Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 6
6 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Ísafjarðarbær ósáttur við vinnubrögð undanþágunefndar: Þrjár beiðnir af ellefu samþykktar Orkuveitan: Leynd um Línu Net UNDANÞÁGUR Þrjár undanþágu- beiðnir af ellefu voru samþykktar á sjöunda fundi undanþágunefndar. Fimm beiðnum var hafnað og þremur frestað. Hamraskóli í Reykjavík fékk undanþágu fyrir 23 kennara sjö ein- hverfra barna, Hafralækjarskóli í Aðaldal fyrir einn kennara nem- enda á meðferðarheimili og Hlíðar- skóli á Akureyri fyrir fimm kenn- ara fimmtán nemenda með geðræn- an vanda, samkvæmt fundargerð. Á fundi nefndarinnar voru mót- mæli fræðslunefndar Ísafjarðar- bæjar tekin fyrir. Nefndin er ósátt við að þremur einhverfum börn bæjarins hafi ekki verið gert kleift að sækja skóla. „Sú mismunun sem í því felst milli landshluta er óá- sættanleg.“ Skúli S. Ólafsson forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísa- fjarðarbæjar segir ekki hafa verið mönnum ljóst að væri kennurum á undanþágu greitt samkvæmt ráðn- ingasamningi og að allir sem að börnunum kæmu væri kallaðir til væru líkurnar mestar á undanþágu. Málið verði strax skoðað. - gag Fékk ósk sína áttfalt uppfyllta Skólastjóri Hamraskóla mat að þrjá kennara þyrfti til kennslu ein- hverfra svo neyðarástandi yrði aflétt. Hann fékk 23. Fulltrúi sveitarfé- laganna segir hagsmuni annarra en barnanna ráða undanþágunum. UNDANÞÁGUR Sjö einhverfir nem- endur Hamraskóla í Grafarvogi snúa til kennslu í dag. Jákvætt svar fékkst í fjórðu tilraun þegar beiðninni var breytt úr undan- þágu fyrir þrjá kennara í 23. Yngvi Hagalínsson skólastjóri segir að vel hefði verið hægt að leysa neyð nemendanna með kennurunum þremur. „Ég hef sótt í þrígang áður um undanþágur. Þá hef ég sótt um fyrir þá sérkennara sem kenna í sérdeildinni og alltaf fengið höfn- un,“ segir Yngvi. Sigurður Óli Kolbeinsson full- trúi Launanefndarinnar í undan- þágunefndinni segir í bókun í fundagerð gærdagsins að verið sé að sækja um undanþágu fyrir mun fleiri starfsmenn en nauð- synlegt sé til að afstýra neyðará- standi: „KÍ er augljóslega að hafa einhverja aðra hagsmuni að leiðarljósi en hagsmuni þeirra barna sem sótt er um undanþágu vegna.“ Þórarna Jónas- dóttir fulltrúi kennara í undan- þágunefndinni segir aldeilis ekki verið að setja hagsmuni kennara börnunum framar. Hún tjái sig ekki um einstakar beiðnir sem komi fyrir nefndina. Yngvi segir kröfur Kennara- sambandsins um alla kennarar til kennslu hafa komið sér á óvart. Mismunandi sé hve mikið börnin sæki tíma hjá kennurunum í al- mennum bekkjum. Það fari niður í tvo tíma en sé mest um tólf tímar. Hann treysti sér ekki að upplýsa hvernig starfskraftar kennaranna verði nýttir umfram tímakennsl- una. Það sé viðkvæmt mál og í at- hugun. „Börnin þekkja sérdeildina og eru vön að vera þar. Þau verða hins vegar ein með kennurunum og starfsmanni sérdeildar í þeim tímum sem þau eiga að sækja í almennu bekkina með bekkjar- félögum. Það er undarleg staða,“ segir Yngvi. Umsókn Fellaskóla fyrir alla sex kennara tveggja einhverfra barna í nýstofnaðri sérdeild var frestað þrátt fyrir loforð borgar- innar um full laun kennurunum til handar. Þorsteinn Hjartarson skólastjóri segir tilgreinda ástæðu hafa verið ónógar upplýs- ingar. Málið verði skoðað. gag@frettabladid.is SVEITARSTJÓRNARMÁL Fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í Orkuveitu Reykjavíkur fá ekki að sjá endur- skoðendaskýrslu Línu Nets eins og þeir hafa beðið um. Lína Net var dótturfélag Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórn Línu Nets hafi synj- að beiðninni. Meirihluta stjórnar- innar mynda þeir Alfreð Þorsteins- son og Stefán Jón Hafstein, fulltrú- ar Reykjavíkurlistans. Guðlaugur segir að þetta sýni hvað lítið sé að marka lýðræðisumræðu Reykja- víkurlistans. „Þarna hafa þeir tapað gríðarlegum fjárhæðum sem skatt- greiðendur borga en engin skýring er gefin á því og við fáum ekki að sjá skýrslur um málið.“ - ghg VEISTU SVARIÐ? 1Skattar á hvaða neysluvöru hækka eftillögur norrænna heilbrigðisráðherra ná fram að ganga? 2Úr hvaða fangelsi strauk ungur mað-ur í fyrradag? 3Hvar standa reykvískir grásleppu-skúrar sem til stendur að varðveita? Svörin eru á bls. 38 edda.is Spenna og dulúð Mögnuð ævintýrabók um tímaflakk, dularfullu borgina Belezza, hertogaynjuna sem þar ræður ríkjum, mandóluræðarana hennar og galdra- og vísindamenn Talíu. Frábær spenna frá upphafi til enda. „Eitt mest spennandi ævintýri sem ég hef lesið árum saman.“ - Wendy Cooling, The Children's Bookseller „Frábærlega skrifað“ - Eoin Colfer, höfundur Artemis Fowl YFIRMENNIRNIR Björn Brekkan Björnsson flugrekstrarstjóri, Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri og Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri. Nýr flugrekstrarstjóri: Manna- breytingar hjá Gæslunni LANDHELGISGÆSLAN Björn Brekkan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur tekið að sér að vera flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Benóný Ásgrímsson sem sinnt hefur flugrekstrarstjórastarfinu síðastliðin fjögur ár verður áfram yfirflugstjóri. Jafnframt hefur Sigurður Ás- geirsson þyrluflugstjóri verið ráðinn öryggisfulltrúi og þjálfun- arstjóri og Þórarinn Ingi Ingason þyrluflugmaður hefur tekið að sér að vera umsjónarmaður fagbóka. - bþe M YN D /D AG M AR S IG U RÐ AR D Ó TT IR ■ MIÐ-AUSTURLÖND LÖGÐU STJÓRNARBYGGINGAR UNDIR SIG Rúmlega tuttugu vopn- aðir Palestínumenn náðu tveimur stjórnarbyggingum í Jenín á Vest- urbakkanum á sitt vald í gær. Með því vildu þeir leggja áherslu á kröfur sínar um auknar bætur til handa aðstandendum þeirra sem falla í átökum við Ísraela. ÍSRAELI MYRTUR Ísraeli var skot- inn til bana í skotárás milli palest- ínsku Tulkarem og Jenín á Vestur- bakkanum. Þar í grenndinni eru fjórar byggðir ísraelskra land- tökumanna sem hafa oft orðið fyr- ir árásum palestínskra vígamanna. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Segir leyndina um Línu Net sýna að lítið sé að marka lýðræðisumræðu Reykjavíkurlistans. YNGVI HAGALÍNSSON Skólastjóri um 350 barna í 1. til 10. bekk Hamraskóla hafði í þrígang fengið höfnun á undanþágubeiðni til kennslu fyrir þrjá kennara í sérdeild einhverfra. Undanþágan fékkst í fjórðu tilraun þegar sótt var um fyrir 23 kennara. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. ,,Það hefði vel verið hægt að leysa skóla- göngu barnanna með mun færri starfs- mönnum. ■ 30. DAGUR VERKFALLS ÁRANGUR FUNDARINS ÓLJÓS Ásmundur Stefánsson ríkissátta- semjari telur ekki að lög verði sett á verkfall kennara. Hann leggur ekki mat á hvort þokast hafi í sam- komulagsátt á fundi samn- inganefnda kennara og sveitarfélaga í gær. Ásmundur segir að hann sjái ekki forsendu fyrir miðlunartillögu eins og staðan sé. Fundi verði haldið áfram klukkan fjögur í dag. „Við hittumst í minni hópum fyrir þann tíma,“ segir Ásmund- ur. Hvort það gefist betur sé óljóst: „Það hefur engin aðferð skilað árangri hingað til.“ Samninganefndirnar tóku þá af- stöðu á fundi gærdagsins að tjá sig ekki efnislega um fundinn. KRÖFUGANGA OG ÚTIFUNDUR Kennarar ganga niður Laugar- veginn við undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins klukkan þrjú í dag. Þeir stefna á Ingólfstorg þar forysta Kennarasam- bandsins og grunnskólakennara ásamt Maríu Gylfadóttur for- manns Heimilis og skóla – lands- samtaka foreldra, Jóni Pétri Zim- sen grunnskólakennara og Hönnu Hjartardóttur formanns Skóla- stjórafélags Íslands flytja ávörp. HÖFÐA TIL ÁBYRGÐAR Heimili og skóli – landssamtök foreldra hvetja foreldra til að senda tölvu- póst á kjörna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum þar sem krafist sé svara um hvernig þeir ætli að axla ábyrgð um skólaskyldu. Samtökin mælast til að í bréfinu standi: „Nú er nóg komið og mér finnst kominn tími til að þú axlir þína ábyrgð og semjir við kenn- ara. Barnið mitt á rétt á kennslu og þér ber skylda til að veita hana.“ - gag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.