Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 29
Það hefur ekki mikið farið fyrirsnillingnum Grant Hill síðustu
árin í NBA-boltanum. Hill var skipt frá
Detroit Pistons yfir í Orlando Magic í
ágúst árið 2000
og hefur átt við
þrálát ökkla-
meiðsli að stríða
allar götur síðan.
Hann lék aðeins
fjóra leiki á fyrsta
tímabilinu sínu
og 47 leiki fyrstu
þrjú tímabilin.
Hill hvíldi allt
síðasta tímabil í von um að geta
komið sterkur inn í vetur. Magic lék
við Dallas Mavericks á sunnudaginn
var og burstuðu Hill og félagar leik-
inn, 114-93. Kappinn skoraði 20 stig,
tók sex fráköst og gaf fimm
stoðsendingar. Er það góðs viti fyrir
unnendur Hill, sem þótti á sínum
tíma líklegastur sem arftaki Michaels
Jordan í deildinni.
Claude Anelka, bróðir NicolasAnelka hjá Manchester City, hef-
ur sagt upp starfi sínu hjá Raith
Rovers sem aðalþjálfari liðsins.
Rovers hefur gengið af-
leitlega það sem af er
vetri, gert eitt jafntefli
og tapað níu leikj-
um. Áhangendur
Rovers eru æfir
yfir gangi mála
og hefur An-
elka fengið
að finna á
því. „Það er
búið að vera
erfitt að hlusta á
fúkyrði í eigin garð
viku eftir viku,“ sagði
Anelka. „En það er svo sem skiljan-
legt að þeir séu reiðir.“ Gordon
Dalziel, fyrrum leikmaður Rovers,
tekur við starfi Anelka.
David Trezeguet, framherji Juvent-us, gekkst nýlega undir skurðað-
gerð á öxl en kappinn hefur farið úr
axlarlið þrisvar sinnum og kom því
ekki annað til greina
en aðgerð. Stjórn
Juve staðfesti að
Trezeguet yrði frá
næstu þrjá mánuði
og er það skarð fyrir
skildi fyrir Juventus.
Nokkrar af helstu tennishetjumheimsins hafa kvartað undan
stífu prógrammi og fullyrða að þetta
hafi slæm áhrif á íþróttina almennt
þar sem menn
séu úrvinda
vegna þess
álags sem fylgir
í þ r ó t t i n n i .
Lindsay Daven-
port, ein besta
t e n n i s k o n a
heims um þess-
ar mundir, sagði
að það væri
sorglegt að fylgjast með fólki þurfa
að hætta við þátttöku í mótum sök-
um orkuleysis. „Sjálf ligg ég heima
með hita og held að líkaminn sé
bara að gefast upp á of stórum
skammti af tennis,“ sagði Davenport.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Viggó velur ekki Guðmund
Eftir að hafa spilað yfir 400 landsleiki með íslenska landsliðinu í handbolta hefur Guðmundi
Hrafnkelssyni verið tilkynnt að ekki verði not fyrir hans krafta á World Cup í næsta mánuði.
HANDBOLTI „Landsliðsþjálfarinn
hafði samband við mig og til-
kynnti mér að ég yrði ekki valinn
í landsliðið fyrir mótið í Svíþjóð,“
segir Guðmundur Hrafnkelsson,
markvörður og leikjahæsti maður
íslenska landsliðsins í handbolta.
Nýráðinn landsliðsþjálfari,
Viggó Sigurðsson, hyggst velja lið
sitt fyrir World Cup í Svíþjóð sem
fram fer innan skamms og hefur
þegar útilokað Guðmund.
Telja margir að með þessu sé
ferli þessa tæplega fertuga mark-
varðar endanlega lokið með lands-
liðinu en Guðmundur hefur und-
anfarið leikið með þýska liðinu
Kronau-Östringen.
Sigurður Sveinsson, fyrrver-
andi handboltahetja og samherji
Guðmundar til margra ára, er
sammála því mati.
„Ég tel lítinn vafa leika á því að
þetta táknar endalokin fyrir Guð-
mund vin minn í marki landsliðs-
ins. Hitt er svo annað mál að hann
á skilið að fá hvíldina enda hefur
hann staðið vaktina með mikilli
prýði í langan tíma. Ég tel að með
þessu sé Viggó að fylgja því eftir
sem hann hefur sagt að það verði
breytingar á landsliði Íslands
undir hans stjórn og yngri leik-
menn fái að spreyta sig.“
Viggó Sigurðsson vildi að-
spurður ekki staðfesta að hafa úti-
lokað Guðmund frá landsliðinu í
næstu keppni.
„Ég tilkynni hópinn þann 11.
nóvember og svara engu fyrir
þann tíma. Ég er bæði búinn að
skoða og ræða við fjölmarga und-
anfarið. Bæði þá sem hafa verið í
liðinu og eins hina sem hafa ekki
komið nálægt landsliðinu áður og
það er allt opið eins og sakir
standa.“
Guðmundur sjálfur er þó ekki
ósáttur við að vera ekki valinn
enda kappinn búinn að spila yfir
400 landsleiki á sinni tíð með
landsliðinu sem hefur spannað
nítján tímabil.
„Ég hef skilað mínu með lands-
liðinu og þessi tilkynning kom
ekkert sérstaklega á óvart. Það
eru því engin sérstök vonbrigði og
nú get ég einbeitt mér betur með
mínu félagsliði.“
albert@frettabladid.is
Garðar Jóhannsson:
Framlengir
við KR
FÓTBOLTI Framherjinn Garðar
Jóhannsson hefur framlengt
samning sinn við KR til næstu
tveggja ára. Samningur Garðars
var runninn út en hann gekk til
liðs við félagið frá Stjörnunni
fyrir tveimur árum. Hann lék
ekkert með liðinu á nýafstöðnu
tímabili eftir að hafa meiðst á hné
á undirbúningstímabilinu en for-
ráðamenn KR binda vonir við að
hann komi sterkur til leiks á
næsta tímabili.
KR-ingar vonast einnig til að
ná samkomulagi við markvörðinn
Kristján Finnbogason á næstu
dögum. Kristján hefur verið
orðaður við bæði Grindavík og
Val að undanförnu en
Jónas Kristinsson,
stjórnarformaður
KR-sports, sagði í
samtali við Frétta-
blaðið í gær að
hann væri bjart-
sýnn á að Kristján
léki áfram í her-
búðum liðsins á
næsta ári. ■
GUÐMUNDUR HRAFNKELSSON Telja má líklegt að ferli hans sem landsliðsmanns sé
lokið en hann verður ekki valinn í landsliðshópinn sem Viggó Sigurðsson mun tilkynna í
næsta mánuði. Fréttablaðið/Teitur