Fréttablaðið - 05.09.2004, Qupperneq 2
2 5. september 2004 SUNNUDAGUR
Fáskrúðsfjarðargöngin:
Ráðherrann tendraði síðustu sprenginguna
SAMGÖNGUR Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra sprengdi haft-
ið í jarðgöngunum á milli Fá-
skrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar
við hátíðlega athöfn í gær. Stefnt
er að því að göngin verði tilbúin
eftir eitt ár.
Unnið hefur verið við gangna-
gerðina síðustu fimmtán mánuði
og hafa um sjötíu til níutíu manns
komið að verkinu. Göngin verða
5,7 kílómetra löng og verða þau
tvíbreið. Þau munu stytta vega-
lengdina á milli fjarðanna tveggja
um þrjátíu kílómetra. Heima-
menn hafa lengi talið gerð gangn-
anna mikið hagsmunamál þar sem
gamli vegurinn þykir varasamur,
einkum í Skriðunum. Það mátti
því greina mikla ánægju í fasi
þeirra sem voru viðstaddir
sprenginguna í gær.
Sturla Böðvarsson tendraði
sprengiþráðinn og varð skömmu
síðar mikil sprenging. Ráðherr-
ann sagði við þetta tilefni að fram-
kvæmdin stækkaði atvinnusvæð-
ið og stórbætti samgöngukerfi
landsmanna í heild sinni. Verk-
takakostnaður við göngin er áætl-
aður um 3,2 milljarðar króna.
Gíslatakan er
stríðsyfirlýsing
Gíslatakan í barnaskólanum í Beslan er sú stærsta í sögu Rússlands. Pútín
Rússlandsforseti segir Rússa hafa sofnað á verðinum og sýnt hryðjuverka-
mönnum linkind. Gíslatakan sé stríðsyfirlýsing við Rússland.
HRYÐJUVERK Ættingar þeirra sem
lentu í gíslingu hryðjuverkamanna
í grunnskólanum í Beslan bíða nú í
angist eftir því að heyra hvort dán-
artíðnin muni hækka. Fleiri en 320
lík hafa verið dregin út úr skóla-
byggingunni og erfitt að bera
kennsl á mörg þeirra. Óttaslegnir
íbúar bæjarins ráfa nú milli spítala
og líkhúsa í leit að ófundnum börn-
um sínum og ástvinum.
Forseti Rússlands, Vladimir
Pútín, heimsótti þá sem lifðu af og
ættingja þeirra í Beslan um helg-
ina og sagði klökkur að Rússar
grétu allir sem einn með fjölskyld-
um fórnarlambanna.
Í sjónvarpsávarpi til rússnesku
þjóðarinnar bað Pútín landsmenn
að standa saman. Aðeins þannig
væri unnt að sigra óvininn. Sagði
hann Rússland aldrei mundu gef-
ast upp fyrir hryðjuverkamönnum
né nokkurn tímann láta að kröfum
þeirra. Bætti hann við að alþjóð-
legir hryðjuverkamenn hefðu með
þessum atburðum lýst stríði á
hendur Rússlandi og kynnti til sög-
unnar ný úrræði og hert
landamæraeftirlit. Forsetinn tal-
aði með eftirsjá um strangt
landamæraeftirlit gömlu Sovét-
ríkjanna og sagði að við hrun þess
hefði Rússland orðið óvarið land,
bæði í austri og vestri. Stjórnvöld
hefðu sofnað á verðinum, hætt að
gefa gaum öryggis- og varnarmál-
um og leyft spillingu að lita dóm-
greindina þegar kæmi að lög-
gæslu.
Öruggt má telja að uppreisnar-
menn í Tsjetsjeníu hafi misst sam-
úð alþjóðasamfélagsins með gísla-
tökunni. Pútín lýsti því yfir að
Tsjetseníu yrði engin miskunn sýnd
og kenndi hryðjuverkamönnunum
alfarið um hörmuleg endalok gísla-
tökunnar. Væri eitthvað við hann
sjálfan að sakast væri það að hann
hefði ekki verið nógu ákveðinn og
strangur.
„Við sýndum veikleika og feng-
um að kenna á því fyrir vikið. Árás-
in beindist gegn því sem er þjóðinni
kærast – öryggi barna og er stríðs-
yfirlýsing við rússnesku þjóðina.“
Hann sagði íbúa Beslan vera
bugaða af sorg en að þeir hafi
staðið þétt saman og óhikað hætt
lífi sínu hver fyrir annan, jafnvel
við hinar grimmilegustu aðstæð-
ur.
Vinna við hreinsun skólahús-
næðisins í Beslan gengur hægt
vegna hættu á frekari sprenging-
um af völdum sprengna sem
hryðjuverkamennirnir höfðu
komið fyrir í byggingunni. Af
þeim 322 líkum sem hafa fundist í
skólanum eru 155 börn.
thordis@frettabladid.is
BÍÐA ÖRLAGA SINNA
Nýleg mynd af frönsku fréttamönnunum
Georges Malbrunot og Christian Chesnot.
Vonir stóðu til að þeim yrði sleppt úr
höndum mannræningja en örlög þeirra
eru nú óljós.
Frönsku gíslarnir í Írak:
Mæta örlög-
um sínum
ÍRAK Forseti Íraks, Ghazi Yawer,
hefur frestað fyrirhugaðri heim-
sókn sinni til Frakklands vegna
gíslatöku tveggja franskra blaða-
manna í Írak. Spenna hefur vaxið
milli landanna eftir að forsætis-
ráðherra Íraks, Iyad Allawi, sagði í
blaðaviðtali að Frakkar væru linir
við hryðjuverkamenn og Chirac
Frakklandsforseti yrði að taka ein-
hverja ábyrgð á mannráninu þar
sem hann væri andvígur alþjóðleg-
um lausnum til varnar Írak. Frakk-
ar segja ummælin vera ótæk.
Vonir stóðu til að blaðamönnun-
um Christian Chesnot og Georges
Malbrunot yrði sleppt lausum þar
sem mikilsmegandi klerkar höfðu
sagt lausn þeirra aðeins spurning
um tíma. Nú hafa mannræningj-
arnir hins vegar sagt á íslamskri
heimasíðu að ekki standi til að
sleppa þeim, heldur muni þeir
senn mæta örlögum sínum.
Mannræningjarnir sem taldir
eru vera úr íslamska hernum í
Írak (IAI) hótuðu í upphafi að
drepa gíslana ef Frakkland af-
næmi ekki bann á skýluklúta ís-
lamskra stúlkna í frönskum barna-
skólum.
Christian Chesnot starfar fyrir
franska ríkisútvarpið og Georges
Malbrunot fyrir dagblaðið Le Fig-
aro. Þeim var rænt við störf sín í
Írak í ágúst. ■
Nei, ég lýsi boltanum í gegnum
skjáinn, bara.
Síminn hefur eignast réttinn á enska boltanum
með kaupum sínum á eignarhaldsfélagi sem á
fjórðungshlut í Skjá einum. Snorri Már Skúlason
lýsir leikjum úr enska boltanum á Skjá einum.
SPURNING DAGSINS
Snorri, muntu lýsa enska boltanum í
gegnum símann í vetur?
VÍÐTÆK LEIT LÖGREGLU
Leitað var í bílum í næsta nágrenni Lyfju á
Hringbraut í gær.
Vopnað rán:
Réðst inn
í apótek
RÁN Maður vopnaður loftbyssu
réðst inn í Lyfju á Hringbraut á
sjöunda tímanum í gær. Hann
veittist að starfsmanni, náði lyfj-
um og komst síðan undan á flótta.
Lögreglan í Reykjavík hóf leit að
manninum í bílum og görðum í
nágrenninu. Hún hafði ekki borið
árangur þegar blaðið fór í prent-
un. Ekki er vitað hver maðurinn
er, en talið er að hann sé á þrí-
tugsaldri. ■
Pantaðu nýjan og glæsilegan ferðabækling.
Fylgstu með á heimasíðu okkar www.kuoni.is
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Ferðir um jólin og janúar að fyllast!
Bæklingar á völdum
Esso-stöðvum.
Tvö viðbótarherbergi
á lúxustilboði í Hua Hin
10. okt í 2 vikur.
Verð á mann í tvíbýli frá:
121.800 kr.
með öllum sköttum!
2 vikur yfir jólin
í Hua Hin:
Verð á mann í tvíbýli frá:
159.600 kr.
með öllum sköttum!
2 vikur í janúar í
Hua Hin:
Verð á mann í tvíbýli frá:
133.600 kr.
með öllum sköttum!
Tæland
Tryggðu þér vetrarfrí hið fyrsta
Skipverji:
Féll fjóra
metra
SLYS Skipverji á grjótflutninga-
pramma slasaðist mikið þegar hann
féll fjóra metra um borð í pramm-
anum í gær. Björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, Ás-
grímur S. Björnsson, ásamt hrað-
björgunarbát Björgunarsveitarinn-
ar Ársæls sóttu manninn þar sem
pramminn var staddur skammt
undan Gróttu á Seltjarnarnesi. Siglt
var með hann að Miðbakkanum í
Reykjavíkurhöfn, þaðan sem hann
var fluttur á sjúkrahús. Skipverjinn
reyndist vera með brotin rifbein og
brotinn hryggjarlið. Að sögn læknis
á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
telst maðurinn heppinn að skaðast
ekki á mænu. Hann gengst nú undir
meðferð á Landspítalann við Hring-
braut. ■
VIÐSKIPTI Kaup Landssímans á
Fjörgný, sem á fjórðungshlut í Skjá
einum og sýningarrétt á ensku
knattspyrnunni, mun draga úr verð-
gildi félagsins við einkavæðingu að
mati Skarphéðins Berg Steinarsson-
ar, stjórnarformanns Norðurljósa.
Hann segir þróunina vera þá að
sjónvarpsefni verði í auknum mæli
sent út í gegnum dreifikerfi síma-
fyrirtækjanna og Landssíminn
hefði orðið leiðandi á því sviði að
hans mati. Kaup félagsins á Fjörgný
geri það hins vegar að verkum að
Norðurljós fari ekki í samstarf um
uppbyggingu slíks kerfis.
,,Ef Landssíminn hefði stillt sig
um að fara í beina samkeppni á
sjónvarpsmarkaði hefði hann getað
verið í fararbroddi við að byggja
upp dreifikerfi í samstarfi við öll
fjölmiðlafyrirtækin,“ segir Skarp-
héðinn. „Í stað þess er opinbert fé
notað til að styrkja fjárhagslega
veika sjónvarpsstöð á samkeppnis-
markaði. Þetta er sérkennileg for-
gangsröðun.“
Skarpéðinn telur viðskiptin
tengjast átökunum sem stóðu um
fjölmiðlafrumvarpið. ,,Aðdáendur
fjölmiðlafrumvarpsins eru að nota
peninga Landssímans til að halda
þeim leik áfram. Þeim gekk ekki að
koma höggi á Norðurljós með frum-
varpinu og þá eru aðrar leiðir farn-
ar til þess.“ Skarphéðinn telur að
Landssíminn hafi skuldbundið sig
fyrir að minnsta kosti hálfan millj-
arð króna með kaupunum á
Fjörgný.
Skarphéðinn vísar því á bug, sem
haldið hefur verið fram í fjölmiðl-
um, að forsvarsmenn Norðurljósa
hafi leitað til Landsbankans til að
reyna að koma í veg fyrir viðskiptin
en bankinn er helsti lánadrottinn
Skjás eins. Ekki náðist í forsvars-
menn Landssímans í gær. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N
HINSTA KVEÐJA
Sprengingar og byssuskot urðu skólabörnunum í Beslan að bana þegar hryðjuverkamenn
tóku skólann þeirra í gíslingu. Hér sést rússnesk móðir strjúka vanga lífvana stúlku sinnar
innan um fleiri lík skólasystkina hennar.
SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON
Vísar því á bug að forsvarsmenn Norður-
ljósa hafi reynt að koma í veg fyrir kaup
Símans á hlut í Skjá einum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Stjórnarformaður Norðurljósa:
Kaupin rýra verð Símans
M
YN
D
/A
P
STURLA BÖÐVARSSON
Samgönguráðherra var vígalegur með
hjálm á höfði í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
G
U
Ð
M
U
N
D
SD
Ó
TT
IR