Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 8
8 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Tækniháskólinn og Háskólinn í Reykjavík: Sameinast næsta sumar HÁSKÓLAR Stofnaður verður nýr háskóli sem tekur yfir rekstur Háskólans í Reykjavík og Tækni- háskóla Íslands. Samkomulag um þetta var undirritað í gær í Þjóðminjasafninu. Stefnt er að því að starfsemin verði endanlega sameinuð næsta sumar. Þá verður skólinn næst stærsti háskóli landsins með í kringum 2.600 nemendur og um 180 fasta starfsmenn. Byggt verður nýtt hús fyrir nýja skólann og er stefnt að því að flytja hann undir eitt þak í júlí árið 2007. Fram að þessu hefur Háskól- inn í Reykjavík verið rekinn af Verslunarráði Íslands og Tækni- háskóli Íslands verið ríkishá- skóli. Hluthafar í rekstrarfélagi nýja skólans eru Verslunarráð Ísland, Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins. Félaginu verður ekki heimilt að greiða arð af starfseminni og mun hann renna óskiptur til frekari upp- byggingar. Núverandi rektorar, Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, og Stefanía Karlsdóttir, rektor Tækniháskólans, munu báðar starfa þangað til starfsemi skól- anna verður endanlega sameinuð í júní á næsta ári. - ghg Vill loka samningamenn inni uns deilan er leyst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir ríkisstjórnina ekki munu blanda sér í kennaraverkfallið, en deilendur ekki geta skotið sér undan ábyrgð. STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin ræddi kennaraverkfallið á reglubundn- um fundi sínum í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, mennta- málaráðherra segir að ríkisstjórn- in haldi fast í fyrri yfirlýsingar um að blanda sér ekki í deiluna hvorki með lagasetningu né íviln- unum handa sveitarfélögum. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra segir frétt ríkisútvarps- ins um að lög verði sett á verkfall- ið standi það til mánaðamóta sé tilhæfulaus með öllu. „Það hafa engar slíkar umræður farið fram. Deiluaðilar hljóta að gera sér grein fyrir sinni ábyrgð og þeir verða að hafa frið.“ Halldór úti- lokar líka ívilnanir og segir að staðið verði við þann ramma sem settur var í nýlegri yfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga um tekju- skiptingu. Menntamálaráðherra segir að deilendur hljóti að gera sér grein fyrir sívaxandi þrýstingi jafnt frá ríkisstjórn og samfélagi um að semja. „Spurningin er sú hvort ekki sé rétt að loka deiluaðila inni þar til þeir hafa samið. “ Björgvin G. Sigurðsson, tals- maður Samfylkingarinnar í menntamálum, segir þvert á móti að ríkisstjórnin og sérstaklega menntamálaráðherra geti ekki skotið sér undan ábyrgð. „Stjórn- völd verða að koma að deilunni með afdráttarlausum hætti. Í fyrsta lagi vegna þess að ríkið samdi myndarlega við viðmiðun- arstétt grunnskólakennara. Í öðru lagi vegna þess að ríkið skuldar milljarða vegna lagabreytinga og verður að veita sveitarfélögum hlutdeild í fjármagnstekjuskatti útaf einkahlutafélagavæðingu.“ Björgvin útilokar lagasetningu á þessu stigi en vekur athygli á að skilgreina þurfi hvað felist í sliku t.d. hvort kjaradómur ákveði laun eða verkfallsréttur verði tekinn af kennurum. Gunnar I. Birgisson, Sjálf- stæðisflokki og formaður menntamálanefndar þingsins segir að beita eigi lagasetningu aðeins ef neyðarástand skapast: „Sá punktur er að nálgast mjög hratt.“ a.snaevarr@frettabladid.is Halldór Ásgrímsson: Ekki bara tekjujöfnun STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að tekju- jöfnun sé síður en svo eina mark- miðið í skattamálum. Samkvæmt út- reikningum sem ASÍ vann fyrir Fréttablaðið hef- ur skattbyrði láglaunamanns þyngst frá því staðgreiðslukerf- ið var tekið upp 1988 en skattpró- sentan verður álíka og þá þegar skattalækkanir ríkisstjórnarinn- ar hafa tekið gildi. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ sagði að sífellt hefði verið að draga úr jöfnunará- hrifum skattkerfisins. Halldór Ásgrímsson segir að jöfnunaráhrif skattkerfisins hafi aukist og minnkað sitt á hvað, þar komi vaxta- og barnabætur líka inn í myndina . „En það hefur líka verið mikil umræða um jaðaráhrif og samstaða um að draga úr þeim. Það er líka markmið að draga úr skattsvikum og hvetja til tekjuöfl- unar. Ég geri ekki lítið úr jöfnunar- áhrifum. Hins vegar tel ég að hækk- un skattprósentu frá upptöku stað- greiðslukerfisins hafi hvatt til skattsvika.“ - ás SVONA ERUM VIÐ FJÖLDI SKRÁÐRA FÍKNIEFNA- BROTA ÁRIN 1999 TIL 2002* DÓMARINN TALDI KONUNA HAFA REITT HANN TIL REIÐI – hefur þú séð DV í dag? Fær enga refsingu fyrir að misþyrma eiginkonu sinni Skattbyrðin miðað við 1988: 10 þúsund krónum minna í vasann STJÓRNMÁL Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjör- tímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur mað- ur sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt. Tekjurnar væru orðnar 136 þúsund 2004 ef þær hefðu fylgt verðhækkunum og er mismunur á skattbyrðinni 7.5% samkvæmt útreikningum ASÍ fyr- ir Fréttablaðið. Niðurstaðan skánar ef reiknað er með 4% fyrirhugaðri tekju- skattslækkun. Að henni lokinni vantar um 5 þúsund krónur upp á að launamaðurinn fái það sama í vasann og 1988 og munar 3.7%. Eftir 4% lækkun munar 0.8% á skattbyrði 100 þúsund króna mannsins frá 1988 (nú 272 þús- und krónur) og skattbyrði 150 þúsund króna (nú 409 þúsund) mannsins frá 1988 er nánast sú sama eftir 4% lækkun og hún var þá. - ás Á Héraði: Endurnýja samstarfið SVEITARSTJÓRN Héraðslistinn hefur ákveðið að ganga til viðræðna við sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihlutastjórnar á Héraði. Funda átti á mánudagskvöld en viðræðunum var frestað vegna veðurs, segir Skúli Björnsson odd- viti listans. „Héraðslistinn og Sjálf- stæðisflokkur funduðu hvor í sínu lagi og þar voru menn á því að reyna þetta mynstur fyrst. Hópur- inn var að hluta til í samstarfi og skilaboðin frá kjósendum voru skýr,“ segir Skúli. Það skýrist á næstunni hvort flokkarnir nái að nýju saman. - gag Alþingi: Neytendur fái umboðsmann NEYTENDUR Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, Samfylkingunni mælti í gær fyrir frumvarpi á alþingi um að stofnað verði sérstakt embætti um- boðsmanns neytenda. Lagt er til að neytendahluti starfsemi Samkeppn- isstofnunar verði færður undan henni og til nýja embættisins. Verk- efni hans verði að veita fyrirtækjum nauðsynlegt aðhald gegn óheftri markaðsfærslu, hafa eftirlit með lögumum neytendavernd, upplýsa neytendur um réttindi sín á markaði og gæta hagsmuna neytenda. - ás HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Fleiri markmið en jöfnunaráhrif í skattakerfinu. FÝKUR Í MENNTAMÁLARÁÐHERRA Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir með storminn í fangið á leið af ríkisstjórnarfundi þar sem kennaraverkfallið var til umræðu í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA TVEIR FIMM ÞÚSUND KALLAR Hefðu bæst í vasa láglaunamanns ef skattkerfið frá 1988 hefði haldið sér, framreiknað til þessa dags. Ár Fjöldi 1999 962 2000 780 2001 910 2002 994 *Heimild: Hagstofa Íslands SAMKOMULAG UM SAMRUNA Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Stefanía Karlsdóttir, rektor Tækniháskóla Íslands. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.