Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 30
Hart í útgáfuheimi hér Nýir eigendur Fróða munu hafa leitað til nokkurra kröfuhafa og boðið þeim að greiða fjórðung þeirrar upphæðar sem fyrirtækið skuldar. Nýi eig- andinn er prentsmiðjan Oddi. Oddi var væntan- lega stór kröfuhafi í Fróða áður en fyrirtækið var keypt og óvíst um hve mikið af þeim skuldum fé- lagið fær. Tímarit Fróða halda áfram að koma út en líklegt er að Oddi hyggist ekki eiga fé- lagið til langframa og leitar nú leiða til að hnýta lausa enda áður en hægt verður að ganga frá sölu til áhugasamra fjár- festa. Dagskrá vikunnar - Dagskráin Þá eru einnig væringar í útgáfu Dag- skrár vikunnar. Blaðið hefur komið út í nokkur ár og séð fólki fyrir sjónvarpsdag- skrá og ágætum afþreyingarskrifum. Nýjasta tölublaðið kemur hins vegar út undir nýju nafni. Það heitir nú Dagskráin og útgefandinn er dagskrain.is en var áður Þyrnirós ehf. Sömu níu starfsmennirnir eru hins vegar á bak við útgáfuna. Ólíklegt er að þessar breytingar komi til vegna vel- gengni í rekstrinum. Nýr framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum Landsbankinn tilkynnti í gær um breyt- ingar á skipulagi. Hermann Jónas- son tekur við starfi fram- kvæmdastjóra í nýstofnuðu sölu- og markaðssviði bankans. Í frétt frá bankanum kemur fram að til standi að efla sölu- og markaðssvið Landsbankans og aðlaga skipurit bankans á nokkrum sviðum að þeirri áherslubreytingu. Í gær var einnig tilkynnt um stofnun sviðs einkabankaþjónustu og skattaráð- gjafar. Þar verður Ingólfur Guð- mundsson framkvæmdastjóri. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3849 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 403 Velta: 949 milljónir +0,10% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Samræmd vísitala neysluverðs í september var 2,8 prósentum hærri en í fyrra. Þetta komr fram á vef Hagstofu Íslands í gær. Verð- bólgan hér er því hærri en að meðaltali í EES löndnunum en þar var meðalhækkunin tvö prósent á sama tímabili. Atorka er komið með yfir níu- tíu prósent hlut í Sæplasti. Atorka gerði hluthöfum yfirtökutilboð þann 24. september sl. Hlutabréf í Þýskalandi tóku kipp upp á við í gær. DAX vísitalan hækkaði um 1,25 prósent og er nú 3.964 stig. Síld og fiskur hafar gert samn- ing um kaup á búnaði frá Marel til notkunar við úrbeiningu og snyrtingu á svínakjöti. Stefnt er að því að uppsetningu verði lokið í janúar á næsta ári. 22 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Greiningardeild Landsbankans sér fleira en hagvöxt og hamingju í spilum efnahagslífsins á næst- unni. Greiningardeildin óttast að verðbólga rjúki upp árið 2006 og hefur áhyggjur af því að tök á efnahagsmálum séu ekki nógu hörð og að hagvaxtarverkirnir kunni að vera þungbærir við lok núverandi uppsveiflu. Á fjölsóttum morgunverðar- fundi í gær fóru fulltrúar grein- ingardeildarinnar yfir forsendur hagspár bankans til næstu sex ára. Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur hjá Landsbankan- um, segir að margt í umhverfi efnahagsmála bendi til þess að stormasöm aðlögun kunni að fylgja núverandi uppsveiflu. Að mati Björns Rúnars hefur hið opinbera ekki stillt fram- kvæmdir sínar nægilega vel í takt við hagsveifluna. Þannig hafa opinberar framkvæmdir jafnan verið meiri í uppsveiflu en sam- kvæmt hefðbundnum hagstjórn- arkenningum ætti þessu að vera öfugt farið. Þá segir hann að áætl- aður tekjuafgangur á næsta ári sé ekki nægjanlegur. „Við hefðum viljað sjá meiri afgang. Við tökum ekki afstöðu til þess hvernig menn ætla að ná þessum afgangi. Við bara segjum sem svo að þetta er tæki sem þarf að beita við þessar aðstæður. Það er ákveðinn afgangur sem er settur fram. Sé hann borinn sam- an við afganginn sem var síðast þegar það var uppsveifla þá stef- na menn að því að vera með minni afgang núna og það er það sem við höfum áhyggjur af. Að það verði ekki nóg,“ segir hann. Hættan sem felst í of miklum hagvexti felst í því að eftirspurn í hagkerfinu verði meiri en fram- leiðsluþættir geti sinnt. Það veld- ur því að verð á vörum, þjónustu og vinnuafli hækkar. Að mati Björns Rúnars eru þá ákveðnir þættir í núverandi stöðu sem kunna að draga úr slíkum áhrif- um og nefnir hann sérstaklega ástand á vinnumarkaði. Hagvexti undanfarinna ára hefur ekki fylgt mikil fjölgun starfa og því megi gera ráð fyrir að enn sé nokkur hópur fólks sem sé reiðubúinn að vinna. Þá segir Björn að fjölgun í hópi erlendra starfsmanna hafi jákvæð áhrif á efnahagshorfurn- ar. „Við erum búin að læra að nýta okkur erlenda vinnuaflið þannig að það er einhvers konar alþjóðavæðing í þeim efnum. Það er nokkuð sem mun örugglega hjálpa okkur mjög mikið,“ segir hann. thkjart@frettabladid.is vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 51,20 -0,58% ... Bakkavör 28,20 - ... Burðarás 15,00 +0,33% ... Atorka 5,55 0,91% ... HB Grandi 7,40 - ... Íslandsbanki 11,65 - ... KB banki 505,00 +0,80% ... Landsbank- inn 14,80 -0,67% ... Marel 53,80 -0,37% ... Medcare 6,25 - ... Og fjar- skipti 3,78 - ... Opin kerfi 27,20 +0,74% ... Samherji 13,60 - ... Straumur 9,80 - ... Össur 94,50 -0,53% Áhyggjur af vaxtarverkjum Sæplast 6,36% Kögun 1,58% Atorka 0,91% Landsbankinn -0,67% Actavis -0,58% Össur -0,53% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Ef Decode nær að þróa og markaðs- setja hjartalyfið DG031 mun það hafa veruleg áhrif á rekstur fyrir- tækisins í framtíðinni. Fréttir um að öðrum fasa lyfjaþróunar væri lokið ollu snarpri hækkun á verði hlutabréfa í fyrirtækinu á Nasdaq markaðinum í gær. Hlutabréfin hækkuðu töluvert í viðskiptum fyrir opnun kauphallar- innar í New York en gengu að miklu leyti til baka eftir því sem leið á daginn. Töluvert mikil viðskipti voru með bréfin í gær. Að sögn Guðmundu Óskar Krist- jánsdóttur hjá greiningardeild Landsbankans kom á óvart að bréf- in hafi ekki hækkað meira og vísar hún til þess að í september hafi hlutabréf í Atherogenics hækkað um áttatíu prósent í kjölfar áþekkra frétta. Hugsanlega skýrist það af því að stofnanafjárfestar hafi litið til fréttanna sem tækifær- is til að koma bréfum í Decode í verð. Þá kom það fram í Hálf fimm fréttum KB banka í gær að síðasti fasi lyfjaþróunar, sem ekki er enn kominn í gang, sé sá dýrasti og um- fangsmesti og líklegastur til að sigla þróunarferlinu í strand. Þetta kunni að skýra hófstillt viðbrögð fjárfesta við tíðindunum. „Þeir eru komnir mjög langt þótt stærsti hjallinn sé enn þá eftir. Eftir fasa þrjú koma svo leyfisum- sóknir, markaðssetning og sala lyfsins. Þá verða þeir búnir að breyta vísindalegri niðurstöðu í viðskiptalegt tækifæri og þar liggja miklir tekjumöguleikar,“ segir Guðmunda Ósk Kristjánsdótt- ir. - þk GUÐMUNDA ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR Segir að Decode sé komið langt á veg með þróun lyfsins en stærsti hjallinn sé enn þá eftir. Bjóst við meiri hækkun Sérfræðingur í verðbréfavið- skiptum segist hafa búist við að bréf í Decode hækkuðu meira í kjölfar frétta í gær. FYLGJAST SPENNTIR MEÐ Fjöldi manns hlýddi á umfjöllun Landsbankans um hagspá næstu ára á morgunverðarfundi í gær. Greiningardeild Lands- bankans vill sjá meira að- hald í ríkisfjármálum og ótt- ast ofþenslu í efnahagslífinu. Fjölgun í erlendu vinnuafli mun hafa jákvæð áhrif á hagsveifluna. Nýtt hlutafé í Bakkavör Bakkavör hyggst bjóða fjárfest- um að kaupa nýtt hlutafé að nafnvirði 790 milljónir króna. Tillaga um heimild til slíkrar hækkunar liggur fyrir hluthafa- fundi sem haldinn verður á fimmtudag í næstu viku. Miðað við gengi bréfa Bakka- varar á markaði má gera ráð fyrir að verðmæti hinna nýju hluta verði á bilinu 20 til 22 milljarðar króna. Nær fullvíst er talið að þessi hlutafjáraukning verði notuð til að fjármagna kaup á breska matvælafyrirtæk- inu Geest. Núverandi hluthafar munu hafa forkaupsrétt á stærstum hluta nýja hlutafjárins. Í tillögu stjórnar er þó gert ráð fyrir að stjórnin geti selt starfsmönnum og aðilum sem tengjast félaginu hlutafé fyrir fjörutíu milljónir að nafnvirði. - þk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.