Fréttablaðið - 26.08.2004, Qupperneq 58
30 26. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI FH-ingar mæta í kvöld
skoska liðinu Dunfermline öðru
sinni í forkeppni Evrópukeppni
félagsliða. Fyrri leikurinn, sem
fram fór á Laugardalsvelli, end-
aði 2-2 og þótti flestum FH-ing-
um, og reyndar íslenskum knatt-
spyrnuunnendum, það frekar
súrt í broti þótt fyrir fram væru
Skotarnir taldir töluvert sterkari.
FH-ingar léku nefnilega geysi-
lega vel lungann úr þeim leik,
komust í 2-0 og voru afar óheppn-
ir að bæta ekki við marki eða
mörkum. Skotunum tókst síðan
að jafna metin á lokakaflanum og
þóttu sleppa vel.
Bölvaðir klaufar
Fréttablaðið sló á þráðinn til
Ólafs Jóhannessonar, þjálfara
FH-inga, og heyrði í honum hljóð-
ið. „Við vorum bölvaðir klaufar
að vinna ekki sigur á Skotunum á
Laugardalsvelli en sá leikur er
búinn og við hugsum ekki meira
um hann. Við lærðum auðvitað
heilmikið af honum og hyggjumst
nýta okkur það í leiknum í kvöld.
En við komum ekki til með að
breyta leik okkar því í raun erum
við undir og þurfum að sækja –
það er ekkert nema sigur sem
kemur okkur áfram í næstu um-
ferð og þangað stefnum við óhik-
að. Svo er það nú einu sinni stað-
reynd að sóknarbolti hentar okk-
ur best. Við erum ekkert varna-
lið, það verður bara að segjast
eins og er.“
Vanmat Skotanna
Ólafur er á því að Skotarnir hafi
ekki búist við mikilli mótspyrnu í
fyrri leiknum. „Þeir hafa ábyggi-
lega vanmetið okkur en það gerist
reyndar mjög oft þegar atvinnu-
menn spila við áhugamenn og var
því í sjálfu sér ósköp eðlilegt. Ég
er hins vegar ekkert viss um að
þeir vanmeti okkur núna. Þeir eru
vissulega með forystuna og ætla
sér eflaust að verja hana en við
sjáum hvað setur. Ég held að það
sé rétt hjá mér að í útileikjum FH
í Evrópukeppnunum í gegnum tíð-
ina hafi liðinu alltaf tekist að skora
og ég vona að það haldist.“ Ólafur
er ákveðinn í svörum þegar hann
er spurður um möguleikana í
leiknum í kvöld: „Við erum mættir
hingað til að sigra, annars gætum
við bara verið heima hjá okkur. Við
erum ekkert að standa í þessu bara
til að standa í þessu – við ætlum
okkur að fara áfram og leggjum
allt undir til þess að það takist.“
Það skemmtilegasta sem við
gerum
En er Ólafur ekki bara á því að
þátttaka FH-inga í Evrópukeppn-
inni sé til þess fólgin að styrkja
liðið fyrir lokaátökin í deildinni
og bikarnum hérna heima? „Ég
ætla svo sannarlega að vona það.
Svo framarlega sem við missum
ekki menn í meiðsli þá styrkir
þátttakan liðið mjög svo og þá
sérstaklega andlegu hliðina.
Þetta er einfaldlega það skemmti-
legasta sem við sem fótboltalið
gerum og við ætlum að njóta
dagsins,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari FH-inga.
sms@frettabladid.is
MARK Allan Borgvardt og Emil Hallfreðsson fagna hér marki þess fyrrnefnda í fyrri leik FH og Dunfermline á Laugardalsvelli. FH-ingar
voru klaufar að vinna ekki þann leik og ætla sér að gera betur í Skotlandi í dag.
FÓTBOLTI Skagamenn fá sænska lið-
ið Hammarby í heimsókn í kvöld.
Leikurinn er liður í forkeppni
Evrópukeppni félagsliða og mun
skera úr um hvort liðið fer áfram.
Hammarby er með vænlega stöðu
eftir að hafa unnið fyrri leik lið-
anna, 2-0, og þurfa Skagamenn
því að skora a.m.k. tvö mörk í
leiknum til að eiga möguleika.
Ólafur Þórðarson, þjálfari
Skagamanna, var brúnaþungur
fyrir leik liðanna og sagði sína
menn þurfa að berjast til síðasta
blóðdropa. „Það er ósköp lítið um
þennan leik að segja annað en það
að þetta verður mjög erfiður leik-
ur fyrir okkur,“ sagði Ólafur í
samtali við Fréttablaðið. „Það var
í raun ekkert sem kom á óvart í
fyrri leiknum í Svíþjóð. Við vor-
um búnir að fá greinargóðar upp-
lýsingar á liðinu og vissum því að
hverju við gengjum.“
Ólafur sagðist ekki ætla að
breyta mikið til í skipulagi leiks-
ins en átti von á að liðskipan sinna
manna gæti breyst eitthvað.
„Leikskipulagið verður ósköp
svipað og í fyrri leiknum. Grétar
og Ellert Jón eru hins vegar báðir
meiddir þannig að það verða ein-
hverjar mannabreytingar frá úti-
leiknum, það er alveg ljóst.“
Með sigri í leiknum og áfram-
haldandi þátttöku gæti aðeins birt
til hjá Skagamönnum, sem hafa
ekki náð að sýna sitt rétta andlit í
bikar- og deildarkeppninni.
„Við höfum átt í erfiðleikum
bæði í deildinni og bikarnum en
það er ekki þar með sagt að sum-
arið skilji ekki eitthvað eftir sig,
þó að vinnist ekki titill. Við eigum
ennþá góða möguleika á að bæta
stöðu okkar í deildinni og við ger-
um allt sem við getum til að kom-
ast sem hæst þar,“ sagði þjálfari
Skagamanna.
Leikur liðanna fer fram á
Akranesvelli í dag og hefst klukk-
an 17.00.
smari@frettabladid.is
ÍA mætir sænska liðinu Hammarby í Evrópukeppni félagsliða á Akranesvelli í dag klukkan fimm:
Erfiður leikur hjá Skagamönnum
SKAGAMENN Hafa ekki náð að að sýna
sitt rétta andlit í bikar- og deildarkeppn-
inni. Það verður á brattann að sækja fyrir
þá í kvöld.
Átta liða úrslit:
Áfram eftir
vítakeppni
ÓLYMPÍULEIKAR Þjóðverjar tryggðu
sér sæti í átta liða úrslitum hand-
boltans á Ólympíuleikunum í Aþ-
enu í fyrradag þegar þeir lögðu
Spánverja að velli 32-30 eftir víta-
keppni. Mikil dramatík einkenndi
leikinn en Spánverjar leiddu, 16-
15, í hléi. Staðan var jöfn 27-27
þegar venjulegur leiktími rann út.
Staðan var jöfn eftir framleng-
ingu, 30-30, og þurfti þá að grípa
til vítakeppni. Henning Fritz,
markvörður Þjóðverja, varði tvö
vítaköst frá Frökkum og tryggði
þjóð sinni sæti í undanúrslitum.
Íslensku dómararnir Stefán Arn-
aldsson og Gunnar Viðarsson
dæmdu leikinn.
Í undanúrslitum mæta Þjóð-
verjar Rússum, sem lögðu Frakka
að velli, 26-24. Frakkarnir hófu
leikinn betur en Rússarnir sigu
fram úr þegar líða fór á leik.
Í hinum undanúrslitaleiknum
mætast Ungverjar og Króatar.
Ungverjar lögðu Suður-Kóreumenn
að velli, 30-25, í átta liða úrslitum.
Króatar unnu hins vegar Grikki,
spútniklið mótsins, 33-27, eftir að
hafa leitt með átta marka mun í
hálfleik. Undanúrslitaleikirnir fara
fram á föstudaginn kemur. ■
FÖGNUÐUR Stefan Kretchmar fagnar
markverðinum Henning Fritz sem varði tvö
víti í vítakeppni Þýskalands og Frakklands í
átta liða úrslitum í handbolta á Ólympíu-
leikunum.
FÓTBOLTI Frammistaða FH-inga í
Landsbankadeildinni hefur
greinilega spurst vel út. Liðið
mætir Dunfermline í kvöld og
mörg augu útsendara koma til
með að fylgjast með leikmönnum
liðsins. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins eru forráðamenn
enska 1. deildarfélagsins Preston
North End að skoða tvo leikmenn
FH-inga, þá Allan Borgvardt og
Atla Viðar Björnsson. Í samtali
við blaðið vildi Atli Viðar ekki
kannast við áhuga Preston. „Það
eina sem ég veit er að það verður
einhver haugur af útsendurum á
leiknum í kvöld, hverja þeir eru
að skoða hef ég ekki hugmynd
um.“ Í sama streng tók fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
FH, Pétur Stephensen. „Þetta á
ekki við nein rök að styðjast. Ég
er búinn að athuga málið og það er
enginn á vegum Preston að skoða
okkar menn. Við höfum hins veg-
ar fregnir af því að það verði þó
nokkuð af útsendurum að skoða
okkar menn í þessum leik og ekk-
ert nema gott um það að segja.“ ■
Íslenskir leikmenn eftirsóttir:
Menn á eftir
FH-ingum
Við ætlum okkur áfram
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH-inga, sem mæta skoska liðinu Dunfermline ytra í kvöld í
forkeppni Evrópukeppni félagsliða, segir Fimleikafélagið eiga möguleika.