Fréttablaðið - 26.08.2004, Síða 51
Trúlega hefur verið
búið að ákveða það
strax við stjórnarmyndun á
sl. ári, að Siv ætti að víkja
en beðið með að opinbera
það.
Brottvikning Sivjar veldur ólgu í Framsókn
Það hefur legið í loftinu um nokkurt
skeið, að Halldór Ásgrímsson for-
maður Framsóknarflokksins ætlaði
að víkja Siv Friðleifsdóttur úr ríkis-
stjórninni 15. september nk., þegar
Framsókn missir einn ráðherra
vegna samninga við Sjálfstæðis-
flokkinn. Nítjánda ágúst sl. lét Hall-
dór höggið ríða og tilkynnti ákvörð-
un sína á fundi þingflokks Fram-
sóknar. Látið var líta út sem þetta
væri ákvörðun þingflokksins en í
rauninni var það formaður Fram-
sóknar sem réði þessu.
Allir ráðherrar Framsóknar að
Siv undanskilinni studdu ákvörðun
formannsins, svo og formaður
þingflokksins, Hjálmar Árnason,
og formaður fjárlaganefndar,
Magnús Stefánsson. Allir þessir
menn eiga allt sitt undir formanni
flokksins. Kristinn H. Gunnarsson
var ekki sáttur við þessa ákvörðun
formannsins. Hann lýsti því yfir í
sjónvarpsviðtali eftir fundinn, að
það væri of lítið að hafa aðeins
eina konu í ráðherraliði Framsókn-
ar. Líklegt má telja, að Jónína
Bjartmars hafi einnig verið ósátt
við ákvörðun formannsins. Og Siv
sjálf lýsti því yfir, að hún væri
ósátt við afgreiðslu málsins. Það
var viðurkennt, að ágreiningur
hefði verið um ákvörðun formanns
flokksins í þingflokknum.
Mikil ólga er í Framsókn vegna
máls þessa. Fjörutíu áhrifamiklar
konur í Framsóknarflokknum
birtu auglýsingu í Fréttablaðinu,
þar sem þær skoruðu á þingflokk
Framsóknarflokksins að skerða
ekki hlut kvenna í ráðherraliði
Framsóknar. Forustumenn sam-
taka kvenna innan Framsóknar
hafa lýst hinu sama yfir og sagt, að
samkvæmt lögum Framsóknar-
flokksins ættu konur að hafa 40%
embætta flokksins. Þær voru
undir því marki áður en Siv var
vikið úr stjórninni og fara langt
undir það mark eða niður í 20%.
Fleiri áhrifamiklir aðilar innan
Framsóknar hafa látið hið sama í
ljós. En forusta Framsóknar hefur
blásið á allar mótmælaraddir. For-
maður flokksins hafði fyrir löngu
ákveðið málið og því varð ekki
breytt. Engin rök hafa verið flutt
til stuðnings því, að Siv ætti frem-
ur að víkja en einhver annar ráð-
herra. Ekki hefur verið unnt að
rökstyðja það, að hún væri verri
ráðherra eða hefði minni hæfileika
en hinir ráðherrar Framsóknar.
Geðþóttáakvörðun virðist hafa
ráðið í máli þessu. Helst virðist
sem það hafi ráðið, að þeir skyldu
sitja sem væru þægir forustunni.
Trúlega hefur verið búið að
ákveða það strax við stjórnar-
myndun á sl. ári, að Siv ætti að
víkja en beðið með að opinbera
það. Hvers vegna? Jú, til þess að
allir ráðherrar Framsóknar væru
óöruggir með sig og því þægari.
Þetta eru úreltar stjórnunarað-
ferðir. Nútíma stjórnunaraðferðir
byggjast á samráði og opnu lýð-
ræði en ekki pukri og einræðistil-
hneigingum. ■
23FIMMTUDAGUR 26. ágúst 2004
Í fótspor Djengis Khan
Ef marka má kínversku fréttastofuna Xinhua
þá er Davíð Oddsson ekki eini þjóðarleið-
togi sögunnar sem hefur verið listhneigður.
Tengis Bayaryn, prófessor við háskólann í
Innri Móngólíu, sem er hluti af Kína, hefur
uppgötvað skjal frá 1219 sem mun vera
undirritað af valdamesta heimsvaldi sög-
unnar, sjálfum Djengis Khan (en nafn hans
er einmitt heiðurstitill sem merkir „heims-
valdur“). Bréfið var sent Chang Chun, kunn-
um sérfræðingi í hinum daóíska sið sem bjó
í Hindu Kush. Að sögn Bayaryn ber það þess
merki að vera samið af Djengis Khan sjálf-
um og er því vísbending um að heimsvald-
urinn hafi ekki verið ólæs og óskrifandi eins
og áður hefur verið talið, enda varð mong-
ólskt ritmál ekki til fyrr en á 13. öld.
Sverrir Jakobsson á murinn.is
Grikkir réðu við leikana
Ferðin inn í Ólympíulandið er mér ógleym-
anleg og örugglega öllum öðrum, sem hana
hafa farið, hvert svo sem erindi þeirra hefur
verið. Mestu skiptir auðvitað þátttaka
íþróttamannanna sjálfra og ekki þarf annað
en sjá ljómann í andliti þeirra að sigri unn-
um til að sjá, hve mikils virði er, að fá þetta
einstæða tækifæri til að sýna, hvað í manni
býr. Fyrir leikana að þessu sinni var því spáð,
að Grikkir mundu ekki ráða við þetta risa-
stóra verkefni. Eftir því sem ráðið verður af
fréttum, þegar leikarnir eru hálfnaðir, var hér
um órökstuddar hrakspár að ræða. Megi
takast að ljúka leikunum árið 2004 á farsæl-
an hátt!
Björn Bjarnason á bjorn.is
„Skilningsríkir“ stjórnmálamenn
Eitt af því sem Vefþjóðviljinn hefur kveinkað
skattgreiðendum undan, eru skilningsríkir
stjórnmálamenn. Það er að segja, stjórn-
málamenn sem þrýstihópar telja að „hafi
skilning á mikilvægi“ þess málefnis sem
agiterað er fyrir. Það að stjórnmálamaður
„hafi skilning á mikilvægi íþrótta“ þýðir ein-
faldlega að hann lætur undan þegar íþrótta-
álfarnir mæta til hans og heimta ný „íþrótta-
mannvirki“.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Deilur magnast án stéttabaráttu
Fram eftir 20. öldinni einkenndust pólitískir
flokkadrættir í flestum lýðræðisríkjum af
stéttabaráttu. Efnafólk var líklegra til þess að
kjósa hægriflokka á meðan þeir sem minna
höfðu milli handanna studdu vinstriflokka.
Bandarísk stjórnmál voru engin undantekn-
ing. Demókrataflokkurinn sótti þá stærstan
hluta af sínum stuðningi til verkafólks.
Stuðningur við Repúblikanaflokkinn var
meiri þeim mun ofar sem komið var í tekju-
stigann. Á síðustu áratugum hefur þetta
samband milli tekna og stuðnings við
ákveðna stjórmálaflokka nánast horfið í
Bandaríkjunum. Samt hefur lítið sem ekkert
dregið úr hugmyndafræðilegum deilum
milli Demókrata og Repúblikana. Að margra
mati hafa deilur milli flokkanna jafnvel auk-
ist á síðustu 10 árum eða svo.
Jón Steinsson á deiglan.com
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
RÁÐHERRAKAPALLINN
,,
AF NETINU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um efni
Fréttablaðsins eða málefni líðandi
stundar. Greinar og bréf skulu vera
stutt og gagnorð. Ritstjórn áskilur sér
rétt til að stytta aðsent efni. Einnig
áskilur ritstjórn sér rétt til að birta
aðsent efni að meginhluta á vefsíðu
blaðsins, sem er Vísir.is, og vísa þá til
þess með útdrætti í blaðinu sjálfu.
Vinsamlega sendið efni í tölvupósti á
greinar@frettabladid.is. Þar er einnig
svarað fyrirspurnum um lengd greina.