Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 18
18 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR MÓTMÆLT Í LA PAZ Frumbyggjar Bólivíu flykktust til höfuð- borgarinnar La Paz til að krefjast réttar- halda yfir Gonzalo Sanchez de Lozada, fyrrum forseta, sem þeir segja bera ábyrgð á dauða 56 manns í blóðugum mótmæl- um fyrir ári síðan. Þeir hvöttu þingið líka til að samþykkja þjóðnýtingu gasauðlinda Bólivíu. STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að um- mæli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur um að Framsóknarflokkur- inn sé „ömurlegur flokkur“ boði ekki gott. Aðspurður um framtíð R-listans segir Halldór að sam- starfið hafi gengið vel. Framtíð þess verði ákveðin á vettvangi flokksins í Reykjavík og ótíma- bært að vera með yfirlýsingar um það. „Það eru skiptar skoðanir um það og hafa verið lengi. Það er nauðsynlegt að traust sé á milli aðila.“ –Ríkir traust? „Já, að vissu leyti, en það boðar aldrei gott ef samstarfsflokkur er kallaður ömurlegur eins og heyrð- ist hjá varaformanni Samfylking- arinnar. Ég hef ekki heyrt slík orð hjá samstarfsmönnum mínum í garð hennar eða hennar flokks.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lét þessi orð falla í þættinum Silfri Egils á Stöð 2 á sunnudag. „Þetta datt út úr mér en auðvitað segir maður ekki svona um virðulegan stjórnmálaflokk. Hins vegar stend ég við að mér finnst niður- læging hans mikil í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn.“ -ás TÍBET „Tíbet er vanþróað land. Það er stórt land og ríkt að náttúru- auðlindum en okkur skortir tækni og þekkingu til að nýta þær. Því er það svo að ef við verðum áfram hluti Kína getum við notið góðs af því, að því tilskyldu að Kína taki tillit til menningar okkar og um- hverfis og veiti okkur einhverjar tryggingar fyrir því,“ sagði Dalai Lama í viðtali við tímaritið Time. Í viðtalinu sagði Dalai Lama að mörgum Tíbetum þætti sem hann hefði svikið þá með því að gefa eftir baráttuna fyrir sjálfstæði landsins sem Kínverjar hernámu fyrir rúmlega hálfri öld síðan. Hann sagði hins vegar að það væri í þágu Tíbeta sjálfra að vera áfram innan Kína, en þó því að- eins að Kínverjar veittu Tíbetum meiri réttindi en hingað til. „Þrátt fyrir nokkrar framfarir í efnahagslífi og þróun búum við enn við alvarlegar ógnir gagnvart hefðum okkar, trúfrelsi og um- hverfinu. Á landsbyggðinni er ástand mennta- og heilbrigðis- kerfisins mjög slæmt. Þetta er líkt og hið mikla bil milli ríkra og fátækra í Kína,“ sagði hann um stöðu mála í Tíbet. - bþg ■ NORÐURLÖNDUngur Norðmaður: Nefnir sig eftir Keikó NOREGUR Ungur Norðmaður hefur látið breyta nafni sínu í Keik- oburger, eða Keikóborgara upp á íslensku. Hann segir þetta frá- bært því nú geti hann fengið út- gefið vegabréf og ökuskírteini með einstæðu nafni. Espen Keikoburger Scheide segist hafa fengið hugmyndina þegar hann var inni á vef skatta- yfirvalda. „Þá sá ég eyðublað fyrir nafnabreytingu. Ég trúði ekki að ég fengi nafnið sam- þykkt,“ sagði hann í samtali við norska blaðið Verdens Gang. Keikóborgaranafnið hefur hann notað sem kenninafn á netinu og í framhaldi af þessu í almennum samskiptum við fólk. - bþg Hreinna gólf og beinna bak Verð með VSK. 3.725 kr. • Þvottavatn í einu hólfi • Skolvatnið i öðru hólfi • Fótstigin rúllupressa Tveggja hólfa Rocket-ræstifatan (15 l) hefur fótstigna rúllupressu sem kemur í veg fyrir hokur við þrifin. Einföld og þægileg lausn fyrir heimilið og minni svæði hjá stofnunum og fyrirtækjum. INGIBJÖRG SÓLRÚN Kallaði Framsókn „ömurlegan stjórnmálaflokk“ í Silfri Egils. „Auðvitað segir maður ekki svona,“ segir hún eftir á. Halldór gagnrýnir Ingibjörgu Sólrúnu: Varaformaðurinn tekur orð sín aftur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R VANHANEN Í SJÚKRALEYFI Lækn- ar skipuðu Matti Vanhanen, for- sætisráðherra Finnlands, að taka sér nokkurra daga frí frá störf- um eftir að hann greindist með blóðtappa. STOLIN ÆVISAGA Útgefandi danskrar ævisögu um Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur aft- urkallað hana úr búðum. Ástæðan er sú að dagblaðið Berlingske Tidende hefur sakað höfund bók- arinnar um ritstuld úr eldri ævi- sögu Kissingers. MÓTMÆLI HJÁ SAAB Nokkur þús- und starfsmenn í síðustu bíla- verksmiðju Saab í Svíþjóð lögðu niður störf í tvo klukkutíma til að ræða þá stöðu sem er komin upp í verksmiðjunni. Sex þúsund manns vinna í verksmiðjunni og fækka á um fimm hundruð manns á næsta ári. Dalai Lama segir sjálfstæði ekki lausnina fyrir Tíbet: Framtíðin betri innan Kína DALAI LAMA MEÐ KARLI BRETAPRINS Dalai Lama hefur búið utan heimalands síns um nærri hálfrar aldar skeið. Lengst af barð- ist hann fyrir sjálfstæði Tíbets en nú vill hann tryggja hagsmuni þess innan Kína. INDLAND, AP Indverskur glæpa- maður sem sakaður er um að hafa myrt meira en 130 manns á nokkurra áratuga glæpaferli sínum var skotinn til bana í skot- bardaga við lögreglu í fyrri nótt. Þar með lauk nærri fjörutíu ára glæpaferli hans sem varð kveikjan að gerð kvikmyndar og tilefni margra samsæriskenn- inga. Hinn sextugi Koose Muniswa- my Veerappan fékkst aðallega við smygl á fílabeini og sjald- gæfum sandelviði. Hann átti í stöðugum útistöðum við lög- reglu á þessu tímabili og var stærstur hluti þeirra á annað hundrað einstaklinga sem hann myrti lögreglumenn. Hann er einnig sagður hafa hengt alla þá sem hann grunaði um að njósna um sig fyrir lögreglu. Veerappan varð frægur fyrir glæpi sína og lán sitt við að sleppa úr greipum lögreglunnar. Frægð hans var sögð jafnast á við frægð helstu kvikmynda- stjarna Indlands og það varð ekki til að draga úr frægð hans þegar hann rændi einum fræg- asta leikara landsins. Lán hans við að sleppa úr höndum lögreglu virtist, þar til í fyrri nótt, engan enda ætla að taka og hallast því margir að því að hann hafi notið verndar stjórnvalda eða stjórnenda lög- reglunnar. Engin staðfesting hefur þó fengist á því. ■ Nær fjörutíu ára glæpaferli lauk í skotbardaga: Sögufrægur glæpamaður skotinn FJÖLMENNI Á VETTVANGI Margir lögðu leið sína á staðinn þar sem Koose Muniswamy Veerappan háði síðasta skotbardaga sinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.