Fréttablaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 41
SUNNUDAGUR 5. september 2004
JADA OG TOM
Leikararnir Jada Pinkett Smith og Tom
Cruise voru ekki fjarverandi á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum. Þessi mynd var tekin
í gær eftir að Tom og Jada kynntu nýjustu
mynd sína, Collateral.
Óskarsverðlauna-hafinn Charlize
Theron hefur snúið
aftur á heimili sitt í
Los Angeles eftir að
hafa meiðst á hálsi
við tökur á myndinni
Aeon Flux í Þýska-
landi. Framleiðslu myndarinnar hefur
verið frestað um nokkrar vikur þang-
að til Theron jafnar sig.
Andstæðingar al-þjóðavæðingar
hafa valdið usla á
kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum. Hafa
þeir kvartað yfir
framleiðslu rándýrra
Hollywood-mynda
og háum launum stjarna á borð við
Tom Hanks og John Travolta. Einnig
hafa þeir mótmælt sífellt hækkandi
miðaverði í bíó.
Leikstjórinn Michael Moore hefurboðið öldungardeildarþingmann-
inum John McCain í bíó til að sjá nýj-
ustu mynd sína Fahrenheit 9/11.
McCain gagnrýndi myndina nýverið
og sagði Moore vafasaman kvik-
myndagerðarmann sem reyni að fá
fólk til að trúa því að Saddam
Hussein sé friðarleiðtogi. Moore seg-
ir að McCain hafi ekki séð myndina
og vill fá hann sem fyrst í bíó.
Leikkonan RenéeZellweger ætlar
að bjóða upp fötin
sem hún klæddist í
framhaldi myndar-
innar Bridget Jone¥s
Diary, The Edge of
Reason. Zellweger
þurfti að bæta veru-
lega á sig fyrir hlut-
verkið en hefur nú
misst aukakílóin.
Passar hún ekki lengur í fötin og vill
því losna við þau. Allur ágóði rennur
til góðgerðarmála.
Leikkonan ShirleyMacLaine segist
hafa verið prinsessa
í Egyptalandi í fyrra
lífi. Hún vill einnig
meina að hundurinn
hennar Terry hafi
verið dýraguð þar í
landi. Hún segist einnig hafa séð fjöl-
marga fljúgandi furðuhluti og hafi átt
samskipti við geimverur í Kína, Rúss-
landi, Egyptalandi og Perú. Nýjasta
kvikmynd hinnar sjötugu MacLaine
kallast Otherwise Engaged. Þar er
Jennifer Aniston í aðalhlutverki.
FRÉTTIR AF FÓLKI
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á SUNNUDÖGUM