Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 10
10 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Félagsmálaráð: Tillaga um dýrari heimaþjónustu BORGARMÁL Gjöld fyrir heimaþjón- ustu, fæði og akstur í félagsstarfi í Reykjavík hækka um tuttugu millj- ónir króna á næsta ári miðað við tillögur sem liggja fyrir í félags- málaráði Reykjavíkur vegna gerð- ar fjárhagsáætlunar næsta árs. Björk Vilhelmsdóttir, formaður ráðsins, segir að ekki sé verið að hækka gjaldið hjá þeim sem þurfa hjúkrun. Markmiðið sé að þeir sem fái umönnun, til dæmis við að fara á fætur á morgnana, greiði ekkert fyrir þjónustuna en þeir sem ein- ungis nýti sér þrif í heimahúsi borgi fyrir þjónustuna. Um 87 pró- sent notenda heimaþjónustu greiða fyrir hana. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, full- trúi Sjálfstæðisflokksins í félags- málaráði, segir að með þessu séu aldraðir og aðrir sem njóta þjón- ustunnar látnir greiða fyrir niður- skurð borgarinnar. „Það er verið að sækja tuttugu milljónir í vasa þeirra. Það er sama í hvaða búning Reykjavíkurlistinn setur hækkun- ina, það breytir því ekki að aldrað- ir þurfa að greiða tuttugu milljón- um meira fyrir þjónustuna.“ - ghg BORGARMÁL Ekki kemur til greina að aflétta kvöðum sem fylgja skipulagi vegna matvöruverslun- ar Bónuss og Hagkaupa í Spöng- inni að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipu- lagsnefndar borgarinnar. Eigandi verslunarinnar Heim- ilisvörur, sem er á athafnasvæð- inu við Fossaleyni í Grafarvogi, hyggst fara í mál við borgaryfir- völd vegna þess að samkvæmt skipulagskvöðunum má ekki opna matvöruverslun þar. „Tilgangurinn með kvöðunum er að styrkja uppbyggingu Spangarinnar, sem þá megin- verslunarmiðstöð fyrir Grafar- vogshverfið. Þetta er eitthvað sem gert er alls staðar – líka í ná- grannasveitarfélögunum,“ segir Steinunn Valdís. „Þetta snýst um skipulag. Þetta hefur ekkert að gera um það hverjir reka þessar verslanir. Hagkaup fékk þessu úthlutað árið 1996 en þá var Hagkaup í eigu Sigurður Gísla Pálmasonar.“ Steinunn Valdís segir að auð- vitað geti menn ákveðið að breyta skipulaginu seinna. „Aðstæður geta breyst. Ef það verður ákveðið að breyta skipu- laginu verður að liggja fyrir hvaða afleðingar það muni hafa í för með sér. Ef það yrði leyft að opna matvöruverslun við Fossa- leyni þyrfti að endurskilgreina skipulagið í stærra samhengi, þar með talið gatnakerfið en götur þarna bera kannski ekki þá um- ferð sem verslunarmiðstöðvum fylgja. Það er allt önnur umferð við verslunarmiðstöð en iðnaðar- hverfi.“ Júlíus Vífill Ingvarsson, lög- maður eiganda Heimilsvara, segir að tilgangi kvaðanna sé náð. Búið sé að byggja upp verslunarmið- stöðina í Spönginni og tími til kominn að heimila öðrum að opna og reka matvöruverslanir í sam- keppni við verslanirnar í Spöng- inni. „Þessu máli er á engan hátt beint gegn Bónus,“ segir Júlíus Vífill. „Skjólstæðingur minn áleit einfaldlega að hann þyrfti ekki að sæta þessum kvöðum að eilífu. Hann taldi að kvaðirnar hefðu verið settar til að Spöngin gæti byggst upp í friði en ekki til þess að stemma stigu við matvöru- verslun á athafnasvæðum í Graf- arvogi.“ trausti@frettabladid.is FÓLKSFLUTNINGAR Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, segir aðspurður að þörf sé á að skoða þær tölur sem skýrt er frá í Fréttablaðinu í gær varðandi fækkun íbúa á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn ársfjóðung. Þar kom fram að fleiri fluttu frá höfðuborgarsvæðinu en til þess á þriðja ársfjórðungi ársins. Að sögn Stefáns Ólafssonar pró- fessors er líklegasta skýringin á því sú að meira atvinnuleysi sé á suðvesturhorninu en á lands- byggðinni. „Þetta er athyglisvert en það verður að taka inn í myndina um hve stutt tímabil er að ræða,“ segir Guðlaugur Þór. „Við höfum þegar bent á það að það er ákveð- inn hópur fólks, sérstaklega barnafólk, að flýja úr borginni og til nágrannasveitarfélaganna þar sem aðstæður virðast vera betri,“ segir hann. „Það er ástæða til að hafa áhyggjur af langtímaatvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu sem er nokkuð sem ekki hefur sést á Íslandi fyrr en nú síðustu miss- eri,“ segir Guðlaugur Þór. „At- vinnuleysi er alltaf áhyggjuefni,“ segir hann. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, segir að Reykjavík hafi þá sérstöðu að þar eru fleiri störf en íbúar. „Í því ljósi þurfa kannski fleiri sveitar- félög en Reykjavík að taka á at- vinnumálum á höfuðborgarsvæð- inu. Það er hins vegar áhyggju- efni fyrir höfuðborgarsvæðið í heild og vekur upp spurningar um áherslu stjórnvalda í atvinnu- sköpun, annars vegar á lands- byggðinni og hins vegar á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Steinunn Valdís. - sda Ísafjarðardjúp: Rækjuveiðar bannaðar SJÁVARÚTVEGUR Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækju- veiðar verði ekki leyfðar í Arnar- firði að svo stöddu. Nýlokið er haustkönnun á rækjumiðum á Vestfjörðum og eru niðurstöður Hafrannsóknastofnun- ar þær að mikil fiskgengd í Ísa- fjarðardjúpi hafi að öllum líkind- um leitt til hruns rækjustofnsins þar. Í Arnarfirði var stofnvísitala langt undir meðaltali og talið að veiðar ógni stofninum þar. - bþe ■ ÍRAK SPRENGJUM SKOTIÐ Á ÞJÓÐ- VARÐLIÐ Í það minnsta fjórir íraskir þjóðvarðliðar létu lífið þegar sprengjum var skotið á bækistöðvar þeirra í Mashahid- an, 40 kílómetra norður af Bagdad. Írösk yfirvöld sögðu að hundrað manns hefðu særst eða látist. Bandaríkjamenn sögðu í það minnsta fjóra hafa látist. SPRENGJUÁRÁSIR Í MOSUL Tveir óbreyttir borgarar létu lífið og þrír særðust í þremur bíl- sprengjuárásum í borginni Mos- ul í norðanverðu Írak. Sprengju- árásirnar áttu sér allar stað um hádegisbilið. Hverfafundir borgarstjóra eru nauðsynlegur vettvangur milliliðalausrar samræðu milli borgaryfirvalda og íbúa. Þeir eru árviss málþing um hagsmunamál íbúa og ég vona að þú sjáir þér fært að koma og ræða málin á fundi í þínu hverfi. Hittumst heil, Þórólfur Árnason M IX A • fít • 0 3 0 1 4 Þjónustan í borginni Næstu hverfafundir: Grafarvogur – fimmtudaginn 21. október kl. 20 í Víkurskóla. Miðborg – mánudaginn 25. október kl. 20 í Austurbæjarskóla. hverfafundir borgarstjóra 2004 nánari upplýsingar á www.reykjavik.is Háaleiti – Blesugróf, Fossvogur, Gerði, Háaleiti, Múlar, Mýrar – Álftamýrarskóla í kvöld kl. 20 LANGUR OG FLÓKINN KJÖRSEÐILL Það tekur kjósendur í Polk-sýslu í Iowa í Bandaríkjunum væntanlega lengri tíma að kjósa en íslenska kjósendur. Þar þarf að kjósa forseta, þingmenn á landsvísu og á ríkisþingið, lögreglustjóra og fleiri embætt- ismenn. Þó geta menn flýtt fyrir sér og merkt við ákveðinn flokk sem verður til þess að frambjóðandi þess flokks í hvert embætti fær atkvæði kjósandans. JÚLÍUS VÍFILL Tilgangi kvaðanna er náð. STEINUNN VALDÍS Málið snýst um skipulag. Kvöðunum ekki aflétt í Grafarvogi Eigandi Heimilisvara ætlar í mál við Reykjavíkurborg. Hann telur einokun ríkja í verslunarrekstri í Grafarvogi. Borgaryfirvöld láta ekki undan þrýstingi. VERSLUNARMIÐSTÖÐIN SPÖNGIN Deilt er um það hvort Bónus og Hagkaup eigi einar verslana að fá að selja matvæli í Grafarvogi. Borgarfulltrúar um flutning fólks frá höfuðborgarsvæðinu: Atvinnuleysi er áhyggjuefni GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON: „Það er ástæða til að hafa áhyggjur af langtímaatvinnuleysi á höfuðborgarsvæð- inu sem er nokkuð sem ekki hefur sést á Íslandi fyrr en nú síðustu misseri.“ 130 HANDTEKNIR Íraskar örygg- issveitir og bandarískir her- menn handtóku nær 130 meinta vígamenn í aðgerðum sínum suður af Bagdad. Flestir voru handteknir í borginni Iskandari- yah, tæpa fimmtíu kílómetra suður af höfuðborginni. ■ SAMGÖNGUR ENGIN NORRÆNA Ferð Norrænu frá Færeyjum til Seyðisfjarðar var frestað í fyrrakvöld vegna veðurs. Er þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem ferð ferj- unnar til Íslands er frestað vegna veðurs. Norræna hélt í gærkvöld frá Færeyjum áleiðis til Hjaltlands. GJALD FYRIR AKSTUR HÆKKAR Tillögur vegna fjárhagsáætlunar Reykjavíkur gera ráð fyrir hækkun á þjónustu við aldraða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.