Fréttablaðið - 25.08.2004, Blaðsíða 14
14 25. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR
Þriðjungur Bandaríkjamanna með of háan
blóðþrýsting:
Offitu um að kenna
BANDARÍKIN, AP Þriðjungur full-
orðinna Bandaríkjamanna þjáist
af of háum blóðþrýstingi en slíkt
getur aukið líkurnar á hjarta-
áföllum, nýrnabilunum og fjöl-
mörgum öðrum heilsuvandamál-
um. Þetta eru niðurstöður könn-
unar sem stjórnvöld stóðu fyrir
og fara þau ekki í neinar graf-
götur með að þetta megi útskýra
með fitufaraldrinum sem gengið
hefur yfir Bandaríkin undanfar-
in ár.
Um mikla fjölgun fólks með
þetta vandamál er að ræða en
sams konar könnun sem gerð
var fyrir áratug sýndi að 50
milljónir Bandaríkjamanna
þjáðust af háum blóðþrýstingi.
Hefur því fjölgað í þessum
áhættuhópi um 15 milljónir á
einum áratug. Niðurstöðurnar
eru enn verri þegar tekið er tillit
til þess að fyrir 20 árum sýndu
tölur að þeim fækkaði sem voru
með háan blóðþrýsting.
LÁNAMARKAÐUR Verðstríð er í upp-
siglingu á lánamarkaði til einstak-
linga. Ný lán KB banka með 4,4
prósenta vöxtum munu ýta af stað
skriðu sem ekki er séð fyrir end-
ann á. „Þetta er sprengja inn á
lánamarkaðinn,“ segir Jafet
Ólafsson, forstjóri Verðbréfastof-
unnar.
Fundir voru í öllum helstu fjár-
málastofnunum í gær til þess að
skoða viðbrögð við nýju útspili.
Stjórnendur Íbúðalánasjóðs héldu
fund sama dag og KB banki
kynnti lánin. Innan Íbúðalána-
sjóðs eru ekki teljandi áhyggjur
af þróuninni. Þar telja menn þessa
óvæntu samkeppni tímabundna.
KB banki haf einfaldlega nýtt sér
bilið fram til þess að 90% lán taki
gildi, auk þess að hafa veðjað á að
vextir muni áfram fara lækkandi.
Íbúðalánasjóður andar
rólega
Hallur Magnússon hjá Íbúðalána-
sjóði segir hlutverk Íbúðalána-
sjóðs að veita bönkunum aðhald á
markaði. Hjá sjóðnum gráti menn
ekki þótt markaðshlutdeildin
minnki eitthvað. „Okkur líst mjög
vel á það að íslenskir bankar
treysti sér núna til þess að bjóða
vexti sem nálgast íbúðalánasjóð.
KB banki veðjar á það að vextir
almennt muni lækka. Það er alveg
ljóst að langtímavextir á skulda-
bréfum hafa lækkað vegna breyt-
inga og endurskipulagningar á
skuldabréfaútgáfu Íbúðalána-
sjóðs. Við erum að sjá þennan ár-
angur af vinnu okkar undanfarna
sex til átta mánuði.“ Hann segir
Íbúðalánasjóð ekki grípa til sér-
stakra ráðstafana vegna þessa,
heldur muni sjóðurinn fylgja
ávöxtunarkröfu markaðarins.
Jafet segir þegar merki þess
að útspil KB banka sé farið að
hafa áhrif á markaðinn til lækk-
unar. „Þetta er mjög ánægjuleg
þróun og með þessu áframhaldi
munum við sjá svipaða ávöxtun-
arkröfu á íbúðalán og gerist í ná-
grannalöndunum.“ Ávöxtunar-
kröfu sem er víða á bilinu 3 til 3,5
prósent.
Tækifæri fyrir eldra fólk
KB banki hefur skilgreint mark-
hópinn sinn í þessum lánum.
Margir sem keyptu íbúðahúsnæði
á fyrrihluta hækkunartímabilsins
hafa myndað yfir 20 prósenta eign
í henni, þrátt fyrir 100 prósent
lántöku í upphafi. Mismunurinn
var fjármagnaður með dýrari lán-
um. Fyrir þennan hóp er hag-
kvæmt að sameina lánin í eitt lán
með 4,4 prósenta vöxtum og spara
töluverðan vaxtakostnað. Þótt
miðað sé við fyrsta veðrétt íbúð-
arhúsnæðis, skiptir bankinn sér
ekki af því hvað gert er við pen-
ingana. „Ég sé fyrir mér að eldra
fólk sem á dýrar skuldlausar eign-
ir muni nýta sér þetta til þess að
losa um fé, án þess að flytja úr
húsnæðinu,“ segir Jafet.
Samkeppninni verður svarað.
Stíf fundahöld hafa verið í Lands-
SMS LEIKUR
HALLE BERRY ER
Viltu miða?
Vinningar verða afhenTir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Sendu SMS skeytið BT CAT á númerið
1900 og þú gætir unnið.
9. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar á myndina · Catwoman tölvuleikir
DVD myndir · Margt fleira.
Sjáðu myndina
Spilaðu leikinn
DJARFT ÚTSPIL
Ný lán KB banka hafa sett allt á annan endann í bönkunum. Aðrir munu fylgja í kjölfarið. Möguleikar einstaklinga til að bæta lánakjör sín
hafa aldrei verið betri.
HALLUR MAGNÚSSON
Fagnar samkeppninni og segir Íbúðalána-
sjóð halda sínu striki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
BARÁTTAN Á LÁNAMARKAÐI
EINSTAKLINGA
Sprengja inn á lánamarkaðinn
Hafinn er harður slagur um viðskipti einstaklinga við bankana. Lán-
takendur hafa nú tækifæri til þess að endurfjármagna lán sín á betri kjörum.
Ný lán KB banka hafa sett lánamarkað einstaklinga á annan endann.
OFFITUSJÚKLINGUR
Á tíu árum hefur þeim fjölgað sem þjást af
háum blóðþrýstingi um 15 milljónir í
Bandaríkjunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/R
EU
TE
R
S