Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2004 25 BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 Matarlist og leikhús Leikhúsmatseðill milli kl. 18.00 - 20.00 ÞrIggja rétta kvöldverður á 4.500 kr. Upplýsingar á www.holt.is • • • • • • • • • Náttúran er alltumlykjandi á sýningu Tolla í Smiðjunni. Í Smiðjunni – listhúsi við Ármúla verður opnuð sýning á verkum Tolla á morgun, fimmtudag. Sýn- ingin ber heitið „Í ljósaskiptun- um“ og segir Tolli að myndirnar séu dálítið dramatísk minni úr íslenskri náttúru og ferð sinni um Strandirnar á kajak í sumar, þegar hann reri með félögum sín- um frá Ingólfsfirði og norður fyr- ir Hornbjarg. „Ég sýni einnig vatnslitamyndir sem ég málaði í Aðaldalnum í Þingeyjarsýslu,“ segir hann, „þannig að náttúran er alltumlykjandi.“ Það kveður við nokkuð nýjan tón hjá Tolla á þessari sýningu frá því sem áður hefur verið, hvort heldur er í formum eða litum. „Já, það eru fjögur eða fimm ár síðan ég sýndi síðast hér í Reykja- vík. Á þeim árum hefur ýmislegt breyst. Ég hef verið að sýna víða um Evrópu og einbeitt mér að því að finna pláss fyrir myndir mínar þar. Það er hins vegar gaman að fá tækifæri til þess að sýna aftur hér í Reykjavík.“ Tolli segir að myndirnar á sýn- ingunni séu meira og minna sjáv- ar- og veðramyndir. „Hitabylgju- sumarið sem var á Íslandi í ár gerði það að verkum að fyrir norðan og vestan lagði inn haf- þoku. Þegar leið á daginn fóru skýin að leysast upp og sólin að teikna inn í landið í gegnum slæð- urnar. Þetta var ævintýralegt, liggur við zen-búddískt ástand. Kyrrð og mikilfengleiki í senn. Svo voru það þessar gömlu mann- vistarleifar; gamlar tóftir og gamlar bryggjur inni í þessari mögnuðu náttúru. Það er fátt sem segir manni eins skýrt sögu þessa lands og tilvistarbrot sem eru að hverfa í tímann. Þau segja okkur allt um það hvaðan við erum að koma. Verkin eru auðvitað bullandi melankólía. Myndirnar eru fremur sprottnar af tilfinninga- legum foresendum en rökrænum. Landslagið sem ég mála er ekki endilega konkret fjall, heldur sæki ég þetta inn í tilfinningalegt minni, hræri saman ýsmum áhrif- um og niðurstaðan er ákveðin nos- talga – og í nostalgíunni eru oft vegvísar um framtíðina. Við erum alltaf að reyna að búa til eitthvað nýtt, en þegar við stöndum á krossgötum þurfum við að finna leiðina áfram með því að fara langt aftur. Þannig er það bæði hvað varðar okkar persónulega líf og í samfélaginu.“ sussa@frettabladid.is Sólin teiknar landið í gegnum slæður Eins konar dagbók Króatíski listamaðurinn Nica Radic opnar sýningu á verki sínu, Journal, í anddyri Nýlistasafnsins á Laugavegi 26 á morgun. Verkið hefur hún unnið síðustu vikur hér á Íslandi en hún hefur verið gesta- listamaður hér á landi í boði Norrænu samtímalistamiðstöðv- arinnar í Helsinki og Nýlista- safnsins. Verkið er einskonar dag- bók sem hún hefur haldið hér á landi um samskipti sín við land og þjóð. Hún mun einnig sýna tvö eldri vídeóverk; „(pause)“ og „kind of like“. Nica er fædd í Króatíu en býr um þessar mundir í Vín. Hún hefur haldið sýningar í Grita Insam Gallery í Vín og í Nútímalistasafninu í Zagreb. ■ Ljóðakvöld á Súfistanum Bókaforlagið Bjartur stendur fyrir bókmenntakvöldi á kaffihús- inu Súfistanum, Laugavegi 18, miðvikudaginn 20. október. Til- efnið er útkoma ljóðabókanna Svona er að eiga fjall að vini eftir Véstein Lúðvíksson, Kjötbærinn eftir Kristínu Eiríksdóttur og Bók spurninganna eftir Pablo Neruda. Lesið verður úr þessum bókum og leikið af fingrum fram, auk þess sem krýndir verða sigurvegarar í ferskeytlukeppni sem Bjartur efndi til í lok sumars. Dagskráin hefst kl. 20.30, er öllum opin og er aðgangur ókeypis. ■ TOLLI Það er fátt sem segir manni eins skýrt sögu þessa lands og tilvistarbrot sem eru að hverfa í tímann.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.