Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 26 12 2 1 0/ 20 04 Ekkert mál Það er bæði spennandi og skemmtilegt að taka verkefnin í sínar eigin hendur. Stundum er létt tilsögn það eina sem þú þarft. Og ánægjan að verki loknu verður líka margföld. Það er ekkert mál. Vetur konungur Raflínur slitna sundur, rúturfjúka út af þjóðveginum og jafnvel þjóðvegirnir sjálfir breytast í malbiksflyksur sem stormurinn blæs út í buskann. Þakplötur svífa um háloftin, fjallvegir eru ófærir vegna snjóa og meira að segja sjóleið- in til Íslands er orðin kolófær og ferjan Norræna sem færir okkur sjóveika túrista liggur við stjóra í Færeyjum og bíður þess að veðrinu sloti. Allt í einu er vetur skollinn á, og ekki nóg með það heldur minnir hann okkur á það með harkalegum hætti hver er hinn raunverulegi konungur á Íslandi. VETURINN er dáldið óútreikn- anlegur þjóðhöfðingi; stundum mildur og hlýr, stundum harður og kaldur. Í sumar þegar ver- öldin lét sem blíðast við okkur urðu margir til þess að spá því að í vetur yrðum við látin gjalda sumarblíðuna dýru verði, enda er það útbreidd skoðun á Íslandi að vellíðan sé óverðskulduð og refsiverð tilfinning sem hafi ævinlega í för með sér makleg málagjöld. TIL FORNA tíðkaðist það hjá norrænum þjóðum að líta á ár- ferði sem hæstaréttardóm nátt- úruaflanna yfir landsstjórninni, og samkvæmt því voru þeir kóngar settir af og jafnvel tekn- ir af lífi sem ekki gátu tryggt þegnum sínum gott árferði. Með breyttum atvinnuháttum er lífs- afkoma okkar ekki lengur jafn háð veðurfari eins og forðum tíð, og aftökur eru aflagðar. En það tíðkast þó enn að skipta um landsstjórnarmenn ef fólk ger- ist verulega uggandi um lífsaf- komu sína og lífskjör. UNDANFARIN ÁR hafa ver- ið góð og gjöful og milljarða- mæringar hafa sprungið út á meðal okkar eins og fíflar á túni. Það setur því að manni óhug þegar veturinn boðar komu sína með svo hörkulegum hætti. Verkföll vita sjaldnast á gott, en þó er það huggun harmi gegn að eina verkfallið í augna- blikinu bitnar á skólakrökkum sem ekki fá að glugga í skóla- bækurnar sínar um stund. Verra væri ef bankamenn færu í verkfall og stöðvuðu blóðflæði fjármagnsins um þjóðarlík- amann og lokuðu fyrir okkur bankabókunum sem geyma þær bókmenntir sem okkur eru langtum kærastar nú um stund- ir. ■ BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR ÁRITAÐ EINTAK Á 149KR? Sendu SMS ske ytið BTC CDF á númerið 1900 og þú gætir unn ið. hver vinnur SMS leikur Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.