Fréttablaðið - 26.08.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
FIMMTUDAGUR
ÍA MÆTIR HAMMARBY
ÍA og FH leika í Evrópukeppni félagsliða.
ÍA mætir Hammarby frá Svíþjóð klukkan
17 á Akranesvelli og FH mætir skoska lið-
inu Dunfermline í Skotlandi klukkan
18.45. Í Landsbankadeild kvenna tekur
Stjarnan á móti KR klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
SKÚRIR Á VÍÐ OG DREIF Einkum
síðdegis. Rofar eitthvað til á milli, síst þó
með vesturströndinni. Hiti víðast 10-17
stig. Sjá síðu 6
26. ágúst 2004 – 231. tölublað – 4. árgangur
● heimili ● ferðir ● tíska
Buxur úr
gardínum
Brynja Valdís Gísladóttir:
● 55 ára í dag
Undirbýr stórafmæli
hljómsveitarinnar Loga
Hermann Ingi Hermannsson:
▲
SÍÐA 26
SKÓLAGJÖLD
GÆTU MARG-
FALDAST Samein-
ing Tækniháskólans
og Háskólans í Reykja-
vík gæti þýtt margföld
skólagjöld í þeim fyrr-
nefnda. Menntamála-
ráðherra segir ekkert
benda til að skólagjöld fæli efnaminni nem-
endur frá. Sjá síðu 6
VILL BÆTA STÖRF HÆSTARÉTTAR
Jón Steinar Gunnlaugsson ætlar að reyna
að bæta störf hæstaréttardómara verði
hann skipaður dómari. Umsóknarfrestur
rennur út á morgun. Sjá síðu 4
KORPÚLFSSTAÐIR HUGSANLEGA
SELDIR Stefán Jón Hafstein, borgarfull-
trúi R-listans, segir að það komi til greina
að selja Korpúlfsstaði. Skóflustunga að nýj-
um Korpuskóla var tekin í gær. Sjá síðu 2
ÓVÍST HVORT VEXTIR LÆKKI Ný lán
bankanna hafa þegar haft áhrif á ávöxtunar-
kröfu á markaði til lækkunar. Hækkandi
stýrivextir vinna á móti og ekki víst að vextir
bankanna lækki frekar í bráð. Sjá síðu 8
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 46
Tónlist 38
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 30
Sjónvarp 48
Íslensk framleiðsla skipar
mikilvægan sess í þjóðlífinu
og mun í vaxandi mæli standa
undir velferð þjóðarinnar.
SAMKEPPNI Vélamiðstöðin ehf., sem
er alfarið í eigu Reykjavíkurborgar
og Orkuveitu Reykjavíkur, hefur
fengið greiddar um 350 milljónir úr
borgarsjóði fyrir verkefni sem ekki
voru boðin út. Framundan er stórt
útboð á vegum Sorpu að verðmæti
um 600 milljónir króna og hefur
Vélamiðstöðin verið valin í hóp
fimm fyrirtækja sem líklegust eru
til að hreppa verkið.
Haustið 2002 var Vélamiðstöð
Reykjavíkur breytt í Vélamiðstöð-
ina ehf. Síðan þá hefur fyrirtækið
fengið fjölmörg verkefni án útboðs
hjá eiganda sínum, Reykjavíkur-
borg. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa greiðslur úr
borgarsjóði vegna þessara verk-
efna numið um 350 milljónum
króna. Meðal verkefna sem fyrir-
tækið hefur fengið með þessum
hætti eru sorphreinsun, snjómokst-
ur og vélaleiga.
Einkaaðilar sem keppa á þessum
markaði hafa kvartað yfir þessu og
bent á að fyrirtæki í eigu hins opin-
bera njóti betri kjara á lánamarkaði
en önnur fyrirtæki. Þá sé alls óvíst
hvort markaðsverð ráði greiðslum
til fyrirtækisins frá opinberum að-
ilum þegar því eru fengin verkefni
án útboðs. Samkeppnisstaðan sé því
mjög ójöfn.
Stjórnarformaður Vélamið-
stöðvarinnar er Stefán Jóhann Stef-
ánsson sem áður var formaður
stjórnar Innkaupastofnunar, auk
hans sitja í stjórn fyrirtækisins
Björn Ingi Sveinsson borgarverk-
fræðingur og Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri Orkuveitunnar. Í gær
voru opnuð tilboð í verkefni á veg-
um Sorpu og átti Vélamiðstöðin
lægsta boð í einn hluta þess. Stjórn-
arformaður Sorpu, Alfreð Þor-
steinsson, er jafnframt stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur, ann-
ars eigenda Vélamiðstöðvarinnar.
Framundan er 600 milljóna
króna útboð í flutning og véla-
vinnu fyrir móttöku Sorpu í Gufu-
nesi og hefur Vélamiðstöðin verið
valin í hóp fimm fyrirtækja og
kemur verkið í hlut eins þeirra.
borgar@frettabladid.is
Verk fyrir hundruð
milljóna án útboðs
Vélamiðstöðin ehf., sem er í eigu Reykjavíkurborgar, hefur fengið verkefni fyrir 350 milljónir
króna hjá borginni án þess að verkefnin hafi verið boðin út. Ójafn leikur, segja einkaðilar.
Opið til 21.00 í kvöld
EINKAVÆÐING Líklegt er að Lands-
síminn verði seldur fyrir áramót,
að sögn Stefáns Jóns Friðriksson-
ar, deildarsérfræðings í fjármála-
ráðuneytinu og starfsmanns
einkavæðingarnefndar.
„Það er erfitt að segja ná-
kvæmlega hvort það verði á þessu
ári eða hvort einkavæðingarferlið
dragist yfir á næsta ár,“ segir
Stefán. „Það ætti ekki að þurfa að
taka langan tíma.“
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, segir mjög heppilegt að
selja Landssímann fyrir áramót:
„Í vor var mjög góður tími fyrir
sölu og ég held að hann sé ekki
síðri núna.“
Stefán segir að útboð á ráðgjöf
sem verði einkavæðingarnefnd
til halds og trausts eigi eftir að
fara fram. Það gerist á næstu vik-
um. Einnig þurfi að fara yfir
ýmis grunnatriði um hvernig
Síminn ætli að standa að þjónustu
sem ríkið hefur hingað til veitt,
þegar það sleppir af honum hönd-
um. Það ætti heldur ekki að taka
langan tíma.
Stefán telur að 40 til 50 millj-
arðar fáist fyrir 99% hlut ríkis-
ins í Símanum. „Það er gróft
áætlað og ómögulegt að segja
hvernig markaðurinn tekur í
fyrirtækið á endanum.“ Undir
það tekur Edda Rós: „Símafyrir-
tæki erlendis hafa ekki hækkað
mikið frá síðasta söluferli en
þau hafa reyndar verið í erfið-
leikum sem Landssíminn hefur
ekki verið í.“ ■
Reikna með 40 til 50 milljörðum fyrir Símann:
Landssíminn í útboð fyrir áramót
FRAMSÓKNARKONUR RÆÐA BAKSLAG Í JAFNRÉTTISMÁLUM FLOKKSINS Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
og Siv Friðleifsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra og ritari Framsóknarflokksins, mættu á fund Landssambands framsóknarkvenna ásamt
130 öðrum flokksmönnum. Á fundinum ákváðu konur að efla tengslanet sitt og leita eftir áhrifastöðum innan flokksins. Sjá nánar síðu 2
VEÐRIÐ Í DAG
Ástralskt lestarfyrirtæki:
Milljónir í
leigubíla
FERÐALÖG Ástralska lestarfyrirtækið
Railcorp greiddi sem nemur fimm
milljónum króna í leigubíla á síð-
asta ári í sárabætur til farþega sem
lentu í „meiriháttar töfum“ í ferðum
sínum með lestum Railcorp.
Árið hefur reynst Railcorp erfitt.
Lestir félagsins hafa ítrekað verið
seinar, skortur hefur verið á lestar-
stjórum og oftar en einu sinni hefur
orðið að fresta ferðum vegna þess.
Þá hefur verið gripið til þess ráðs að
panta leigubíla fyrir þá verst stöddu
og nema hæstu reikningarnir tæp-
um 15 þúsund krónum. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI