Fréttablaðið - 18.09.2004, Síða 2
2 18. september 2004 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra segist ekki hafa
skipt um skoðun varðandi lögmæti
Íraksstríðsins þrátt fyrir að Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, hafi kveðið upp úr
um að stríðið hafi verið ólögmætt.
Hann segir fortíðina hins vegar
ekki skipta máli lengur og hvetur
menn að horfa til framtíðar varð-
andi Írak þar sem lýðræðislegar
kosningar standi fyrir dyrum.
Aðspurður um hvort hann teldi
sig hafa verið blekktan um tilvist
gereyðingarvopna í Írak sagði for-
sætisráðherrann að hann hefði „að
minnsta kosti hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum“ með að upplýsing-
ar í skýrslum sem hann fékk „hafi
ekki verið réttar“.
„Það er ljóst að maður hefði viljað
sjá margt í þessu máli öðruvísi, ýmsar
upplýsingar sem ég og aðrir fengum
stóðust ekki,“ sagði Halldór. ■
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb-
ættið hefur lengi varað við svoköll-
uðum „skottulækningum“ sem
virðast, þrátt fyrir það, heldur
hafa færst í vöxt hér á landi. Orku-
námskeið sem nú stendur yfir hér
á landi á meðal annars að kenna
fólki að koma í veg fyrir „orku-
leka,“ aðstoða það við að byggja
upp orkuna og fleira af því tagi,
sem aftur vinnur á erfiðum sjúk-
dómum. Nefnd eru dæmi um að al-
varlega veiku fólki hafi snarskán-
að eftir að hafa sótt námskeið hjá
breska parinu, Lyndu og Stephen
Kane, sem standa fyrir orkunám-
skeiðunum hérlendis. Sigurður
Guðmundsson landlæknir tjáði
Fréttablaðinu að embættið myndi
fylgjast gjörla með þessu nám-
skeiðahaldi, en það hefur undir
höndum gögn um efni þeirra.
Gitte Larsen, sem er tengiliður
Kane-fólksins hér á landi sagði, að
það kæmi hingað til að hjálpa
fólki sem væri með ólæknandi
sjúkdóma, sem læknavísindin
ráða ekki við. „Margir á Íslandi
hafa vefjagigt og síþreytu, sem
læknar ráða ekki við. Þá koma þau
og geta hjálpað fólki,“ sagði Gitte
og bætti við að þau væru þekkt
undir heitinu „orkulæknarnir“.
Á námskeiðum er fólki meðal
annars kennt að „greina“ aðra ein-
staklinga og sjá hvort þeir leki
orku. Tveggja daga námskeið
kostar 20 þúsund krónur fyrir
hvern þátttakanda. Ráðleggingar
um lausnir á orkuvandanum kosta
6000 krónur klukkutíminn, en 90
mínútur kosta 7000. Svokölluð
orkuegg, sem námskeiðshaldarar
selja, kosta 2.900 krónur stykkið,
en 2.500 séu keypt þrjú eða fleiri.
„Þetta er fjárplógsstarfsemi af
verstu tegund,“ sagði Sigurður
Guðmundsson landlæknir. „Það eru
engin líffræðileg eða sálfræðileg
rök fyrir því að þetta sem fólkið er
að selja, geri heilsu manna gagn.
Gefið er í skyn, að þetta geti komið
í stað ráðlegginga og lyfjameðferð-
ar úr heilbrigðiskerfinu. Því sé ekki
mikið mein að hætta því sem lækn-
ar eru að gera og reiða sig í staðinn
á þessar aðferðir. Það er hættulegt.
Ef hér er verið að búa til einhvers
konar hirð hér, eins konar „cultism“
þá þarf ekki að fara langt í sögunni
til að sjá hve gríðarlega hættulegt
það getur verið, til dæmis, ef fólk
snýr baki við fjölskyldu, en lætur
sogast í algjöra firringu frá raun-
veruleikanum og altrú á einhvers
konar „gúrú“.
jss@frettabladid.is
Forsetakosningar:
Misvísandi
kannanir
BANDARÍKIN, AP Töluverður munur er á
niðurstöðum tveggja skoðanakann-
ana á fylgi bandarísku forsetafram-
bjóðendanna þrátt fyrir að hafa að
stærstum hluta verið gerðar á sama
tíma.
Samkvæmt könnun Gallup hefur
George W. Bush Bandaríkjaforseti
öruggt forskot á demókratann John
Kerry og eykur það frekar en hitt.
Gengi könnunin eftir fengi Bush 54
prósent atkvæða en Kerry aðeins 40
prósent. Baráttan er hins vegar hníf-
jöfn samkvæmt könnun Pew þar sem
báðir frambjóðendur mælast með 46
prósenta fylgi.
Gallup-könnunin var gerð 13. - 15.
september en Pew-könnunin 10. - 14.
september.■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
„Ég hef hvorki þekkingu né
reynslu til þess.“
Hjördís Hákonardóttir, dómstjóri við Héraðsdóm
Suðurlands, hefur nú sótt öðru sinni um stöðu
hæstaréttardómara. Í Fréttablaðinu í gær auglýsti
Hannes Jónsson, varaformaður KKÍ, eftir körfu-
boltadómurum.
SPURNING DAGSINS
Hjördís, hvernig litist þér á að gerast
körfuknattleiksdómari?
Akureyri:
Hass fannst í
þvagi barna
VÍMUEFNI Hassefni fundust í þvagi
tveggja tólf ára barna á Akureyri.
Gunnar Gíslason, deildarstjóri
skóladeildar Akureyrarbæjar,
segir að ekki sé vitað til þess að
áður hafi slík efni fundist í þvagi
svo ungra barna í bænum.
Gunnar segir þetta vera mjög
alvarlegt og veki að sjálfsögðu ugg,
en það sýni að alltaf sé þörf á að
vera á tánum gagnvart vímuefnum
þegar ungmenni eru annars vegar.
Þá vill hann hvetja foreldra barna í
eldri bekkjum grunnskóla til að
fylgjast vel með börnum sínum
komi til kennaraverkfalls. Þeim sé
hætt við því að snúa sólarhringnum
við og reynslan hafi sýnt að neysla
vímuefna hjá ungmennum fari
yfirleitt fram eftir að útivistartíma
barna er lokið. ■
Nýr Corolla. Tákn um gæði.
www.toyota.is
Það gerir lífið spennandi að vita ekki alltaf hvað bíður manns. En um bíla gegnir
öðru máli. Þér finnst nýr Corolla spennandi kostur af því að þú veist hvað bíður
þín í nýjum Corolla. Þú gerir kröfur um öfluga, hljóðláta og sparneytna vél,
öryggi í umferðinni, þægindi í akstri og bíl sem er góður í endursölu. Þess
vegna viltu nýjan Corolla og ert spenntur þegar þú sest undir stýri í fyrsta
skipti.
Komdu og prófaðu nýjan Corolla.
Njóttu þess að lífið er spennandi!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
72
4
09
/2
00
4 VEXTIR Seðlabankinn hefur hækkað
stýrivexti sína um 0,5 prósentu-
stig. Nú eru grunnvextir Seðla-
bankans 6,75 prósent. Seðlabank-
inn telur að mikill vöxtur eftir-
spurnar kalli á vaxtahækkun í því
skyni að sporna við hættu á þenslu
og verðbólgu.
Tilkynnt var um vaxtahækkun-
ina á fundi þar sem Peningamál,
ársfjórðungsrit Seðlabankans, var
kynnt.
Í Peningamálum kemur fram að
vöxtur einkaneyslu hafi verið hrað-
ari en Seðlabankinn hafi gert ráð
fyrir. Þá telur Seðlabankinn að til-
koma nýrra húsnæðislána bank-
anna auki vöxt einkaneyslunnar og
það muni vega þyngra en það að-
hald sem veitt er með hækkun
stýrivaxta.
„Þrátt fyrir að hækkun stýri-
vaxta bankans í júní og einkum júlí
feli í sér lítillega aukið aðhald pen-
ingastefnunnar hefur það ekki
megnað að breyta fjárhagslegum
skilyrðum heimila og atvinnugeira
svo heitið geti og hvað heimilin
varðar hefur aðhaldið sem fjár-
málaleg skilyrði veita ótvírætt
minnkað,“ segir í Peningamálum. ■
Seðlabankinn hækkar stýrivexti:
Ný íbúðalán ýta undir neyslu
FRÁ FUNDI SEÐLABANKANS
Seðlabankinn segir að breyttar aðstæður á lánamarkaði vegi þyngra en aðhaldsaðgerðir
bankans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Þjóðleikhúsráð um Þjóð-
leikhússtjóra:
Sex koma
til greina
MENNING Þjóðleikhúsráð mælir
með sex umsækjendum um starf
þjóðleikhússtjóra en ráðinu ber,
lögum samkvæmt, að veita
menntamálaráðherra umsögn um
umsækjendur. Þeir sem koma til
greina að mati ráðsins eru: Árni
Ibsen, Hafliði Arngrímsson,
Kjartan Ragnarsson, Kristín Jó-
hannesdóttir, Tinna Gunnlaugs-
dóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
Í tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu segir að ráðið hafi
verið einróma í niðurstöðu sinni.
Átján umsóknir bárust um
starfið. ■
JOHN KERRY
Á varla nokkurn möguleika samkvæmt
Gallup-könnun en á í spennandi baráttu
samkvæmt Pew-könnun.
HALLDÓR Í FORSÆTI
Utanríkisráðherra var forfallaður á fyrsta ríkisstjórnarfundi Halldórs sem forsætisráðherrra.
Forsætisráðherra um Írak:
Hefði viljað sjá margt öðruvísi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
Hættuleg fjár-
plógsstarfsemi
„Þetta er gagnslaus en hættuleg fjárplógsstarfsemi af verstu tegund,“
segir landlæknir um „orkunámskeið“ sem haldið er hér á landi nú um
helgina. Námskeiðið snýst um að koma í veg fyrir „orkuleka“ í fólki.
Á SJÚKRAHÚSI
Landlæknir segir námskeið, eins og boðið er upp á nú um helgina, ætluð fólki með erfiða
sjúkdóma vera „fjárplógsstarfsemi af verstu tegund“.
Reykjavík:
Brotist inn
á heimili
LÖGREGLA Brotist var inn í íbúðarhús
í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Farið
var inn um svefnherbergisglugga og
nokkru af skartgripum stolið.
Ekki lágu fyrir nákvæmar upp-
lýsingar um hvenær brotist var inn
en tilkynnt var um innbrotið um
klukkan tvö í gær. Skömmu síðar var
tilkynnt um innbrot í herbergi, sem
er í útleigu, í Breiðholti en þar hafði
herbergishurðinni verið sparkað
upp. Þaðan var stolið sjónvarpi,
myndbandstæki og leikjatölvu. ■
LYFJAKISTU STOLIÐ Brotist var
inn í bát í Sandgerðishöfn í gær-
morgun og stolið úr honum lyfja-
kistu. Þjófurinn braut rúðu í hurð
í stýrishúsinu til að komast inn.
Málið er í rannsókn lögreglunnar
í Keflavík.
Fíkniefnamál:
Áfram í
varðhaldi
GÆSLUVARÐHALD Tæplega fertugur
maður hefur verið úrskurðaður, í
áframhaldandi gæsluvarðhald en
hann var tekinn með eitt kíló af
amfetamíni og eitt kíló af kókaíni
á Keflavíkurflugvelli í lok maí.
Varðhaldið var framlengt uns
dómur gengur í málinu en þó ekki
lengur en til þriðja nóvember.
Maðurinn hefur nú þegar setið í
gæsluvarðhaldi í fjóra mánuði.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
fann fíkniefnin þegar maðurinn
kom með flugi frá Danmörku. ■