Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 36
28 20. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Við hrósum... ... Guðmundi Hrafnkelssyni fyrir að taka því karlmannlega að vera tekinn út úr landsliðinu eftir samfellda nítján ára dvöl. Viggó Sigurðsson, nýráðinn landsliðsþjálfari, ákvað að velja hann ekki á World Cup en Guðmundur er ekki fúll. Hann tekur ákvörðun Viggós af æðruleysi enda búinn að fá sinn skerf af leikjum sem eru orðnir á fimmta hundraðið. „Ég sagði honum að taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum en hann virtist ekki skilja mig.“ Giga Popescu, umboðsmaður Adrians Mutu, gerði sitt besta til að koma kókaínhausnum Mutu aftur til jarðar án nokkurs sýnilegs árangurssport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 17 18 19 20 21 22 23 Miðvikudagur OKTÓBER HANDBOLTI Marga rak í rogastans þegar markvörður kvennaliðs Víkings, Erna María Eiríksdóttir, mætti til leiks gegn Valsstúlkum í 1. deild kvenna í handbolta á dög- unum með forláta hlíf á hausnum, hlíf sem notuð er í ólympískum hnefaleikum. Erna María vakti mikla athygli með hlífina og sagði hún í samtali við Fréttablaðið að hún væri ein- göngu að verja höfuðið á sér með því nota hlífina. „Ég fékk slæmt höfuðhögg fyrir páska og eftir það fór ég að hugsa málið. Ég talaði við fjöl- marga lækna og þeir voru allir á einu máli um að það væri nauð- synlegt fyrir markverði í hand- bolta að verja sig með öllum til- tækum ráðum því þeir væru farn- ir að fá inn á borð til sín fullt af til- fellum um heilahristing og önnur höfuðmeiðsl úr handboltanum. Með þessari hlíf er ég líka að verja andstæðinga mína því markvarðarstaðan í dag er orðin þannig að þeir mega fara út úr teignum og það eykur hættuna á því að leikmenn skelli saman,“ sagði Erna María. Það er hins vegar ljóst að hún mun ekki spila með þessa hlíf á næstunni því dómara- nefnd HSÍ hefur bannað henni að nota hana. Sam- kvæmt reglugerð 4.9 í lögum HSÍ frá 2001 er hvers kyns höfuðverja eða andlitsgríma bönnuð í kappleik þar sem þau gætu skaðað leikmenn. Hákon Sigurjónsson, formaður dóm- aranefndar HSÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að þetta væru reglur frá Alþjóðlega handknattleikssambandinu og það væri ekki á færi dómara- nefndarinnar að breyta þeim eða veita undanþágu. Förum bara eftir reglum „Þessar reglur hafa verið settar og við gerum ekkert ann- að en að fara eftir þeim. Það kemur fjöldinn allur af læknum að þessum reglugerðum og þeir sjá ekki ástæðu til að leyfa þessa hlíf. Það segir sig líka sjálft að ef markverðir geta ekki spilað öðruvísi en með slíkar hlífar vegna fyrri meiðsla þá eiga þeir ekki að spila,“ sagði Hákon. Að- spurður hvort það væri ekki ein- földun á reglunum og fáránleg forræðishyggja vildi Hákon ekki kannast við það en viðurkenndi að það gilti einu hvort leikmaður hefði áður fengið höfuðhögg eða ekki – hann mætti ekki spila með þessa hlíf. Höfuðið er viðkvæmt Erna María hefur ekki sagt sitt síðasta orð og ætlar að fara með málið alla leið til Alþjóða hand- knattleikssambandins þar sem hún vonast til að menn opni augun og leyfi notkun hlífarinnar. „Í raun og veru ætti að skylda alla markverði til að nota þessa hlíf,“ sagði Erna María. Jónas Halldórsson, sérfræð- ingur í taugasálfræði, sagði í sam- tali við Fréttablaðið í gær að það gæfi auga leið að það væri ekki gott fyrir höfuðið að fá bolta á miklum hraða í sig. „Ég hef ekki heyrt af þessari hlíf en ef mark- vörður velur þetta og þetta háir honum ekki þá finnst mér það vera hið besta mál. Það eiga allir að reyna að verja höfuðið á sér eftir fremsta megni og ég fagna því að til séu íþróttamenn sem hugsa um þessi mál. Höfuðið er viðkvæmt og að meiðast á því svæði er mun alvarlega en að meiðast á einhverjum útlim – höf- uðmeiðsl geta haft alvarlegar af- leiðingar í för með sér það sem eftir er lífsins,“ sagði Jónas. oskar@frettabladid.is Hættulegt vopn eða hluti af leiknum? Erna María Eiríksdóttir, markvörður Víkings í handboltanum spilaði með höfuðhlíf gegn Val í deildinni á dögunum en hefur nú verið bannað að leika með hlífina af dómaranefnd HSÍ. ■ ■ LEIKIR c 19.15 Þór Ak. og Haukar mætast á Akureyri í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  18.15 Meistaramörk á Sýn. Endurtekinn þáttur frá því í gærkvöld.  18.30 Meistaradeildin á Sýn. Bein útsending frá leik AC Milan og Barcelona í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.  20.40 Meistaramörk á Sýn. Mörkin úr leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni sýnd.  21.15 Meistaradeildin á Sýn. Útsending frá leik Panathinaikos og Arsenal í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.  22.20 Handboltakvöld á RÚV.  00.50 Meistaramörk á Sýn. Mörkin úr leikjum kvöldsins í Meistara- deildinni sýnd. Kári Árnason: Með tilboð frá Svíþjóð FÓTBOLTI Víkingurinn Kári Árnason, sem átti frábært tímabil með Víkingum í Landsbankadeildinni í sumar, hefur nú undir höndum tilboð frá sænska liðinu Djurgaarden og mun hann nota næstu daga til að fara yfir það með fjölskyldu sinni. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið að hann teldi mjög líklegt að hann myndi ná samkomulagi við félagið en Víkingar hafa þegar samþykkt tilboð sænska liðsins í Kára. Kári dvaldi til reynslu hjá félaginu fyrir skömnmu ásamt Grindvíkingnum Grétari Hjartar- syni en Grétar sagði við Frétta- blaðið í gær að hann hefði ekki fengið tilboð frá sænska liðinu en sagðist jafnframt vera á leið til enska liðsins Doncaster til reynslu á næstu dögum. ■ Átta leikir í meistaradeild Evrópu í kvöld: Rijkaard snýr aftur til Milanóborgar FÓTBOLTI Hollendingurinn Frank Rijkaard, sem stýrir nú liði Barcelona, fer á fornar slóðir þeg- ar lærisveinar hans sækja AC Milan heim í meistaradeildinni í kvöld. Rijkaars var einstaklega sigursæll leikmaður með AC Mil- an á meðan hann lék með liðinu en hann getur ekki beðið eftir því að sigra liðið í kvöld. „Það er sérstakt fyrir mig að koma aftur hingað. Ég átti fimm frábær ár með AC Milan og það er ekki hægt að gleyma þeim. Ég verð hins vegar að gleyma aðdáun minni á félaginu í kvöld því að verkefni okkar er að fara með sigur af hólmi í leiknum. Við ætl- um að stjórna leiknum og spila skemmtilegan fótbolta til sigurs,“ sagði Rijkaard. ■ FRANK RIJKAARD Hlakkar til að mæta gömlu félögunum í AC Milan í kvöld sem þjálfari Barcelona. HÆTTULEGT VOPN Erna María með höf- uðhlífina góðu sem hefur verið bönnuð af dómaranefnd HSÍ. Erna María ætlar ekki að gefast upp og hef- ur sent beiðni til Al- þjóða handknattleiks- sambandsins. Fréttablaðið/E.Ól. [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] MEISTARADEILD EVRÓPU A-riðill Liverpool–Deportivo 0–0 Mónakó–Olympiakos 2–1 1–0 Saviola (2.), 2–0 Chevanton (10.), 2–1 Okkas (60.) STAÐAN: Mónakó 3 2 0 1 4–3 6 Olympiakos 3 1 1 1 2–2 4 Liverpool 3 1 1 1 2–1 4 Deportivo 3 0 2 1 0–2 2 B-riðill Leverkusen–Roma 3–1 0–1 sjálfsmark (26.), 1–1 Junior (48.), 2–1 Kryznowek (59.), 3–1 Franca (90.) Real Madrid–Dynamo Kiev 1–0 1–0 Owen (35.) STAÐAN: Leverkusen 3 2 0 1 8–5 6 D. Kiev 3 2 0 1 7–3 6 Real Madrid 3 2 0 1 5–5 6 Roma 3 0 0 3 3–10 0 C-riðill Ajax–M. Tel-Aviv 3–0 1–0 Sonck (4.), 2–0 de Jong (21.), 3–0 van der Vaart (33.). Juventus–Bayern München 1–0 1–0 Nedved (76.). STAÐAN: Juventus 3 3 0 0 3–0 9 Bayern 3 2 0 1 5–1 6 Ajax 3 1 0 2 3–5 3 Maccabi 3 0 0 3 0–5 0 D-riðill Fenerbahce–Lyon 1–3 0–1 Pernambucano (55.), 0–2 Cris (66.), 1–2 Nobre (68.), 1–3 Frau (87.) Sparta Prag–Man. Utd 0–0 STAÐAN: Lyon 3 2 1 0 7–4 7 Man. Utd. 3 1 2 0 8–4 5 Fenerbahce 3 1 0 2 4–9 3 Sparta Prag 3 0 1 2 1–3 1 Sigurmark Michael Owen skoraði gríðar- lega mikilvægt sigurmark fyrir Real í gær. Bristol brýst í gegn Reshea Bristol skor- aði 18 stig og gaf 8 stoðsendingar í gær. 1. deild kvenna í körfu: 30 stig frá Önnu Maríu KÖRFUBOLTI Anna María Sveinsdóttir skoraði 30 stig í 15 stiga sigri Keflavíkur, 64–79, á ÍS í Kennaraháskólanum í gær. Keflavíkurliðið tók strax völdin og Anna María gaf tóninn með því að skora 13 af 28 stigum Keflavíkur í fyrsta leikhluta en Keflavík hafði yfir 16–28 eftir hann. Í hálfleik munaði orðið 19 stigum, 30–49, og þó svo að Stúdínur næðu að laga sinn leik eftir hlé var sigur Keflavíkur aldrei í hættu. Anna María skoraði eins og áður sagði 30 stig en hún hitti úr 13 af 20 skotum sínum en auk þess tók hún 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Reshea Bristol var með 18 stig, 9 fráköst, 8 stoðsendingar og 6 stolna bolta, María Ben Erlingsdóttir bætti við 13 stigum og 6 fráköstum og 100% skot og vítanýtingu á 21 mínútu. Hjá ÍS voru þær Signý Hermannsdóttir og Alda Leif Jónsdóttir með 14 stig og Hafdís Helgadóttir bætti við 12. Signý var auk þess með 11 fráköst og Alda Leif gaf 8 stoðsendingar. ■ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.