Fréttablaðið - 26.08.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.08.2004, Blaðsíða 14
LEITAÐ Í BREIÐAFIRÐI Björgunar- sveitir á Snæfellsnesi leituðu í gær ásamt þyrlu Landhelgisgæsl- unnar að báti í nágrenni Höskuldseyjar á Breiðafirði vegna neyðarsendingar sem barst Tilkynningaskyldunni. Ekki reyndist vera um neyðarkall að ræða heldur höfðu merki sloppið út af neyðarsendi Skipavíkur í Stykkishólmi. Leitin stóð yfir í þrjár klukkustundir. Kallið kom frá neyðarsendi svipuðum þeim sem eru í gúmmíbjörgunarbátum. 14 26. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR FRJÁLS PARÍS Franskir slökkviliðsmenn veifa franska fán- anum á toppi Eiffel turnsins í París, í tilefni þess að 60 ár voru liðin frá því að borgin var frelsuð úr haldi Þjóðverja. Frelsun Parísar skipti sköpum fyrir sigur banda- manna í stríðinu. Breytingar á Seltjarnarnesi: Fjórar athuga- semdir komnar BÆJARSKIPULAG Fjórar athugasemdir hafa borist bæjaryfirvöldum á Sel- tjarnarnesi vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags við Hrólfsskálamel og Suðurströnd. Frestur til að skila athugasemdum rennur út í byrjun september. Við Suðurströnd á að byggja blokkir þar sem nú er íþróttavöllur og hefur það mætt nokkurri and- stöðu. Bærinn telur hins vegar að fjölgun íbúða í fjölbýli sé nauð- synleg til að halda í horfinu í íbúa- fjölda. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri vísar í þeim efnum til svæðaskipulags höfðuborgar- svæðisins þar sem kveðið er á um fjölgun íbúða og til lýðfræðiathug- unar sem ráðgjafarfyrirtæki vann fyrir bæinn. Hann bendir á að á Seltjarnarnesi búi um 30 prósent bæjarbúa í fjölbýli og segir eftir- spurn eftir slíku húsnæði. „Þannig að ég sé ekki að þetta ætti að breyta eðli byggðarinnar,“ segir hann. Jónmundur segist jafnframt stoltur af því hvernig bærinn hefur staðið að kynningu á breytingunum. „Því hefur verið lýst yfir af þar til bærum aðilum sennilega sé eins- dæmi meðal sveitarfélaga hversu vel hefur verið staðið að málum,“ segir hann, en ítarlegum kynningar- bæklingi með geisladiski var dreift á öll heimili í bænum. „Auk lög- bundinnar kynningar höfum við lagt okkur fram um að fá fólk til að kynna sér málið og taka til þess afstöðu.“ ■ Lögreglan er á betri bílum Talsvert átak hefur verið gert undanfarin ár í endurnýjun bíla- og tækjaflota lögreglunnar. Engar reglur eru þó til um hámarksnotkun eins og í nágranna- löndum og margir bílanna keyrðir fleiri hundruð þúsund kílómetra. LÖGREGLUMÁL „Það hefur verið gert stórátak í ökutækjamálum lögreglunnar í landinu og það er ekki langt í að hver og einn bíll verði beinlínutengdur við mið- stöð lögreglu,“ segir Guðmundur H. Jónsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá embætti Ríkis- lögreglustjóra. Í prófunum er nú þegar allur sá búnaður sem til þarf en slíkur búnaður í hverjum bíl mun þýða umtals- verðan tímasparnað fyrir lög- reglumenn í eftirliti. Þannig munu lögreglumenn í framtíðinni geta afgreitt fjölda mála gegnum tölvu í bílum sínum og prentað út skýrslu jafnóðum. Sá tími sem nú fer forgörðum bak við skrifborð vegna slíkra skýrslugerða nýtist þá mun betur við almennt eftir- lit á götum úti. Guðmundur segir að mikill munur sé á bílaflota lögregl- unnar nú og áður enda var bíla- flotinn að heita endurnýjaður með öllu árið 2000. „Mörg öku- tæki fyrir þann tíma voru hvort tveggja komin til ára sinna og úr sér gengin en í dag má segja að stærsti hlutinn sé nýr eða nýleg- ur. Það segir þó ekki alla söguna því mismunandi embætti nota bíla sína mismikið í samræmi við umdæmi sín. Þannig aka lög- reglumenn á Selfossi bílana að meðaltali 150 þúsund kílómetra á ári meðan lögreglubíll á Siglu- firði fer 20 þúsund kílómetra.“ Guðmundur segir að við þessu sé brugðist með því að færa ökutæki milli umdæma en slíkt geti farið fyrir ofan garð og neðan hjá starfandi lögreglu- mönnum. „Það er eðlilegt að menn séu missáttir við slík skipti en þetta er eina leiðin sem við höfum til að jafna þennan mun milli embætta.“ Alls munu vera um 155 öku- tæki í eigu lögreglu á landinu öllu auk þess sem lögreglan í Reykjavík hefur yfir fimm bif- hjólum að ráða. Bílarnir eru af fjórtán mismunandi tegundum og að langmestu leyti með sams konar búnað. albert@frettabladid.is Kambódískur dómari: Klagar munka fyrir hávaða KAMBÓDÍA Hæstaréttardómari í Kambódíu hefur klagað búdda- munka til yfirvalda fyrir að vekja sig með helgisiðum á nótt- unni. Munkarnir hafa fyrir sið að berja á málmgjöll klukkan fjögur á nóttunni og vaknar dómarinn jafnan við það. Dómarinn hefur beðið trúar- bragðaráðuneytið að skakka leikinn og banna munkunum að trufla svefn sinn. Hann segir at- hæfi þeirra ósiðlegt. Æðsti munkurinn í umræddu klaustri segir kvartanir dómarans bera vott um hatur, bæði í garð klaustursins og búddisma. Í Kambódíu búa þrettán milljónir manna, en 95 prósent þeirra eru búddistar. ■ AÐ STÖRFUM Á HORNSTRÖNDUM Landmælingar Íslands hafa meðal annars notið aðstoðar Landhelgisgæslunnar við mælingar sínar á afskekktum stöðum. Landmælingar: Landrek skekkir grunn- stöðvanet KORTAGERÐ Úrvinnsla gagna úr endurmælingum grunnstöðvanets Landmælinga Íslands stendur yfir, en mælingum lauk um miðjan mánuðinn. Fyrrihluta mánaðarins stóðu Landmælingar, í samvinnu við aðrar ríkisstofnanir, fyrir endur- mælingunum, en vegna reks land- fleka Evrópu og Ameríku þarf að mæla upp á nýtt með reglulegu millibili. Á heimasíðu Landmælinga Íslands kemur fram að tilgangur mælinganna sé að útvega fullgilda og áreiðanlega undirstöðu fyrir all- ar mælingar hvort sem er á vegum hins opinbera eða einkaaðila. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Veitingahús í Bandaríkjunum: Áhersla á vist- vænar afurðir BANDARÍKIN, AP Veitingahúsakeðja í Oregon fylki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styðja sjálfbæran land- búnað og notar því aðeins kjöt af dýrum sem hafa ekki verið gefin hormón og sýklalyf eða hafa verið alin á erfðabreyttu fóðri. Veitingahúsin kaupa aðeins kál og grænmeti sem ræktað hefur verið í nágrenninu. Djúpsteikingarolía verður endurnýtt sem dísilolía og að- eins verður boðið upp á villtan lax. Forsvarsmenn keðjunnar segja að með þessu móti tryggi þeir ferskari og bragðbetri vörur sem viðskiptavinir séu tilbúnir að greiða meira fyrir. ■ STJÓRNARHERRAR Í SÚDAN Utanríkisráðherra og landsmálaráðherra Súdans segja ástandið í Darfur vera á ábyrgð innlendra stjórnvalda, ekki erlendra. Súdönsk stjórnvöld: Vilja ekki hermenn sambandsins NÍGERÍA, AP Súdönsk stjórnvöld vilja ekki að Afríkusambandið taki að sér víðtækara hlutverk en það gerir nú þegar í Darfur-héraði. Stjórnvöld segja friðargæslu í héraðinu vera á ábyrgð síns eigin hers. Sú hugmynd kom upp að Afríku- sambandið myndi senda 2000 her- menn til að stilla til friðar í Darfur á samningafundi súdanskra skæru- liða og stjórnvalda í Nígeríu í dag. Súdanir útiloka þó ekki ekki frekari aðkomu Afríkusambandsins seinna. Rúmlega 150 hermenn frá Rúanda eru í Darfur til að gæta öryggis eftirlitsmanna Afríkusam- bandsins og 150 hermenn til við- bótar frá Nígeríu eru væntanlegir. ■ Syrgjandi í Hong Kong: Reyndi að opna líkkistu HONG KONG Lögreglan í Hong Kong þurfti að halda aftur af syrgjandi manni sem reyndi að ljúka upp lík- kistu móður sinnar til að geta borið hana augum í síðasta sinn. Þegar líkvagninn var við það að aka af stað til kirkjugarðsins stökk maðurinn að kistunni og barði á hana. Lögreglan tók hann föstum tökum og vísaði honum burt. Hann veitti líkvagninum eftirför á leigu- bíl en gat ekki stöðvað vagninn. Maðurinn hefur átt í deilum við hálfsystkin sín sem vildu ekki að fyrra ættarnafn konunnar og ættar- nafn sonar hennar, kæmi fram á legsteininum. ■ Sala í Íslandsbanka til Burðaráss: Kauphöllin vill vita verðið VIÐSKIPTI Verð bréfa Íslandsbanka sem Burðarás keypti af Orra Vig- fússyni hefur ekki verið gefið upp. Burðarás keypti eignarhaldsfélag Orra, Urriða, sem átti yfir fimm prósenta hlut í Íslandsbanka. Orri er fruminnherji í Íslands- banka, auk þess sem um var að ræða prósentu yfir tilkynninga- mörkum. Hefðu bréf Íslandsbanka verið seld milli félaganna væru engin tvímæli um að tilkynna bæri uppæðir í viðskiptunum. Út á markaðnum telja margir að með sölu á Urriða til Burðarás sé verið að fara í kringum reglur. „Við höfum verið í samskiptum við aðila og við teljum að þetta séu við- skiptahættir sem eru óheppilegir fyrir hlutabréfamarkaðinn,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup- hallar Íslands. „Við erum þeirrar skoðunar að þetta séu upplýsingar sem hefðu átt að birtast.“ Þórður segir að Kauphöllin muni ganga eftir þessum upplýs- ingum, nema að sýnt verði fram á það með rökum að heimilt sé að halda leyndum upplýsingum af þessu tagi. Hann segir óheppi- legt fyrir markaðinn ef menn geti farið í kringum upplýsinga- gjöf með því að stofna sérstök félög utan um eign sína og selja þau síðan í stað þess að selja eignirnar. ■ ÓHEPPILEGIR VIÐSKIPTAHÆTTIR Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar vill vita og að aðrir viti hvað Orri Vigfússon fékk fyrir bréf sín í Íslandsbanka sem hann seldi til Burðaráss. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R LÖGREGLUBÍLAR Í REYKJAVÍK Þrátt fyrir átak í endurnýjun ökutækja lögreglu á landinu er notkun þeirra svo mikil að flestir eru eknir vel yfir þrjú hundruð þúsund kílómetra. Í Danmörku er lögreglubílum skipt út eftir 150 þúsund kílómetra akstur þrátt fyrir að vegir þar séu að jafnaði betri en hérlendis. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L NÝJAR BLOKKIR SÉÐ FRÁ VALHÚSASKÓLA Jónmundur Guðmarsson segist helst verða var við að íbúar í næsta nágrenni skipulags- svæðanna sem til umfjöllunar eru hjá bænum og þá sérstaklega í nágrenni Suðurstrandar séu uggandi um sinn hag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.