Fréttablaðið - 27.10.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 – Veffang: visir.is
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA BJARTVIÐRI og hægviðri. Hiti 1-
5 stig að deginum syðra en við frostmark
nyrðra. Næturfrost um allt land. Sjá síðu 4
27. október 2004 – 294. tölublað – 4. árgangur
ÞÁTTASKIL Í DEILU Ísraelska þingið
samþykkti í gærkvöld áætlun Ariels Sharon
forsætisráðherra um brottflutning ísraelskra
landnema frá Gaza og fjórum svæðum á
Vesturbakkanum. Sjá síðu 2
TILLÖGURNAR KOMU OF SEINT
Bæjarstjóri Akureyrar kom til Reykjavíkur til
að reyna að losa um pattstöðu samninga-
viðræðna kennara og sveitarfélaga. Of seint
segir menntamálaráðherra. Sjá síðu 2
ÓHÓFLEG EINKANEYSLA Árangurs-
laus fjárnám hjá einstaklingum hafa aukist
um rúmlega 50 prósent á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs, miðað við sama tíma í
fyrra. Sjá síðu 4
ÁTTU EKKI AÐ YFIRGEFA VÖLL-
INN Íslensku friðargæsluliðarnir áttu ekki
að yfirgefa flugvöllinn sem þeir reka nema
brýna nauðsyn bæri til. Þeir voru að sækja
teppi þegar árás var gerð. Sjá síðu 12
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 26
Sjónvarp 36
VERKFALL „Það gerðist ekkert á
fundinum. Staðan er ekki önnur
en var kvöldinu áður,“ sagði Eirík-
ur Jónsson, formaður Kennara-
sambands Íslands, eftir að fundi
þeirra og launanefndar sveitarfé-
laganna lauk rétt um átta leytið í
gærkvöld.
Hvort nú sé tími kominn á miðl-
unartillögu svaraði Ásmundur
Stefánsson ríkissáttasemjari að
hugsa þurfi málið allt í heild. Hann
sé ekki nær svarinu nú en áður.
Eiríkur segir það í hendi
samninganefndarinnar að ákveða
hvort verkfalli verði frestað
komi tillaga sáttasemjara fram.
Hann geti ekki metið að svo
stöddu hvort hún fengist sam-
þykkt.
Í óformlegri tillögu ríkissátta-
semjara sem lögð var fyrir
deilendur á fimmtudag var gert
ráð fyrir um 15 til 20 þúsundum
króna lægri mánaðarlaunum en
kennarar vænta. Eiríkur opnar
fyrir þann möguleika að kennar-
ar skoði hugsanlega að lækka
launakröfuna komi einhvað í
staðinn. Tryggingar um verðlags-
þróun á samningstímanum hafi
til dæmis ekki verið í samningun-
um. Ýmis atriði hefðu einnig mátt
vera á annan veg en Eiríkur hef-
ur áður sagt að viðræðurnar hafi
strandað á launaliðnum.
Ásmundur hefur boðað tvo frá
samninganefndunum á sinn fund
á fimmtudag. - gag
LEIKIÐ Í SS-BIKAR Fjórir leikir verða
í SS-bikarkeppni karla í handbolta. Klukk-
an 18.30 mætast Haukar 2 og Bifröst.
Klukkan 19.15 mætast Stjarnan og ÍBV.
Klukkan 20 tekur Afturelding á móti HK
og klukkan 20.30 sækir Fram Hauka heim.
VIÐSKIPTI Úrvalsvísitala hlutabréfa
í Kauphöll Íslands féll um 4,23
prósent í gær. Daginn áður lækk-
aði hún um 2,97 prósent. Aldrei
áður hefur vísitalan lækkað jafn-
hratt á tveimur dögum, en saman-
lögð lækkun er 7,08 prósent.
Næstmesta lækkun á tveimur
dögum er 5,45 prósenta lækkun
sem varð fyrstu dagana í maí árið
2001. Samanlagt verðmæti fyrir-
tækjanna fimmtán í Úrvalsvísitöl-
unni við lok viðskipta á föstudag
var 1.012 milljarðar en var 940
eftir daginn í gær. Lækkunin er
því 72 milljarðar króna.
Fyrirtækin fimmtán í Úrvals-
vísitölunni lækkuðu öll í gær að
Opnum kerfum og Össuri undan-
skildum. Össur skilaði níu mánaða
uppgjöri í gær sem sýndi betri
rekstrarárangur en greiningar-
deildir bankanna höfðu búist við.
Hlutabréfaverð á Íslandi hefur
hækkað hratt það sem af er ári.
Þrátt fyrir lækkunina í gær er Úr-
valsvísitalan 68 prósentum hærri
en í upphafi árs. Hækkunin í sept-
ember var mjög mikil og hafa
greiningardeildir bankanna búist
við leiðréttingu í kjölfarið. Nú
stendur Úrvalsvísitalan í 3.550
stigum sem er svipað og hún var
um miðjan september en fór hæst
í 3.947 stig 8. október. Frá þeim
tíma hefur Úrvalsvísitalan lækk-
að í níu daga en hækkað tvisvar.
Nú hefur úrvalsvísitalan lækkað
fimm daga í röð.
Gylfi Magnússon, dósent í hag-
fræði við HÍ, segir að líta beri á
það að Úrvalsvísitalan hafi næst-
um þrefaldast á þremur árum.
„Það kemur miklu frekar á óvart
hvað hún var búin að hækka mik-
ið á þessum tíma og langt umfram
það sem allar efnahagsstærðir
réttlættu. Það er ekkert skrýtið
þótt eitthvað af því hafi gengið til
baka og þótt ég vilji ekki gefa út
neina spá um þróun vísitölunnar
þá gæti hún áfram lækkað hressi-
lega, hvort sem það gerist hratt
eða á jafnvel á einhverjum árum,“
segir hann. - þk
Sjá síðu 23
Ríkissáttasemjari horfir á deilu kennara með miðlunartillögu í huga:
Óbreytt staða í kennaradeilunni
Stærstu félögin féllu
um sjötíu milljarða
Aldrei áður hefur Úrvalsvísitalan lækkað svo mikið á tveimur dögum. Aðeins tvö af fimmtán
félögum í vísitölunni hækkuðu í gær. Dósent í hagfræði á allt eins von á að hún lækki hressilega
áfram. Þrátt fyrir lækkanir er vísitalan 68 prósentum hærri en í ársbyrjun.
SKEGGRÆTT VIÐ UPPSALI Árni Johnsen og Ómar Ragnarsson ræða málin við Uppsali í Selárdal þar sem Gísli Gíslason bjó. Báðir tóku
þeir viðtöl við Gísla sem varð þjóðkunnur í kjölfarið en hann bjó einn í þessum afskekkta dal á Vestfjörðum og fannst lítið til nútíma-
þæginda koma. Árni og Ómar ætla að stuðla að stofnun safns sem helgað verður Gísla á Uppsölum. Sjá síðu 14
Ráðgjöf vegna
einkavæðingar Símans:
Fjórtán
tilboð
EINKAVÆÐING Fjórtán tilboð hafa
borist einkavæðinganefnd
vegna ráðgjafar við sölu á Sím-
anum. Að sögn Illuga Gunnars-
sonar, nefndarmanns og aðstoð-
armanns utanríkisráðherra, var
farið yfir tilboðin á fundi í gær.
Að sögn Illuga er stefnt að
því að nefndin semji um ráð-
gjöfina fyrir miðjan næsta mán-
uð.
Frestur til að skila tilboðum í
ráðgjöfina rann út á mánudag.
Ekki er gefið upp hverjir sóttu
um verkefnið, en að sögn Illuga
eru það bæði innlend fyrirtæki
og útlensk auk þess sem nokkur
tilboð séu gerð í samstarfi ís-
lenskra og erlendra fyrirtækja.
- þk
Sv hornið og Akureyri
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
● sagður lygari sjálfur
Sakar tvo fyrrverandi
leikmenn um lygar
Formaður Fylkis:
▲
SÍÐA 26
● nám o.fl.
Kynverund snýst
um hjartað
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
SÉRBLAÐ UM
HEIMILI
FYLGIR
FRÉTTABLAÐINU
Í DAG