Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 31
23MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 ISDN POSAR Heimildarbeiðni tekur aðeins 3-5 sek. í stað 20-30 sek. Allt að átta posar í einu Hver heimild kostar aðeins 1 kr. í stað 4 kr. Fyrirtæki og verslanir sem nýta posa í starfsemi sinni geta breytt venjulegri símalínu í ISDN stafræna símatengingu. Með ISDN stafrænni símatengingu stóraukast afköstin á álagspunktum og þar af leiðandi þjónustan um leið. Fáðu nánari upplýsingar í síma 800 4000 eða á siminn.is. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 1 1 8 1 8 Nemendur í Háskólanum í Reykjavík fá ókeypis aðgang að gögnum Kauphallarinnar. Nemendur Háskólans í Reykjavík fá ókeypis aðgang að upplýsing- um í á netinu af íslenskum fjár- málamarkaði frá Kauphöll Ís- lands. Samningur þessa efnis var undirrituður fyrir skömmu og nær hann til um 150 nemenda. Auk þess að geta fylgst með viðskiptum, tilboðum og fréttum geta nemendur skoðað og greint söguleg gögn, skoðað ársreikn- inga og kennitölur félaga, gert ýmiss konar samanburð á fjár- festingarkostum og margt fleira. „Það er frábært tækifæri fyrir nemendur okkar að geta haft sömu sýn á íslenskan fjármála- markað og verðbréfamiðlarar og aðrir fagmenn hafa,“ segir Þórdís Sigurðardóttir, forstöðumaður MBA-náms við HR. Þar að auki styrkir þetta samkeppnisstöðu Háskólans í Reykjavík enn frekar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, tekur í sama streng og segir það koma sér vel að nemendur, sem margir hverjir komi til með að starfa við fjár- málamarkaði, fái þetta tækifæri til að kynnast þeim upplýsinga- kerfum sem notuð eru. Hann segir því sjálfsagt að fella niður gjöld til þess að veita nemendum aðgang. - th HÁSKÓLINN Í REYJAVÍK Nemendur fá nú gjaldfrjálsan aðgang að gögnum frá Kauphöll Íslands. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Fá ókeypis aðgang Um leið og frumvarp til fjárlaga var birt 1. október síðastliðinn gaf fjármálaráðu- neytið út nýja þjóðhagsspá. Í spánni er gert ráð fyrir að hagvöxtur á þessu ári verði 5,5%, verðbólga 3%, atvinnuleysi 3% og viðskiptahalli nemi 7,25% af landsframleiðslu. Margir halda að því meiri sem hagvöxt- urinn er, því betra. Vandamálið er að ef hagvöxtur er umfram aukningu í fram- leiðslugetu þá leiðir hann til ójafnvægis sem síðar þarf að leiðrétta á einn eða annan hátt. Þessar tölur sýna að þensla er að skapast í þjóðarbúskapnum, þ.e. hagvöxtur er meiri en framleiðslugeta þjóðarbúsins stendur undir og því skap- ast þrýstingur á verðlag og verðbólga hækkar. Eftirspurn eykst umfram fram- leiðslu og kemur það fram í auknum innflutningi og þar með auknum við- skiptahalla. Áætlun fjármálaráðuneytis fyrir þetta ár lýsir því aukinni þenslu í þjóðarbúskapnum. Fjármálaráðuneytið sá hins vegar ekki þessa þenslu fyrir ári síðan. Þá gerði ráðuneytið ráð fyrir 3,5% hagvexti á þessu ári, 2,5% verðbólgu, 2,5% at- vinnuleysi og viðskiptahalla upp á 3,25% af landsframleiðslu. Þessi mynd lýsir ágætu jafnvægi í þjóðarbúskapnum og er því allt önnur en nú er dregin upp. Sem dæmi um hversu mikið spáin hefur breyst á einu ári þá spáði fjármálaráðu- neytið 4% vexti þjóðarútgjalda fyrir ári síðan, en nú er gert ráð fyrir 8,25% vexti. En hvað um komandi ár? Sú mynd sem fjármálaráðuneytið dregur upp er afar svipuð spánni fyrir þetta ár, þ.e. mikill hagvöxtur eða 5% og verðbólga um- fram verðbólgumarkmið eða 3,5%. Þá er gert ráð fyrir ívið minna atvinnuleysi en á þessu ári, eða 2,75%. Aftur á móti er enn meira ójafnvægi í viðskiptum við útlönd þar sem búist er við mesta við- skiptahalla í hálfa öld, eða 11% af landsframleiðslu. Spáin fyrir árið 2006 er næstum sú sama, nema viðskipta- hallinn er sá mesti frá upphafi lýðveldis- ins og hagvöxtur minni, þ.e. enn meira ójafnvægi en á árunum 2004-5. Í spá sinni gerir fjármálaráðuneytið ráð fyrir þensluástandi næstu árin. Verð- bólga er umfram verðbólgumarkmið og mikill viðskiptahalli mun væntanlega auka þrýsting á að gengi krónunnar veikist og gæti því bætt enn í verðbólg- una. Með styrkri hagstjórn væri hægt að vinna á móti þenslunni og styðja við stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Ekki er að sjá að fjármálaráðuneytið geri ráð fyrir slíkum aðhaldsaðgerðum í sinni spá. ÞJÓÐARBÚSKAPURINN KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR Er meiri hagvöxtur betri? BYGGINGARFRAMKVÆMDIR „Margir halda að því meiri sem hagvöxturinn er því betra. Vandamálið er að ef hagvöxtur er umfram aukningu í framleiðslugetu þá leiðir hann til ójafnvægis sem síðar þarf að leiðrétta á einn eða annan hátt.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.