Fréttablaðið - 18.09.2004, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 18. september 2004
Láttu drauminn rætast í rúmi frá Stearns & Foster
L a n g h o l t s v e g i 1 1 1 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 8 7 9 0 0
A f g r e i ð s l u t í m i v i r k a d a g a k l . 1 1 – 1 8 . o g l a u g a r d a g a k l . 1 1 – 1 4 .
Bandarísku hágæðarúmin frá Stearns & Foster eru heimsþekkt á meðal vandlátra
kaupenda fyrir gæði og glæsileika. Rúmin eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins hið
besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu
gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. Bandarísku neytendasamtökin
hafa í mörg ár útnefnt rúmin frá Stearns & Foster sem „bestu kaupin“.
Hágæðarúm
frá Stearns & Foster
Frá einu virtasta tískuhúsi Frakklands: Rúmteppi,
sængurverasett, lök, handklæði, frottésloppar,
ilmsápur, ilmkerti, ilmvatn o.fl.
Þótt miðbæjarrotturnar í 101 hafi
stundum uppi illkvittnislega for-
dóma um úthverfin er staðreynd
að úthverfafólkið er æði. Þar býr í
sátt og samlyndi þverskurðurinn
af þjóðfélaginu; allt frá heila-
skurðlæknum, flugstjórum, prest-
um, rokkstjörnum, forstjórum,
leikurum, búðarkonum og
öskuköllum, og allir hafa hvergi
fundið sinn raunverulega sama-
stað fyrr en í úthverfaparadísinni.
Enginn veit þetta betur en íbúarn-
ir sjálfir sem nú fagna komu
haustsins í hverju úthverfinu á
fætur öðru.
Í gær héldu Breiðhyltingar
sína árlegu hausthátíð en í dag er
það Árbær og hið splunkunýja
Grafarholt sem slá saman í haust-
hátíð. Markmið hátíðahaldanna er
að sameina íbúa hverfanna og
skapa þeim tækifæri til að hittast
og skemmta sér og öðrum.
Dagskráin hefst snemma
morguns og stendur allan daginn;
bæði við nýja þjónustukjarnann
Ásinn, í Árbæjarkirkju og við
Fylkissvæðið. Skrúðganga fer um
hverfið, fjölskyldumessa verður í
Árbæjarkirkju, gervigrasvöllur
Fylkis verður vígður með stórleik
Fylkis og KR í úrvalsdeild karla,
þar verða og spennandi tónleikar,
hoppukastalar og kynning á tóm-
stundum í hverfinu, og um allan
Árbæ verður nóg af pítsum og
Pepsí, skúffukökum og mjólk,
pulsum og sælgæti handa öllum.
Hátíðinni lýkur með glæsilegu
lokaballi í Fylkishöll um kvöldið
þar sem Jónsi og félagar Í svört-
um fötum sjá um að Árbæingar
dilli sér og skemmti fram á nótt. ■
Hvernig fer eiginlega Þorfinnur
Ómarsson að því að púsla saman
heilli viku niður í klukkustundar
langan útvarpsþátt?
„Það er auðvitað ákveðin kúnst
og þarf að vera hæfileg blanda af
ansi mörgu. Stundum tekst mér vel
upp en stundum fer ekki eins vel og
ég hafði ætlað. Oft hef ég náð í hina
„fullkomnu“ viðmælendur en svo
gufar það allt upp. Og stundum held
ég að viðmælendurnir séu ekkert
sérstakir en þá fara þeir á kostum
og gera þáttinn ógleymanlegan.“
Þorfinnur hefur séð um laugar-
dagsþáttinn Í vikulokin á Rás 1 und-
anfarin sjö ár. Í sumar tók hann sér
sumarfrí í fyrsta sinn, en aðalvinn-
an hans er stjórnun MA-náms í
blaðamennsku við Háskóla Íslands.
„Nei, ég held að ég sé ekki búinn að
vera of lengi við stjórnvölinn. Ef við
horfum á fréttahaukana í 60
Minutes hafa þeir verið með þáttinn
áratugum saman og láta engan bil-
bug á sér finna. Maður þarf auðvit-
að að hafa brennandi áhuga á vinn-
unni því annars verður maður að
hætta. Ég hef gleði af þessari þátta-
gerð, eins og mér fannst líka gaman
að fara aftur í sjónvarpið í sumar.
Væri til í að fara með Vikulokin í
sjónvarp.“
Uppáhaldsviðmælandi Þorfinns
er Hallgrímur Helgason, sem einnig
er dyggur hlustandi. „Annars stend-
ur upp úr bein útsending frá Was-
hington 1998, sem ég hafði undir-
búið vikum saman. Daginn fyrir út-
sendinguna leit dagsins ljós skýrsl-
an um vindlaævintýri Clintons og
Monicu. Því var ég allt í einu í bein-
ni frá Washington með Jón Baldvin
sem viðmælanda en hann var ekki
einungis stuðningsmaður Clintons í
pólitík heldur hafði fulla samúð
með honum í einkalífinu. Líkti
ástandinu við spænska rannsóknar-
réttinn á miðöldum og úr var gert
heilmikið mál. Það er alltaf gaman;
þegar umræður þáttanna vinda upp
á sig.“
Þorfinnur segist í framtíðinni vilja
leyfa fleiri og ólíkari röddum að heyr-
ast í þættinum; líka litla mannsins.
„Ég mætti vera duglegri að finna
þennan dæmigerða Jón Jónsson beint
úr heita pottinum eða af Hlemmi.
Maður á til að festast í sérfræðinga-
samfélaginu en vitaskuld er litli mað-
urinn á götunni fullfær um að vera
málefnalegur líka.“ ■
Úthverfafólkið í hátíðarskapi
Mætti vera duglegri að
finna litla manninn
ÞORFINNUR ÓMARSSON Þorfinnur Ómarsson hefur stýrt umræðunum Í vikulokunum
síðastliðin sjö ár og tók sér sumarfrí í fyrsta sinn á þessu ári. Hann segir sumarleyfið hafa
gefið sér fjarlægð á þáttinn og nú vilji hann gera meira af því að sjá út fyrir sérfræðinga-
samfélagið þegar hann finnur sér viðmælendur.
■ ÚTVARP
■ HÁTÍÐ
HAUSTHÁTÍÐ Í ÁRBÆ OG GRAFAR-
HOLTI Árleg hausthátíð Árbæinga verður
sett með pompi og prakt í dag og margt
skemmtilegt er að gerast fram á kvöld.
Jónsi og hljómsveitin Í svörtum fötum slíta
dagskránni með stuðballi í Fylkishöll í
kvöld.