Fréttablaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 15
Eftir það hefur Björk snert æ meira á andlegum málefnum. Á Vespertine gefur hún til kynna að hún sé örlagatrúar með textanum It’s Not Up to You og kannski ör- lítið í ástarlaginu Pagan Poetry líka. En hver er trúarsannfæring Bjarkar? „Ég veit það ekki,“ viðurkennir Björk eftir langa þögn. „Ég held að barnatrúin mín hafi bara verið náttúran, fjöllin og landslagið. Svo kannski þegar maður eldist fer maður að spá meira í þetta. Ég held samt að yfirhöfuð sé ég trú- leysingi. Ef ég trúi á eitthvað er það Móðir náttúra. Ég er oft að spekúrera í svona hlutum, en ekki að ég trúi því þannig séð. Ég hef sérstaklega verið að hugsa um þessa hluti eftir það sem gerðist 11. september. Það er nú ekki góð hugmynd, Biblían, maður,“ segir hún og brosir breitt. Þú virkar samt í textum eins og þú sért örlagatrúar. “Það er nú bara eitthvað sérís- lenskt. Eitthvað tengt náttúrunni. Alveg síðan í þorskastríðinu eða eitthvað þegar Íslendingar sögðu að það mætti ekki veiða meira, en Bretar voru ekkert sammála því. Hér hefur alltaf verið mikil virð- ing fyrir náttúrunni. Ég held að við viljum ekkert endilega fara á hnéskeljarnar. Við erum meira fyrir jafnrétti á milli náttúru og mannsins. Reynum ekki að stjórna henni.“ Ást þín á náttúrunni er óum- deilanleg. Oft þegar erlendir blaðamenn fjalla um íslenska tónlist, sem hefur náð athygli úti eftir vinsældir þínar, þá er ein- mitt oft spurt út í náttúruna. Er það þá þér að kenna? “Já, það er örugglega gommu mér að kenna. Ég var kölluð sér- vitur sem krakki, og að ég eigi núna að standa fyrir venjulegan Íslending er bara alveg fárán- legt. Ég er ekki týpískur Íslend- ingur. Þegar ég var í grunnskóla var ég kölluð Kínverjinn, af því að ég þótti svo skrýtin. Fyrst fór maður svolítið bláeygður í fimm viðtöl, trúði og treysti, að reyna að redda sér um hvað maður ætti að tala. Ég fatta miklu meira núna, eftir að ég er búin að ferð- ast svona mikið og hitta mikið af öðru fólki, hvað það er mikið af klisjum í gangi um Ísland. Á síð- ustu tveimur mánuðum sem hafa farið í að kynna þessa plötu hef ég aðeins verið að reyna að pikka í það. Mikið af enskum blaða- mönnum fer alltaf að tala um álfa. Ég hef aldrei séð álf. Ég er alveg saklaus af álfunum, ég get lofað þér því! Ég held að þetta sé þrá í framandleikann. Þessum valdamestu þjóðum, Bandaríkja- mönnum og Bretum, finnst allar aðrar þjóðir framandi. Þannig verða 90% mannkynsins fram- andi. Það er svolítið þröngsýnt. Þetta er kannski bara eitthvað sem maður lærir eftir því sem maður eldist. Þetta er bara mjög fyndið, ef það brytist út hljóm- sveit frá Hawaii, þá myndi NME vilja taka myndir af þeim í strápilsum,“ segir hún og hlær við tilhugsunina. Íslenski álfurinn í Tinnabókunum Björk er líka mjög meðvituð um það að í augum almennings er hún talin „örlítið“ undarleg. „Ég er alltaf hengd upp á vegg sem eitthvað framandi, og vegna þess oft ekki tekin sem mannleg vera... eða jafningi. Ég er bara ís- lenski álfurinn í augum annarra. Ég er með rosa mikið af söngvur- um á plötunni núna sem hægt er að kalla „framandi“. Japanskur bítboxari, grænlensk hálssöng- kona og svoleiðis. Það væri auð- velt að fara út í einhverja Tinna- bók og vera með mikinn rasisma í gangi. Ég reyndi eins og ég gat, kannski vegna þeirrar reynslu sem ég hef lent í, að taka öllum söngvurunum sem jafningum og vinna með þeim. Til dæmis í stað- inn fyrir að Tanja, grænlenska hálssöngkonan, yrði skraut úti um allt þá eyddum við viku saman, kjöftuðum og sömdum lagið Ancestors. Að nálgast hana sem manneskju, ekki sem eitthvað skrýtið og framandi.“ Þú byggir tónlistarsköpun þína á tölvutækni, en þú passar þig mikið á því að tapa ekki mann- legri tjáningu. Það eru svo margir tónlistarmenn sem eru hræddir við að tölvan steli mannlega þætt- inum. Er þetta eitthvað sem þú hugsar um? „Annar helmingurinn af mér er gamall pönkari sem lærði söng uppi á sviði. Við fórum í stúdíó og tókum upp plötu á viku. Ég trúi því að stundum verði maður að telja í og hoppa út í djúpið. Svo- leiðis er ekkert hægt að laga eftir á. Það er hluti af því að vera lif- andi. Hinn helmingurinn af mér er svona handavinnukelling. Ég prjónaði mikið sem krakki og saumaði út. Ég er mjög hrifin af þessum tveimur öfgum. Hlutir sem eru skapaðir í augnablikinu og hlutum sem tekur kannski tíu ár að gera. Ég reyndi að gera þetta á fyrri plötum, en er núna heiðarlega komin á þann stað. Þetta er ekki sýning á nýjustu tækni og vísindum kjaftæði. Þetta er þannig að ég sest niður fyrir framan tölvuna og er bara að búa til svona útsaumsteppi. Mér líður þannig. Ég varð oft svo stressuð í hljóðverinu, vegna peninga og svoleiðis. Þannig leið mér stund- um ekkert voðalega vel vegna þess að maður þurfti stöðugt að tjá sig. Stundum þarf að stýra öðru fólki og ég kunni ekki á tæk- in sjálf. Fyrst núna er ég komin á það stig að þetta er orðið eins og mig hefur alltaf langað til. Að klippa og búa til munstur finnst mér ógeðslega gaman. Ég get ver- ið í einu lagi í heilan mánuð, ógeðslega glöð. Ég held að það sé einhver arfleið frá ömmu minni. Þannig er ég hálfur pönkari, og hálf amma. Mér finnst þægilegt að vera svona backseat driver. Að móta lagið út frá tilfinningum og einhverju mannlegu munstri sem hægt er að búa til og láta tækin ná því. Í staðinn fyrir að maður sé að láta tækin ráða því hvað maður gerir.“ Veit ekki baun í bala Þú átt líklegast eftir að búa til tón- list þar til þú dettur niður dauð. Þú talar oft um hvar þú ert og hvert þú ætlar þér í tónlist. Held- ur þú að þú komist einhvern tím- ann á þá stöðu að þú vitir ekkert hvað þú viljir gera, eða hvert þú vilt fara? “Oft veit ég ekki baun í bala. Það tekur oft langan tíma að finna það út. Eins og með þessa plötu, um 70% af tímanum fór í það að komast að því hvað hún var. Það er mjög auðvelt að segja eftir á að ég hafi vitað þetta allan tímann. Það kemur kannski þannig út í viðtölum af því að maður gerir þau síðast, þegar maður er búinn að vinna plötuna.“ Þetta er þá ekki úthugsað frá fyrsta degi? “Alls ekki. Þetta fer bara eftir því hvað mér finnst skemmtilegt. Ég kannski heyri eitthvað lag og það er æðislegt. Þá finn ég plöt- una og hún er besta plata í heimi. Þremur árum seinna finnst mér hún kannski ekki einu sinni skemmtileg. Maður er alltaf að breytast. Maður verður bara að komast að því hvað er að gerast inni í sjálfum sér. Þá prófar mað- ur fullt af dóti sem virkar ekki neitt.“ Björk viðurkennir að það myndi vera fremur erfitt að túra þessa plötu. Hún bendir svo á að fólkið sem syngur á henni hafi aldrei verið í sama herbergi sam- tímis. Hana langar líka að fara beint í að vinna næstu plötu. Dótt- ir hennar, Ísidóra, er að byrja í leikskóla í Bandaríkjunum og því vill Björk geta einbeitt sér að móðurhlutverkinu. Björk verður því í New York í vetur en kemur hugsanlega aftur til Íslands næsta vor. Þá kannski með nýja plötu undir arminum. biggi@frettabladid.is SUNNUDAGUR 5. september 2004 15 KÍNVERJINN? „Þegar ég var í grunnskóla var ég kölluð Kínverjinn, af því að ég þótti svo skrýtin,“ segir Björk í viðtalinu. Hún hefur greinilega ekki breyst mikið síðan þá. Ég er alltaf hengd upp á vegg sem eitt- hvað framandi, og vegna þess oft ekki tekin sem mannleg vera… eða jafn- ingi. Ég er bara íslenski álf- urinn í augum annarra. ,,

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.