og KR mætast á Akranesvelli i í Landsbankadeild karla.  18.00 Grindavík og KA mætast á Hásteinsvelli í Landsbankadeild karla. ■ ■ SJÓNVARP  06.55 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Bein útsending frá keppni í sundi þar sem Íris Edda Heimisdóttir er á meðal keppen- da.  10.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Samantekt af keppni gærdagsins.  11.30 Formúla 1 á RÚV. Bein útsending frá kappakstrinum á Hungaroring í Ungverjalandi.  12.30 Á vellinum með Snorra Má á Skjá einum. Umræðuþáttur með gestum um komandi leiki dagsins í enska boltanum.  13.00 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Everton og Arsenal í ensku úrvalsdeildin- ni í fótbolta.  14.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Samantekt af keppni morgundagsins.  15.05 Enski boltinn á Skjá einum. Bein útsending frá leik Chelsea og Man.Utd.l í ensku úrvals- deildinni í fótbolta.  15.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Valdir kaflar frá leik Íslendinga og Króata í handbolta frá því í gær.  16.10 Gullmót JB á SÝN. Sýnt frá Gullmóti JB og Breiðabliks í yngri flokkum kvenna í knattspyrnu.  16.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Útsending frá úrslit- um í sundi.  16.45 Landsbankadeildin á Sýn. Bein útsending frá leik ÍBV og FH í toppslag Landsbankadeildar karla í knattspyrnu.  19.00 USA PGA Championship 2004 á Sýn. Bein útsending frá PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer í Wisconsin.  22.10 Ólympíukvöld á RÚV. Í þættinum er fjallað um helstu viðburði á Ólympíuleikunum í Aþenu. Umsjón hefur Logi Bergmann Eiðsson.  22.40 Fótboltakvöld á RÚV. Sýnt úr leikjum í 14. umferð Íslandsmótsins.  23.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu 2004 á RÚV. Samantekt frá kepp- ni dagsins á Ólympíuleikunum í Aþenu.  23.30 Íslensku mörkin á Sýn. Sýnt frá leikjum 14. umferðar í Landsbankadeild karla í knatt- spyrnu sem lauk í kvöld. Búið að vera mikið stress Keflvíkingurinn Íris Edda Heimisdóttir var örugg inn á ÓL þrem vikum fyrir leikana og hún ætlar að hafa gaman af því sem hún er að gera. Íris Edda hefur keppni í dag. ÓLYMPÍULEIKAR „Mér líður mjög vel hérna í lauginni enda finnst mér hún frábær. Hún er hröð og góð og hentar mér vel. Það gengur líka mjög vel hjá mér þannig að það er yfir litlu að kvarta nema kannski hitanum. Það er það eina sem þurfti að venjast en það er alveg komið,“ sagði hinn tvítugi Keflvík- ingur Íris Edda Heimisdóttir sem æfir með Íþróttabandalagi Reykja- nesbæjar. Íris Edda er að keppa á sínum öðrum ólympíuleikum og hún seg- ir það skipta máli að hafa reynslu af slíku móti. Hún þurfti að hafa mikið fyrir því að komast á leikana og eftir að hún komst inn hvarf stressið hjá henni. „Það er ekkert stress hjá mér núna. Það er alveg horfið. Ég var stressuð yfir því að komast ekki á leikana enda var ég í harðri baráttu við aðra stelpu um að komast hingað. Það var bara þrem vikum fyrir leikana sem ég fékk að vita að ég hafi komist inn og þá hvarf stressið. Nú er bara að hafa gaman af þessu. Það þýðir ekkert annað.“ ÓL-lágmarkinu náði Íris Edda á HM í fyrra en þrátt fyrir það var hún ekki örugg inn á leikana fyrr en seint í sumar. „Þetta er búið að taka á taugarn- ar í sumar. Ég fór síðast á mót í júlí og það var algjört baráttumót. Þá var ég að keppa í Króatíu en hin stelpan helgina á eftir mér. Þannig að ég varð að bíða í heila viku eftir því að vita hvort ég kæmist inn og það var erfitt.“ Líkt og Jakob Jóhann keppir Íris Edda í 100 metra bringusundi og hún hefur sett stefnuna á að nálgast enn frekar Íslandsmet Ragnheiðar Runólfsdóttur í Aþenu. „Eins og hjá fleirum þá verður örugglega smá stress rétt áður en ég keppi. Það er fullt af fólki og þetta eru Ólympíuleikar. Það þýðir samt ekkert að velta sér of mikið upp úr því. Maður verður bara að vera jákvæður og hafa gaman af því sem maður er að gera. Ég er í topp líkamlegu og andlegu formi og undirbúningur hefur gengið mjög vel. Ég hef aðeins þurft að glíma við andlegu hliðina, það hef- ur verið mín veika hlið en það er allt að koma og vonandi smellur þetta hjá mér,“ sagði Íris Edda sem á best 1:13,28 mínútur en hún stefnir á að komast undir 1:13 í Aþenu. ÍRISI LÍÐUR VEL Í LAUGINNI Keflvíking- urinn Íris Edda Heimisdóttir hefur keppni á Ólympíuleikunum í dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.