Fréttablaðið - 20.10.2004, Side 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 107 stk.
Keypt & selt 21 stk.
Þjónusta 33 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 9 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 26 stk.
Tilkynningar 6 stk.
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 20.
október, 294. dagur ársins 2004.
Reykjavík 8.34 13.12 17.50
Akureyri 8.25 12.57 17.28
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Rokkskólinn er fyrir fólk á öllum aldri
sem hefur áhuga á tónlist og þar er boðið
upp á skemmtileg 4-6 vikna námskeið,“
segir Eva Ásrún Albertsdóttir söngkona,
sem er í forsvari fyrir skólann. Þegar for-
vitnast er um fögin kemur í ljós að ásamt
söng er kennt á gítar, trommur og bassa
og að sögn Evu Ásrúnar er bæði um hóp-
tíma að ræða og einkatíma. „Þetta er ein-
staklingsmiðað nám sem er sniðið að þörf-
um hvers og eins en það hentar sumum
krökkum betur að vera í hóp heldur en
einir,“ segir hún og getur þess að yngsti
nemandinn í trommutímunum sé aðeins
sjö ára. Í söngtímunum er nemendum
skipt í hópa eftir aldri og reynslu og Eva
Ásrún segir þar sé farið í helstu atriðin
eins og túlkun og texta, framkomu, upp-
hitun, öndun og míkrófóntækni.
Eva Ásrún stofnaði Rokkskólann á síð-
asta vori og er að byggja hann upp með
sonum sínum Albert og Magnúsi, sem
kenna báðir á hljóðfæri. „Við erum með
fullt af góðu fólki með okkur,“ segir hún
og nefnir nöfn Guðrúnar Gunnarsdóttur,
Ernu Þórarinsdóttur, Ruthar Reginalds,
Guðlaugs Falk, Jóhanns Hjörleifssonar og
Bærings Logasonar. „Svo má ekki gleyma
Hödda í Brain Police, hann kennir á
bassa,“ segir Eva Ásrún og við rengjum
hana ekki þegar hún lætur þess getið í lok-
in að í Rokkskólanum sé líf og fjör. Skrán-
ing er á rokkskolinn.is og í síma 898 9955.
gun@frettabladid.is
Kennt að syngja, á gítar, trommu og bassa í Rokkskólanum:
Rokk fyrir alla Tölvuskólinn Þekking er aðfara af stað með fjölbreytt úrvalnámskeiða er flest lúta að
tölvunotkun og tækni og sér-
lega vinsæl eru námskeið um
notkun stafrænna myndavéla,
að sögn Sigurðar
Friðrikssonar skóla-
meistara. Hann segir
tölvunámskeiðin
sniðin að þörfum
fólks með ólíkan bak-
grunn. „Við erum með
námskeið fyrir eldri
borgara sem eru á fyrsta
degi tölvunáms og allt upp í
kennslu fyrir kerfisfræðinga,“
segir hann en nefnir þó að sleg-
ið hafi á aðsókn að námskeið-
unum fyrir eldri borgara nú í
kennaraverkfallinu. „Sumir þeir-
ra hafa þurft að fresta náminu
því þeir eru bundnir yfir barna-
börnunum.”
Inntökunámskeið í leik-
listarnámsskeið VMA og MA
stendur nú yfir. Kennari er Þor-
leifur Arnarsson leikari,
sem mun stjórna
uppsetningu á söng-
leik sem nemendur
þessara tveggja
framhaldsskóla á Ak-
ureyri ætla að drífa á
svið í vetur undir
merkjum hátíðarinnar
Ganglera. Söngleikur-
inn heitir Rígurinn og fjallar um
nemendur í tveimur ónefndum
framhaldsskólum í ónefndum
16.000 manna bæ og samneyti
þeirra í blíðu og stríðu.
nam@frettabladid.is
Eva Ásrún og Ruth Reginalds leiða hópinn í söng.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í NÁMINU
NÁM FERÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Unglingar eru
þeir sem geta
drukkið kók í ein-
um sopa.