Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 22
Guðfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands mun halda Hugvísindaþing 2004 föstudaginn 22. október og laugardaginn 23. október. Aðgangur er ókeypis og er dagskrá að finna á vefsíðunni hugvis.hi.is. Námskeið í hársnyrtingu: Slétt hár og mjúkar línur Íslenskt og bandarískt fagfólk í hárgreiðslu hafði vinnubúðir á Grand hóteli um síðustu helgi fyrir norska kollega sína sem flykktust hingað tugum saman á haustnámskeið í greininni. „Romantic/pönkirissm“ heitir línan sem lagt var upp með og unnið út frá, að sögn Elsu Har- aldsdóttur, hár- greiðslumeistara í Salon Veh. Stofan hennar var ein þriggja stofa sem undirbjuggu nám- skeiðið fyrir Ís- lands hönd og lögðu þar fram vinnu. Hinar voru Mojo/Monroe og Rauðhetta og úlfurinn. Elsa segir útfærsl- urnar hafa verið margvíslegar á rómantísku pönklínunni. „Þarna var leikið með miklar andstæður í hári. Mjög snöggklippt hár á móti meiri lengd, slétt hár og mjúkar línur,“ segir hún og kveðst afar ánægð með árangur- inn af námskeiðinu. ■ Íslendingar í Evrópukeppni: Hlutu gull og silfur Tveir Íslendingar tóku þátt í keppni Evrópusamtaka hótel- og ferðamálaskóla um síðustu helgi í Bled í Slóveníu og frammistaða þeirra var glæsi- leg. Guðrún Birna Brynjars- dóttir, nemi á ferðamálabraut, fékk gull í keppni um ferða- kynningar og Svanur Már Scheving bakaranemi silfur í keppni um gerð eftirrétta. Þau eru bæði nemendur við Menntaskólann í Kópavogi. Í samtökunum eru 350 skólar í 40 löndum og um helmingur skólanna tók þátt í keppninni í ár. Að sögn Sigríðar Þrúðar Stefánsdóttur, fagstjóra ferða- greina hjá MK, sem fór með ís- lensku nemendunum hefur Menntaskólinn í Kópavogi verið í samtökunum í 7 ár og þetta er sjötta árið sem hann kemur heim með verðlaun. Þetta er þó í fyrsta sinn sem báðir fulltrúar Íslands komast í toppsæti. „Þessi frammistaða sýnir á hvaða stigi okkar skóli er í samanburði við aðra enda er virkilega tekið eftir fólkinu okkar í þessum keppnum,“ segir Sigríður Þrúður. Við slógum á þráðinn til Guðrúnar Birnu, sem var að vonum ánægð með árangurinn. Ferðakynningin var liðakeppni þar sem tíu lið tóku þátt og hún kveðst hafa verið í liði með tveimur stúlkum og einum strák. Stúlkurnar voru frá Ítal- íu og Hollandi og strákurinn frá Króatíu. „Við áttum að sýna hvernig við ætluðum að sann- færa landa okkar um að heim- sókn til Slóveníu og þá sérstak- lega Bled væri eftirsóknar- verður kostur og höfðum einn dag til að undirbúa okkur. Reyndum að hafa kynninguna líflega og settum upp smá leik- rit,“ segir hún. „Það sló alger- lega í gegn.“ gun@frettabladid.is Guðrún Birna og Svanur Már stóðu sig frábærlega í keppninni. Þau eru bæði á síðustu önn í MK. Rómantíska stefnan í allri sinni dýrð. Pönkið allsráðandi. Baldur Rafn Gylfason, annar eigandi Mojo/Monroe, með hendur í hári eins módelsins. Módel íslensku hárgreiðslumeistaranna sem sýndu rómantísku pönklínuna. Fatnaðurinn var frá Uniformi og Kron. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.