Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 14
14 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
SLÖKKVILIÐSBÍLAR Á SÝNINGU
Slökkviliðsbílar og annar tæknibúnaður til
slökkvistarfa er í fyrirrúmi á fjögurra daga
sýningu sem stendur yfir í Peking í Kína.
Fyrirtæki víða að úr heiminum kynna bún-
að sinn á sýningunni. Hundruð manna
hafa látið lífið í eldsvoðum í Kína það sem
af er árinu.
Rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar:
Áhrifaríkt lyf án aukaverkana
HEILBRIGÐI Tilraunalyfið DG031
sem Íslensk erfðagreining hefur
prófað á 172 Íslendingum með
góðum árangri kemur upphaf-
lega frá þýska lyfjarisanum
Bayer AG. Efnið er lítil lyfjasam-
eind sem hindrar virkni tiltek-
inna prótína sem hvetja til mynd-
unar bólguvaka sem aftur eru
taldir geta leitt til hjartaáfalls.
ÍE öðlaðist nýtingarrétt á
DG031 í nóvember á síðasta ári
og við það tækifæri sagði Kári
Stefánsson, forstjóri fyrirtækis-
ins, að um merkilegan áfanga
væri að ræða í sögu fyrirtækis-
ins. „Lyfjaefnið hefur þegar farið
í gegnum mörg skref lyfja-
þróunar og prófana. Meðal ann-
ars hefur verið sýnt fram á að
það er öruggt í inntöku og því
fylgja engar meiriháttar auka-
verkanir. Við höfum því flýtt um
nokkur ár því ferli sem þarf til að
breyta uppgötvunum okkar í
rannsóknum á erfðafræði hjarta-
áfalls í ný lyf gegn stærstu dán-
arorsök íbúa hins iðnvædda
heims.“ Með niðurstöðunum sem
kynntar voru í gær hefur ÍE
færst nær takmarki sínu
Lyfinu DG031 hefur enn ekki
verið gefið nafn en að sögn kunn-
ugra getur gott heiti á lyfi auð-
veldað markaðssetningu þess.
- shg
Nýtt hjartalyf er
handan við hornið
Prófanir Íslenskrar erfðagreiningar á nýju lyfi leiða í ljós að það hefur marktæk áhrif á
áhrifaþætti hjartaáfalls. Tilraunum er ólokið en komist lyfið á markað mun verðmæti
fyrirtækisins margfaldast að því er stjórnendur þess segja.
HEILBRIGÐI Íslensk erfðagreining
er komin vel á veg í þróun lyfs
sem getur fyrirbyggt hjartaáföll.
Tilraunum er ekki lokið en niður-
stöður nýjustu rannsókna lofa
góðu. Verð á bréfum í Decode
hækkaði talsvert eftir að fréttirn-
ar voru kunngerðar.
Íslensk erfðagreining kynnti í
gær helstu niðurstöður prófana á
tilraunalyfinu DG031 en 172
sjúklingar á hjartadeild Landspít-
ala-háskólasjúkrahúss tóku þátt
í tilraununum. Niðurstöðurnar
sýna að lyfið hefur tilætlaða
virkni á fleiri en einn áhættuþátt
hjartaáfalls. Allar skammta-
stærðir lyfsins sem prófaðar
voru minnkuðu styrk tiltekins
bólguvaka en erfðarannsóknir ÍE
hafa sýnt fram á að þessi bólgu-
vaki tengist aukinni hættu á
hjartaáfalli. Þetta bendir til þess
að lyfið geti minnkað líkurnar á
því að fólk fái hjartaáfall en þó á
eftir að sýna fram á það með
óyggjandi hætti. Engar alvarleg-
ar aukaverkanir komu í ljós í
lyfjaprófununum.
Að sögn Kára Stefánssonar,
forstjóra ÍE, er uppgötvunin einn
merkasti áfanginn í sögu fyrir-
tækisins. „Hugmyndin með
fyrirtækinu var sú að við gætum
einangrað erfðavísa sem leiða til
algengra sjúkdóma og nú hafa
fyrstu skrefin verið tekin til að
þróa lyf á grundvelli slíkra rann-
sókna. Þetta er að ég held í fyrsta
sinn í heiminum sem að menn
hafa tekið meingen erfðavísis
sem fylgir áhætta á sjúkdómi og
notað það til að hanna lyf sem
hefur verið tekið í gegnum
klínískar rannsóknir.“
Kári segir að efnahagslegar
forsendur Íslenskrar erfðagrein-
ingar myndu gjörbreytast ef
fyrirtækinu tækist að koma lyf-
inu á markað en líkurnar á því
hafa margfaldast við fund erfða-
vísisins mikilvæga. Kári útilok-
aði ekki samstarf við önnur lyfja-
fyrirtæki á lokasprettinum en
sagði jafnframt að þau yrðu þá að
gera ÍE gott tilboð því fyrirtækið
hafi borið alla áhættuna fram að
þessu. Viðskipti með bréf í
Decode, móðurfélagi Íslenskrar
erfðagreiningar, tóku mikinn
kipp þegar tíðindin spurðust út
en um gengi þeirra má nánar lesa
aftar í blaðinu.
Þriðja og síðasta stig prófana á
virkni lyfsins hefst á næstunni og
er markmið þeirra að kanna
hvort lyfið fækki hjartaáföllum í
hópi þátttakenda. Ef allt gengur
að óskum verður lyfið sett á
markað eftir 3-5 ár.
sveinng@frettabladid.is
Nýja lyfið:
Mikil rann-
sóknarvinna
HEILBRIGÐI Þótt rannsóknir ÍE á
lyfinu DG031 hafi aðeins staðið
yfir í tæpt ár þá má segja að öll
saga fyrirtækisins hafi miðað að
þessum áfanga. Erfitt er að meta
fjölda þess starfsfólks sem hefur
komið að verkinu en víst er að það
teygir anga sína víða. Erfðafræði-
rannsókna- og lyfjaþróunardeildir
ÍE hafa borið hitann og þungann
af vinnunni en starfsfólk á
sviði tölfræði, aðgerðagreiningar,
tölvumála og jafnvel ættfræði
hafa einnig komið að málum. Þá
er ótalinn þáttur starfsfólks Land-
spítala-háskólasjúkrahúss.
- shg
■ EVRÓPA
BRETAR Í BASRA
Breskir hermenn taka sér líklega stöðu á
herstjórnarsvæði Bandaríkjahers.
Herflutningar:
Bretar fara
nær Bagdad
ÍRAK, AP Bretar hafa skilning á
vanda Bandaríkjahers í Írak og
líta vinsamlegum augum á beiðni
þeirra um að breskir hermenn
taki sér stöðu á herstjórnarsvæði
Bandaríkjahers svo Bandaríkja-
menn geti ráðist af meiri krafti
gegn vígamönnum. Þetta sagði
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands í gær. Því má telja lík-
legt að Bretar taki sér stöðu nær
Bagdad en hingað til.
Ítalir eru hins vegar ekki jafn
jákvæðir í garð Bandaríkja-
manna. Antonio Martino varnar-
málaráðherra sagði í gær að það
kæmi ekki til greina að flytja ítal-
ska hermenn nær Bagdad þar sem
mikið hefur verið um árásir. ■
Veiðiferð:
Björn drap
veiðimann
SVÍÞJÓÐ Björn banaði veiðimanni
nyrst í Svíþjóð. Maðurinn hafði
farið ásamt fimm félögum sínum
til að veiða elgi en var einn þegar
björninn réðist á hann.
Að sögn sænska Aftonbladet er
talið að veiðimaðurinn og hundur
hans hafi raskað ró bjarnarins
sem var lagstur í hýði. Við það
hafi björninn reiðst og ráðist á
veiðimanninn sem náði að skjóta
björninn einu sinni. Það stöðvaði
þó ekki björninn sem sló manninn
í höfuðið og er talið að hann hafi
látist samstundis. Björninn stóð
síðan vörð um líkið þar til hann
drapst sjálfur. - bþg
SJÁLFSMORÐ ALGENGASTA DÁN-
ARORSÖKIN Sjálfsmorð kostar
fleiri írska og norður-írska ung-
linga lífið en nokkur önnur dán-
arorsök samkvæmt nýrri skýrslu
sem birt var í gær. Þrír af hverj-
um tíu 15 til 24 ára einstaklingum
sem látast fremja sjálfsmorð.
Sjálfsmorð eru í fyrsta sinn tíðari
dánarorsök en bílslys.
BJÖRN DREPUR KONU Björn
barði konu til bana og særði sjö
til viðbótar alvarlega þegar hann
gekk berserksgang nærri borg-
inni Brason í Transylvaníu í
Rúmeníu. Rannsókn á birninum
leiddi í ljós að hann þjáðist af
hundaæði.
SJÁVARÚTVEGUR Fiskmarkaður hefur
verið opnaður á Siglufirði. Ólafur
Kárason, formaður bæjarráðs
Siglufjarðar, segir að markaðurinn
sé opnaður vegna aukinnar fisk-
gengdar á miðunum fyrir norðan
land.
„Ýsu- og þorskveiði hefur verið
að aukast og við vonum að tölu-
verðum hluta aflans verði landað á
Siglufirði,“ segir Ólafur. „Þetta fer
mjög vel af stað. Við bindum
miklar vonir við markaðinn, þar
sem Siglufjörður liggur mjög vel
við miðunum hér fyrir norðan. Þá
opnar markaðurinn ákveðna mögu-
leika fyrir útgerðarmenn og fisk-
verkendur.“
Siglufjörður var töluvert í frétt-
um um síðustu mánaðamót þegar
Þormóður rammi - Sæberg ákvað
að hætta rækjuveiðum í bili vegna
lélegrar veiði. Ólafur segir at-
vinnuástandið alls ekki vera
alslæmt.
„Aðkomubátar hafa verið að
sækjast eftir því að róa frá Siglu-
firði og við höfum verið að bæta
aðstöðuna fyrir þá og þar með auka
atvinnutækifærin í bænum.“ ■
Siglfirðingar auka atvinnutækifærin:
Opna nýjan fiskmarkað
FISKMARKAÐURINN Á SIGLUFIRÐI
Steingrímur Óli Hákonarson, framkvæmda-
stjóri fiskmarkaðarins, og Hafþór Kolbeins-
son starfsmaður afgreiða sextán tonn af
fiski. Að fiskmarkaðnum standa Þormóður
rammi - Sæberg, GM fiskverkun, Norður-
frakt og Steingrímur Óli.
KÁRI STEFÁNSSON
Kári segir uppgötvun fyrirtækisins vera eina þá merkilegustu í sögu þess.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Fyrirtækið fékk nýtingarrétt á lyfinu DG301
fyrir tæpu ári síðan, en því hefur ekki enn
verið gefið nafn.