Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 16
16 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR BÚRIÐ HREINSAÐ Tígrisdýr horfa á meðan starfsmaður dýra- garðs í Chonburi-héraði í Taílandi hreinsar vistarverur þeirra. Meira en tuttugu tígris- dýr í dýragarðinum hafa látist af völdum fuglaflensu. Herstöðvaandstæðingar: Samfylking komi út úr skápnum STJÓRNMÁL Samtök herstöðvaand- stæðinga saka Samfylkinguna um að „bera kápuna á báðum öxlum“ í nýjum hugmyndum framtíðar- hóps flokksins í varnarmálum. Stefán Pálsson, formaður Sam- taka herstöðvaandstæðinga, segir að sú leið sem lögð sé til minni nokkuð á svokallaða „fataskipta- leið“ sem framsóknarmenn að- hylltust á áttunda áratugnum. „Ef marka má fréttir vill Samfylking- in halda í varnarsamninginn en losna við herinn. Það er mótsagna- kennt, enda gengur varnarsamn- ingurinn fyrst og fremst út á rekstur Bandaríkjamanna á þess- ari sömu herstöð.“ Stefán segir að fyrir þingkosn- ingarnar 1999 hafi Samfylkingin viljað leyfa Bandaríkjamönnum að fara ef þeir vildu. „Þá var ekki minnst á varnarsamninginn.“ Stefán segir að sífellt fleiri í forystu Samfylkingarinnar sjái hve fáranlegt það sé að reyna að ríghalda í bandaríska herstöð. „Hins vegar teldi ég það mun æskilegra og hreinlegra að flokk- urinn segði það berum orðum í stað þess að reyna að bera kápuna á báðum öxlum.“ -ás Reykjavík að verða alþjóðleg rokkborg Yfir eitt þúsund útlendingar koma til landsins gagngert til að fara á tónleika á Iceland Airwaves-hátíðinni sem hefst í dag. Erlendum gestum hefur fjölgað undanfarin ár. Reykjavík hefur sterka ímynd sem borg áhugaverðrar tónlistar. MENNING Iceland Airwaves-hátíð- in var fyrst haldin árið 1999. Þá voru rétt rúmlega þúsund manns samankomnir eina kvöldstund í Flugskýli fjögur á Reykjavíkur- flugvelli og hlustuðu á leik þriggja erlendra hljómsveita og fjögurra íslenskra. Nú, fimm árum síðar, stendur hátíðin í fimm daga, hún er haldin á sex stöðum í miðborg Reykjavíkur og fram koma 137 hljómsveitir, sól- óistar og plötu- snúðar. Meiri- hlutinn er ís- lenskur en 22 koma utan úr heimi. Þorri gesta í flugskýlinu forð- um var íslenskur en nú hafa yfir þúsund útlendingar keypt sér miða í gegnum söluskrifstofur Icelandair aust- an hafs og vest- an og viðbúið að enn fleiri hafi komið til landsins á eigin vegum og fest sér miða á Ís- landi. Von er á um 150 fjöl- miðlamönnum, sem er talsverð aukning frá því sem var í fyrra. Magnús Oddsson ferðamála- stjóri er ánægður með tónlistar- veisluna enda kærkomin viðbót við annað sem laðar útlendinga til landsins. „Alllir viðburðir eru góðir, ekki síst þeir sem haldnir eru utan háannatíma.“ Magnús segir erfitt að meta sérstaklega gagnsemi landkynningarinnar sem af Iceland Airwaves hlýst enda koma yfir átta hundruð blaðamenn til landsins á ári hverju og skrif þeirra renna oft saman við annað. „Við höfum hins vegar ekki séð þess merki að tónlistin ein og sér dragi fólk til Íslands. Þegar við spyrjum erlenda gesti hvers vegna þeir komu til landsins er það lang- oftast vegna náttúrunnar. Við eigum enn eftir að sjá það svart á hvítu að tónlist hafi þar eitthvað að segja, en sá dagur kann að koma,“ segir Magnús. Þróast frá ári til árs Fyrirtækið Hr. Örlygur annast framkvæmd Iceland Airwaves en Icelandair og Reykjavíkur- borg styðja myndarlega við bak- ið á hátíðinni. Í fyrra féllst borg- in á að leggja fimmtán milljónir króna til verkefnisins á fjórum árum og verðmæti framlags Icelandair er metið á um tíu milljónir á ári. Er það fólgið í farseðlum, kynningarstarfi og beinhörðum peningum. Þorsteinn Stephensen hjá Hr. Örlygi unir nokkuð glaður við sitt. Tvö þúsund og fimm hund- ruð miðar eru í boði og ógjörn- ingur, eins og sakir standa, að fjölga þeim. „Við seljum í raun ,,Von er á um 150 fjölmiðla- mönnum, sem er tals- verð aukn- ing frá því sem var í fyrra. TRYGGINGASTOFNUN Útgjöld eru sögð hafa stóraukist vegna kostnaðar við sjúkraþjálfun. Tryggingastofnun: Um 2,4 milljarðar í sjúkraþjálfun HEILBRIGÐISMÁL Áætlað er að Tryggingastofnun muni greiða um 1,4 milljarða króna vegna sjúkraþjálfunar á þessu ári, að því er fram kemur á fréttavef stofnunarinnar. Er það rúmum milljarði meira en hún greiddi af sömu sökum fyrir tíu árum. Orsakir þessarar aukningar eru sagðar margþættar. Viðhorf lækna og sjúklinga til sjúkra- þjálfunar hafi breyst. Sjúkrahús hafi í auknum mæli útskrifað sjúklinga fyrr en áður og endur- hæfing þeirra því flust yfir til sjúkraþjálfara. Þá hafi öryrkjum fjölgað umtalsvert, sem er talinn hluti skýringar á auknum kostn- aði TR vegna sjúkraþjálfunar- innar. ■ bætum vi› einni viku. útsölulok ver›a flví 27 október. opnunartími: virka daga kl. 11 - 18 laugardaga 11 - 16 (loka› sunnudag) nike lagersala allt a› 70% afsláttur n‡legar vörur a.m.k. 40% afsláttur n‡jar vörur 20% afsláttur peysa......... buxur......... gallar......... bolir........... skór........... sundbolir... bolir......... buxur....... peysur...... 1990 1990 4990 990 1990 790 Ver›dæmi 490 1490 1490 Ver›dæmi n‡jar vörur www.ithrottabudin.com extra afsl. af útsöluvörum á kassa, a›eins sí›ustu dagana. Fleiri vörur komnar! 20% daglega STEFÁN PÁLSSON Herstöðvaandstæðingar vilja að Samfylking kveði skýrt upp úr um herinn á Miðnesheiði. ICELAND AIRWAVES 2003 Von er á mun fleiri útlendingum á hátíðina í ár en í fyrra. MAGNÚS ODDSSON „Tónlistin ein og sér dregur fólk ekki til Íslands.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.